Kúkasaga dauðans

Sit hérna í vinnunni, lítið að gera, reyna að blogga eitthvað en dettur ekkert skemmtilegt í hug, spurning hvort maður ætti að fara út í einhverjar kúkasögur eins og hún Rebba gerir svo nett, spurning um að tala um mat og matarboð eins og hún Fanney Dóra, jafnvel spurning að blogga um ævintýri mín eins og Sleggjan fer svo nett með sín ævintýri á sinni síðu, en þar sem að Tomminn þjáist af rithægðartregðu á háu stigi hef ég ákveðið að koma með reynslusögu úr lífi Tommans.

Fyrirgefðu Ninni en þetta varð að flakka einhverntímann.

Þannig var mál með vexti að einn fagrann vordag árið 1998 þegar Tomminn var á sínu 22 aldursári ákvað kallinn að skreppa til Ítalíu og sjá leik með sínum heittelskuðu Inter mönnum spila við AC Milan. Tommanum þótti verra að þvælast alla þessa leið aleinn þannig að hann dobblaði Ninna litla bróður sinn með sér. Ninni sem þarna var á sautjánda árinu lítill og mjór var alveg til í þetta.
Það fór svo þannig að bræðurnir stóðu gallvaskir á Leifsstöð tilbúnir í ný ævintýri. Ferðin sjálf var mjög fín en flogið var frá Keflavík til Luxembourg þar sem tók við 12 klst rútuferð yfir til Ítalíu. Frekar þreytandi rútuferð en ferðin var ódýrari fyrir vikið. Sem betur fer var klósett í rútunni þannig að menn gátu gengið örna sinna óáreittir því mikið var um bjórdrykkju í þessari rútuferð. Við bræður létum nú bjórinn eiga sig þótt flestir aðrir væru orðnir nokkuð hressir.

Dvölin á Ítalíu var mjög fín. Mínir menn í Inter rúlluðu AC Milan upp 3-0 þar sem að Diego Simeone og Ronaldo skoruðu mörkin. Mjög fínt en strax eftir leikinn var farið beint upp í rútu og haldið af stað áleiðis til Luxembourg. Kl var orðin nokkuð margt þannig að flestir reyndu bara að halla sér. Um kl 4 á mánudagsmorgninum er stoppað í einhverri skítabúllu þar sem að við bræður gátum fengið okkur eitthvað í gogginn.
Eitthvað hefur maturinn sem Ninni fékk sér farið eitthvað illa í karlangann því hann fékk þessa líka heiftarlegu magapínu strákgreyið þannig að hann gat sig bara ekkert hreyft.
Svo líður og bíður og þar sem við sitjum þarna fremst á efri hæðinni í rútunni þá gýs allt í einu upp þessi líka svakalega skítalykt marr uuuusss, þið trúið því ekki en þetta var rosalegt. Ég lít svona niður til Ninna þegar ég finn þessa lykt og þá lítur hann svona upp til mín eins og lítill kjölturakki með stórum biðjandi augum alveg rosalega aumkunarverður og setur puttann upp að vörunum á sér og svo kemur svona hljóðlegt sssss. Kvikindið ég gat ekki setið á mér við þessa sjón að ég hreinlega sprakk úr hlátri. Þetta var alveg óendanlega fyndið og var fólkið sem var aftar í rútunni farið að veita okkur athygli. Það komst að því svona 4,3 sekúndum síðar af hverju ég var að hlæja. Mökkurinn fór eins og eldur um sinu út um alla rútuna og setningar eins og “Hva, eru strákarnir búnir að drulla í sig þarna fram í” og “Djöfulsins lykt er þetta eiginlega, hver dó” fóru að heyrast og alltaf hló ég jafn mikið. Ninni sem lá þarna í sætinu fölur og fár var ekki með bros á vör þegar þarna var komið við sögu. Eftir langan tíma (örugglega heil eilífð í huga Ninna) komum við loksins til Luxembourgh. Við bræður vorum með þeim fyrstu sem stigum út úr rútunni og það skipti þá engum togum nema að ég heyri bara “Tommi, þú tekur töskurnar” og svo sé ég bara á eftir Ninna hlaupa inn í flugstöðina, væntanlega til að fara að tefla við páfann.
Svo eftir þónokkurn tíma kemur drengurinn loksins út, búinn að misnota kamarinn allsvakalega, kemur röltandi að borðina þar sem við sitjum ég og 2 félagar okkar. Röltir þetta í rólegheitunum stoppar svo þegar hann á svona 2 metra eftir og snýr við og hleypur í fússi aftur á kamarinn, round two. Aumingja strákurinn, ekki hefði ég nú viljað vera í hans sporum þarna uuuussss. Sitjandi í rútu alveg að drulla í sig vitandi að það eru amk 6 klst í næsta stopp.

Við bræður höfum nú oft hlegið af þessari sögu eftir á en ég efast um að honum hafi verið hlátur í huga á meðan á þessu stóð.

Þangað til næst……

Könnun

Það er ljóst með síðustu könnun að Metallica rokka feitast, enda ekki mikið um væna bita aðra en þá. Enda var þessi könnun sett upp eftir að viðkomandi kom af Metallica tónleikunum og þeir hreinlega rokka feitast. En niðurstöðurnar voru eftirfarandi:

Hljómar 2 – Ekki vissi ég að Rúnni Júll væri farinn að skoða síðuna mína.

Mánar 1 – Það er til fólk í heiminum sem er meira að segja eldra en ég

Ghost Digital 0 – Ef Einar Görn hefði fengið fleiri atkvæði en hann fékk hefði ég misst trú á ykkur

Joanie and the ferrymen 0 – Ekkert kemur á óvart hérna þar sem að ég efast um að þessi hljómsveit sé til og ef hún væri til þá einhvernveginn efast ég um að hún myndi rokka feitt

Trúbrot 2 – Rúnni Júll og félagar hafa verið duglegir að kjósa

METALLICA 11 – Bara 11 af 27 atkvæðum wtf en samt ótvíræður sigurvegari dagsins

Stryper 2 – Þessir spandexklæddu gulu og svörtu glysrokkarar frá níunda áratugnum sem fluttu fagnaðarerindi krists og dreifðu biblíum á tónleikum fengu 2 atkvæði, þakkiði Steina fyrir þau strákar

Thompson Twins 0 – Núll, kommon gææs, þeir eiga nú meira skilið en núll hmmm

Limahl 1 – Já sko kallinn, það eru greinilega einhverjir sem muna eftir kallinum

Wham 5 – Veittu Metallica harða samkeppni og enduðu að lokum í öðru sæti, gott hjá Gogga Mæk og sædkikkinu sem enginn man hvað heitir.

Buttercup 2 – tveimur meira en ég bjóst við en þar sem að Valur og Svavar Áslaugs hafa eflaust kosningarétt hér þá skilur maður þetta nú svo sem

Haraldur í Skríplalandi 1 – Halli P, þetta var ekki meint til þín en Haraldur og skríplarnir þakka fyrir atkvæðið

Svona fór það nú, þá er það bara nýja könnunin og nú er um að gera að vera dugleg að greiða atkvæði aight.

Þangað til næst…….

Ísland vors fagra land

Þessi pistill er í boði Farfuglaheimilis bænda á Svalbarðsströnd…

Ísland, hvað er Ísland? Jú, Ísland er landið sem við búum í. Landið sem að maður var alinn upp við að væri fallegasta land í heimi, með alla þessa fossa og jökla sem ættu sér engann sinn líka í heiminum. Jú jú, vissulega er Ísland fallegt land og allt það og kannski ekkert skrítið að ferðamenn flykkist hingað til að hjóla á 18 gíra Trek hjólunum sínum í roki og rigningu, hvað er betra en það hmmm. Maður getur ekki annað en vorkennt þessum vesalingum þegar maður keyrir framhjá þeim silast á 3 km/h í vegarkantinum með beljandi rigninguna í andlitinu á meðan maður eykur hraðann á rúðuþurrkunum og hækkar í miðstöðinni. Hálfvitar, þá held ég að maður kjósi nú frekar að liggja flatur á sólarströnd einhverstaðar á Spáni.

Svo eru það allar þessar náttúruperlur Íslands. Sjálfur hefur maður nú ekki séð helminginn af þessu nema á póstkorti. Gullfoss og Geysir, staður sem að allir útlendingar koma við á á leið sinni um landið, sjálfur hef ég aldrei komið þangað. Ég hef heldur ekki komið að Dettifossi eða Hvítserk og hvað þetta heitir nú allt saman. Ég hef reyndar komið í Bláa lónið og synt um í flösu og dauðum húð og sáðfrumum af sveittum allraþjóðakvikindum sem leggja leið sína þangað.
Eitt sinn fór ég hringveginn með félaga mínum, við vorum á mótorhjólum og þetta var allt saman rosalega gaman. Keyrðum þar sem leið okkar lá frá Grundarfirði til Reykjavíkur. Ekki mikið merkilegt á þeirri leið enda vorum við búnir að keyra þetta milljón sinnum. Svo næsta dag var það Reykjavík – Höfn í Hornafirði. Stoppuðum hjá Skógarfossi bara svona til að sýna lit og svo hjá frænku minni á Vatnsskarðshólum við Dyrhólaey. Svo var keyrt austur á bóginn og stoppað á Seyðisfirði hjá Sylvíu systir, man ekki eftir að hafa séð neitt merkilegt þar nema blauta malarvegi sem kallaðis þjóðvegur 1. Svo var það Seyðisfjörður – Akureyri, man eftir skilti sem á stóð Ásbyrgi og Dettifoss. Gaf því nú lítinn gaum á 100+ hraða eftir veginum. Svo var það Akureyri – Grundarfjörður og ekki stoppaði maður mikið á þeirri leið nema til að taka bensín og hvíla inngjafarhendina.
Þegar öllu var á botninn hvolft að þá var það eina sem ég á til minningar um þessa ferð voru 2 bankakvittanir um úttekt upp á 5000 kr. Ein í Landsbankanum á Vík og svo ein í Landsbankanum á Egilsstöðum. Þakka Guði fyrir öll þessi póstkort sem sýna manni nú hvernig þessar náttúruperlur okkar Íslendinga líta út.

Eníveis, þá þarf maður kannski að taka sig á og skoða Ísland aðeins betur, kannski að maður renni að Gullfoss og Geysi fljótlega og jafnvel bara á Þingvelli líka svei mér þá…

Þangað til næst……

Foiiij

Spurning hvort maður ætti ekki að reyna að koma með smá krassandu slúður hmmm.

Heyrst hefur…..

að Soffi Nagli hafi á dögunum villst á Carrington lestarstöðinni í London. Soffi var heilar sex mínútur að ná áttum en það gerðist þegar hann fann McDónalds skyndibitastað þar sem hann gat miðað sig út með gps tækinu sínu


Soffi var nokkuð stressaður á tímabili

að hinn tröllvaxni Heisi hafi á dögunum týnt nefinu á sér þegar hann tók of stórann skammt af president.


Heisi var súr með nefmissinn

að samtök þroskaheftra hafi haldið hátíð leðursins um daginn, aðsóknin var framar vonum


Þessi einstaklingur skemmti sér rosalega vel

að Big Goj hafi farið í klippingu og útkoman hafi ekki látið á sér standa.


Big Goj var hress

að Laugi Jónasar hafi byrjað að safna skeggi til að ganga í hinn alræmda skeggjaklúbb.


Laugi og Dóri bróðir hans á góðri stund

að Sössi hafi gert ærlega í brækurnar í fermingarveislu frænda síns nú um daginn.


Sössi (lengst til hægri) tók vel á því í skitunni

að Halli P sé nú að leita sér að nýrri vinnu


Halli P sést hér í atvinnuleit

að Árshátíð prestamanna hafi farið vel fram í alla staði. Vinsæl skemmtiatriði litu dagsins ljós eins og þetta þar sem Ninni Dittu fer með gamanmál


Ninni lét gamminn geysa af mikilli snilld

að þessi nýlega mynd sem náðist af Sleggjunni og nýja kærastanum hennar gefi nú ýmislegt í skin um ástand Sleggjunnar


Sleggjan er ákaflega hamingjusöm eins og sést hérna

að Gústi Alex sé frumkvöðull þegar kemur að nýjustu tísku


Gústi er ávallt flottur eins og sést hérna

að Spítt og kók partý séu nú í öðru hverju húsi á Selfossi


Þessi hafði tekið aðeins of mikið í nefið

að Halli P hafi drukkið hálfum bjór of mikið á laugardaginn var


Halli sefur hér svefni hinna réttlátu

að hinn eiturhressi Siggi Tomm sé mættur á klakann á ný og byrjaður að sukka


Siggi er ávallt hress

að hinn eitilharði Heisi hafi tekið töluverðum breytingum undanfarið eftir að hann hætti í ræktinni.


Heisi lítur nú samt alveg ágætlega út er það ekki?

að Ninni Dittu hafi verið staðinn að því að dansa í herberginu sínu


Ninni steig ekki feilspor í dansinum

að DJ Tiger sé snúinn aftur úr útlegð hressari en nokkru sinni fyrr


DJ Tiger hélt uppi stemmingu á Hrafnistu um liðna helgi

að Beggi Sveins hafi skorað tvennu á dögunum en fengið 50% afslátt vegna þess hvað hann skorar sjaldan


Beggi var hress með afsláttinn

að Rúna Jobba hafi verið staðin að ósæmilegri hegðun á dögunum og sektuð um 350 kr


Þessi ljósmynd dró af allan vafa

Jæja, þetta hlýtur að duga í bili.

Þangað til næst……

Sjitturinn titturinn hóran og mellan marr

Jæja góðir hálsar og tær, mikið búið að hjóla síðan hjólið var keypt, skiljanlega. Þar af leiðandi er ekki mikill tími í annarskonar iðkun, ef einhverjum langar í plain golfsett fyrir slikk þá má hinn sami hafa samband við mig hehehe.

Ég og Viggmundur fórum á 1 2 Selfoss í fyrradag til að gæða okkur á pizzu, líka aðeins svona til að prófa gripinn á þjóðvegum landsins og ég verð nú að viðurkenna að krafturinn gerir mann pínu smeykann hrmpf. Svo fórum við Viggi til Keflavíkur í gær, svona meira til að þvælast bara, veit ekki hvert stefnan er sett í kvöld en allavena reikna ég með að koma vestur um helgina. Kemur í ljós, reyndar er eitthvað ættarmót í Svarfaðardal og spurning um að hjóla þangað með honum Þorra frænda ef að kallinn nenni, kemur allt í ljós eins og skáldið sagði. Frekar svona líbó á þessu.

Frekar rólegt hérna í vinnunni eins og svo oft áður, ég og Raggó erum hérna í chilli að skoða dónasíður á netinu, aðallega Raggi samt djös perrinn.

Annars reyni ég að koma með eitthvað gott slúður á morgun, kemur í ljós samt ehaggi.

Þangað til næst……

Greeky muthafucka

Grikkland Evrópumeistarar, hverjum hefði dottið það í hug fyrir mánuði síðan. Allavena engum sem tóku þátt í könnununni minni um EM því enginn tippaði á Grikkina sem að enduðu sem le winners í þessu grín móti. Heimska varnarlið sem unnu örugglega alla leikina með eins marks mun og náði líklega að svæfa vel flesta áhorfendurna því ekki var þetta skemmtilegt lið uuusss.

Niðurstöður könnunarinnar var svona:

England fengu eitt atkvæði en það má líklega skíra með því að þeir voru fyrsta lið út eftir að könnunin var sett upp

Holland fengu 2 atkvæði sem er nú óvenju lítið miðað við annars ágætt lið sem komst í fjögurra liða úrslit

Grikkir fengu ekkert atkvæði eins og áður sagði

Svíarnir fengu heldur ekkert.

Frændur okkar frá baunalandi fengu 1 atkvæði, líklega frá Lauga

Frakkarnir fengu líka 1 atkvæði en lengi vel voru þeir sigurstranglegir, atkvæðið er líklegast frá Big Goj sem hafði tröllatrú á Zídan og félögum

Tékkarnir fengu 8 atkvæði enda gríðarlega sterkir en bara ekki nógu sterkir

Heimamenn í Portúgal fengu 9 atkvæði enda komust þeir nú í úrslitin og með gríðar gott lið með Fígó og Rónaldó í broddi fylkingar

1 kjósanda fannst þetta vera orðið þreytt og lái honum hver sem vill

Vinsælast þótti fólki að haka í reitinn sem sagði mér að þegja. Hvað er það??? Er ég svona leiðinlegur eða? Sniff, nú fer maður bara að hætta að blogga…. hehehe nei aldrei. Þið þarna 12 sem sögðuð mér að þegja… Right back at you mutha fuckas múhahhahahaa, þið losnið ekki svo auðveldlega við mig.

Eníveis ný könnun komin, só vót or flót aight

Þangað til næst…….

Sjiiiiiiitttt

Þessir tónleikar eru án nokkurs vafa þeir allra svakalegustu sem ég hef farið á. Djöfull voru þeir góðir marr uuuusss. Maður hékk þarna kófsveittur með andarteppu 2 metrum frá sviðinu í þvílíkum gír. Aldrei upplifað annað eins. Svo náði kallinn í eitt stk gítarnögl frá Hetfieldnum marr og Rúna náði að grípa aðra gítarnögl, þvílík snilld, ííííííííhaaa.

Þarna voru nú líka fleiri kátir kallar í gír, menn eins og Maggi Jobba, Steini Jobba, Ninninho, G.Alex, Big Goj, Soffi og fleiri snillingar og sirkabát 17.993 í viðbót í öskrandi stemmingu.

Annars er maður bara í vinnunni núna að græja allskyns gút sjitt, verð vonandi kominn á nýtt faratæki í kvöld en það kemur nú bara í ljós.

Þangað til næst…..