Jæja, nú er farið að styttast í annan endann á að maður skelli sér í höfuðborg Tjallans. Innan við mánuður þangað til. og svo styttist í að bumbubúinn fari nú líka að láta sjá sig. Þá verður gaman. Vonandi að maður verði búinn að fá afhent í Blöndubakkanum áður en kemur að því.
Annars var maður ræstu snemma á þessum annars fallega laugardegi, þar var að verki samviskan sem var búin að lofa að fara og hjálpa Dóru og Siffa að flytja. Auðvitað bombaði maður sér í það af fullum krafti… en ekki hvað.
Svo er það bara fótbolti í allan dag. Man Jú spila á eftir í bikarnum á móti Middlesborum. Athyglisverður leikur þar á ferð.
Svo er Steini á leiðinni með djúpsteiktann kjúkling sem kenndur er við Kentucky. Mmmmmm nr 8 með piparmajónesi klikkar ekki.
Núna er Ellen í heimsókn hjá okkur og er eitthvað að fretast hérna um að það sé ekkert fyndið að þora ekki að fara í pils. Ég meina… hversu wierd er það. Hún er svo skrítin hún Ellen. Hver hefur ekki séð Gladiator og Braveheart??? Jesús minn. Hún er eitthvað að reyna að draga okkur í bíó í kvöld en vill ekki fara á Alexander af því að hún er yfir 3 tímar. Jesús minn. Ég held að hún ætti bara að halda áfram að horfa á Disney myndir sem eru undir 90 mín. Svo er Ellen að reyna að draga mig að hitta Einar Pulsu á kaffihúsi, je ræt. ég held nú ekki. Ekki ætla ég að fórna Manchester leik fyrir Einar Pulsu þó að hann sé örugglega ágætis gaur.
Jæja, nóg í bili.
Þangað til næst……