Metallica

Já kallinn skellti sér á Some kind of monster í gær sem er jú nýja heimildarmyndin um Metallica og ekki varð kallinn fyrir vonbrigðum þar. Þvílíkt góð mynd verð ég að segja og hafði maður mjög svo gaman af þessu. James og Lars í einhverri tilfinninga sálarkreppu með einhvern ráðgjafa til að greiða úr öllu saman, mæli með þessari mynd fyrir alla Metallica aðdáendur. Svo eru bara tónleikarnir á morgum marr uuuussss. Djöfull hlakkar mig til. Þetta verður eitthvað svakalegt.

Annars var þessi bíóferð samt frekar dularfull. Ég Önkel Dave og Big Goj skelltum okkur í bíó sem væri nú ekki frásögum færandi nema að svona sirkabát í miðri mynd heyrist einhver þungur dynkur eins og einhver hefði þrumað körfubolta í vegg. Flestir bíógestirnir tóku nú eftir þessu en þá hafði einhver gaurinn bara fengið flogakast á miðri mynd. Eitthvað lið fór að stumra yfir honum og á tímabili leist okkur félögunum ekkert á ástandið. Þegar setningar eins og “hann er svo blár” og “passaðu tunguna” fóru að heyrast. Sýningin var stöðvuð og hringt var á sjúkrabíl, sem bæ ðe vei voru ótrúlega snöggir á staðinn og gátu hlúð að hinum flogaveika. En eníveis þá var þetta frekar krípí sjitt. En svo hélt myndin bara áfram eins og ekkert hefði ískorist.

Svo er það bara El Blúó Lagúnó á eftir með Soffa og Signý þar sem að Signý er eitthvað að fara að módelast og ég og Sófus ætlum í kísilleðjuslag aaaaight. Svo er allt krúið á leiðinni í bæinn vegna tónleikanna og maður bíður spenntur að sjá andlitin á Ninna, Gústa bró, Steina, Magga ofl góðum Grundfirðingum en eins og ég hef nú einhverntímann sagt að þá er Grundarfjörður fallegasti staður í heimi og NAFLI ALHEIMSINS og ekkert bull.

Smelliði bara á myndina og sjáið bara:

Jæja, Tomminn óskar landsmönnum öllum gleðilegra kjóla og farsældar á komandi hári… eða þannig

Þangað til næst……..

Afmæli…

Hann Soffi minn er afmælisbarn dagsins enda drengurinn orðinn 23 vetra. Ég vil biðja alla velunnara Soffans að fara inn á heimasíðuna hans og gefa kallinum comment í tilefni dagsins, þ.e. þeir sem tíma ekki að gefa guttanum gjöf hehehe. Sjálfur á ég nú eftir að versla eitthvað sætt handa honum, þá eru það eftirfarandi gjafir sem koma sterklega til greina….


Soffi yrði pottþétt ánægður með þetta


Tjah eða þetta


Jafnvel einn svona


Eða svona flotta veiðistöng


Eða jafnvel svona röff töff stígvél

Já möguleikarnir eru endalausir. Vinsamlegast komið méð ábendingar um góða afmælisgjöf hérna í commentakerfið hjá mér. Bara svona rétt til að hjálpa mér í þessari erfiðu leit að góðri gjöf fyrir góðann vin hmmm.

Þangað til næst…..

Jæja….

Þá er best að koma með smá slúður í tilefni af einstaklega vel heppnaðri viku.

Heyrst hefur……

að nýr meðlimur hafi bæst í hljómsveitina Skímú, en það ku vera enginn annar en piparkökudrengurinn margfrægi.


Piparkökudrengurinn var sáttur á fyrstu æfingunni

að Dabbi Hlíðkvist hafi borgað 18.500 kr hjá Tóní og Gæ fyrir þessa forláta klippingu


Dabbi er rosalega svalur með nýju greiðsluna

að Steini Jobba og Haddi Haus hafi ruglast ærlega í ríminu, málið var að þeir rugluðust á gröfu og kamri, hversu fríkí er það?


Strákarnir vildu ekki ræða þennan “litla misskilning”

að geitin Karólína hafi á dögunum skellt sér í meiraprófið


Karólína var sátt með útkomuna en hún rétt náði með 73 villur

að Lísa Hafnarfjarðar skvísa hafi komist í feitt þegar hún höstlaði D***a Hlíð****t um daginn


Lísa og Höstlið á góðri stund

að nýr tannrótarsjúkdómur herji nú á Hafnfirðinga, landlæknisembættið segir að líklega sé þetta eitthvað í vatninu en hafnfirðingar eru jú þekktir fyrir að leiða klóakið í vatnsbólið sitt


Ónefndur Hafnfirðingur sýnir hér bólgna góma

að sumir séu einfaldlega vangefnari en aðrir, því miður.


Þessir tveir eru ávallt hressir

að megaljóskan Ellen hafi á dögunum pumpað 98 okt bensíni á diesel bílinn sinn


Ellen vildi skiljanlega ekki tjá sig um þetta mál

að Tomminn sjálfur hafi sést í vafasömum stellingum niðrí bæ


Tomminn verður skömmustulegur ef þú minnist á þetta við hann

að Tommi hafi samt fundið ástina á ný


Svekk fyrir ykkur hinar piparjúnkurnar en þá er þessi fugl floginn

að ný hjálpartækjabúð hafi verið opnuð í Ólafsvík, það er engin önnur en Fanney Dóra sem hefur stofnað þetta og aðspurð sagði hún að það væri löngu kominn tími á þetta enda 90% Ólsara karla getulausir


Fanney er hér að aðstoða fjórtánhundruðasta viðskiptavininn

að Austfirðingar hafi séð sig knúna til að grípa til viðeigandi ráðstafana þar sem að ökuníðingurinn Ívar Karl aka Íbbi Schumaker hafi flust búferlum austur.


Þetta er ekki óalgeng sjón austur á héraði

að Tríó Gústa Leifs sé að meika það


Tríóið á gríðarlegum vinsældum að fagna á Reyðarfirði

að Sumir eigi það til að nota aaaaðeins of mikið af snyrtivörum


Ninni Dittu er einn af þeim

að Sumir verði að fara að hægja á sér í drykkjunni


Þessi drakk einum of mikið

að Maggi Jobba hafi farið full geyst í freyðivínsflöskuna sem Steini Jobba gaf honum


Maggi var frekar þunnur á því daginn eftir

að Svavar Áslaugs geti orðið helvíti ruglaður þegar hann dettur í það


Myndin talar sínu máli

að Tommi eigi sér dyggan aðdáendahóp sem fylgir honum hvert sem er


Þessar fýsur eru æstar í Tommann

að Heisi hafi pumpað yfir sig


Heisi er ófrýnilegur að sjá

að Laugi Jónasar hafi skellt sér í Árbæjarlaugina um daginn


Laugi karlanginn fékk eitthvað í magann í miðri sundferðinni

að Big Goj hafi fundið upp hið fullkomna dulargervi


Big Goj er algerlega óþekkjanlegur

að nýja lúkkið hennar Evu Sleggju sé helvíti nett


Eva er montin með lúkkið

Jæja, nenni ekki að bulla meira, enjoy

Þangað til næst…..

Vlúbrikant

Ef ég væri Forseti þá myndi ég gefa öllum krökkunum sóló….

Muniði eftir þessu?

Neeeei bara svona að pæla…

Það er fullt í gangi hjá kallinum þessa dagana. Heimskulega fjárfestingin mín er vonandi alveg að ganga í gegn, þori ekki að skíra frá því fyrr en það er orðið 110% öruggt. En hvað sem það verður þá verður það gaman. Þetta veltur allt á einni undirskrift og ef maður nær að væla hana í gegn… tjah já sjáiði bara til.

Var að koma af æfingu, sem væri nú ekki frásögum færandi nema að það er ekkert voðalega gáfulegt að horfa á fótboltaleik, borða 6 sneiðar af pizzu, drekka 1 líter af kóki og fara svo á erfiða fótboltaæfingu, var með æluna í hálsinum allan tímann… burp. Náði nú samt að setja nokkur mörk þó maður hafi verið þungur á sér hehehe en reikna ekki með að gera þetta aftur og mæli ekki með þessu fyrir nokkurn mann.

Hollendingarnir með Rút Van Nístilskúnk í fararbroddi duttu út fyrir sprækum Portúgölum í kvöld, Rónaldó og Maníche skoruðu fyrir Prumpugal og svo var það Goggi Aldraði sem skoraði sjálfsmark fyrir Dútskí Hollenskí. En samt fjörugur leikur þar sem var nóg aksjón.

Veit ekki hvað ég á að bulla meira, skulda 2falt föstudagsslúður næst þannig að eins gott fyrir fólk að vera búið að taka nóg af myndum sem ég get stolið… múhahahaha.

Þangað til næst……

Rólegur dagur

Well well well, allir á shell, ég og Uncle Dave hyggjum á ferð á heimildarmyndina um Metallica í kvöld, some kind of monster. Held að það sé væs múv þar sem að kapparnir eru víst á leiðinni á klakann. Sjiiiiittt hvað það er stutt í þetta. Ég man þegar maður var í 9 og 10 bekk hvað maður dýrkaði þessa kalla marr uuuussss. gút tæms marr.

Svo er maður líka að rembast við að fjárfesta ógáfulega, það gengur svona upp og ofan. kemur í ljós í lok vikunnar eða í byrjun þeirra næstu. Vonandi.

En eníveis þá verður Tomminn hryggur af því að sjá hvað fólk er latt við að commenta á mann hérna. Sjálfur vafra ég um netið og skil sjaldan eftir mig færri en 32 comment á hverri síðu hrmpf ehaggi. En endilega takið ykkur nú á í commentunum hérna, óþarfi að vera feiminn við Tomma sinn. Ég bít ekki enda grænmetisæta á háu caliberi.

Að lokum eru svo hér 10 aðferðir við að drepa tímann þegar lítið er að gera í vinnunni…

01. þræða internetið í leit að hinum fullkomna tetris leik
02. skoða alla bíómynda trailerana á apple.com
03. snyrta táneglurnar undir deskinu hjá þér
04. gera símaat hjá opinberum ríkisstofnunum
05. telja kaffiblettina á borðinu hjá samstarfsmönnunum
06. skrifa harðort e-mail til grænfriðunga um illa meðferð á mörgæsum
07. telja allar heimasíður sem enda á .com
08. láta sig dreyma um betri tíð með blóm í haga
09. adda inn á msn hjá sér random hotmail.com netföngum og sjá hvað gerist
10. opna batman.is og mbl.is á 2 mínútna fresti og sjá hversu oft þeir uppfæra

Vonandi að þetta geti hjálpað fólki eitthvað við að drepa tímann..

Þangað til næst……

In a little while

Hmmm, kominn aftur í borg óttans, leiðinlegt en samt ekki. Fór í fótbolta með Rúnu kl 23:00 þegar við komum og vorum að leika okkur á malbiksvelli sem er fyrir ofan húsið mitt. Enduðum á vítaspyrnukeppni þar sem að síðasta spyrnan sem Rúna tók fór 6 metra yfir markið ala Becks og endaði uppá þaki hjá fólkinu við hliðiná. Líklega ekki það vinsælasta að hrökkva upp af værum svefni við þungan dink þegar komið er fram yfir miðnætti hmmm. Snillingur hún Rúna.

Svo heyrði ég ótal sögur af öðrum snilling frá Vopnafirði sem lætur mann veltast um af hlátri. Spurning um að láta eitthvað af þeim flakka hérna á blogginu. Veit ekki alveg hvort ég kann við það en það verður allavena ekki alveg strax hmm.

Svo var ég að lesa bloggið hennar Völlu sem er linkað á hérna til hliðar þegar allt í einu að litla hjartað mitt tekur kipp. Þá lýsir Valla því bara yfir að Grundó sé barasta fallegasti staðurinn á Íslandi sem hún hefur komið til, sniff, takk Valla. Maður hálf klökknaði bara af því að lesa þetta.

Þangað til næst……

Það hlaut að vera….

Þá hefur það komið í ljós. Pavel Nedved, drifmaskína í tékkneska landsliðinu er hluti af x-men grúppunni. Aðspurður sagðist Pavel hafa stökkbreyst þegar hann bauð sig fram í tilraunir með beinmergsog aðeins sex ára að aldri. Stökkbreytingin hefur heldur betur reynst Pavel vel í atvinnu hans sem tuðrusparkari en hann er einn af fremstu knattspyrnumönnum í heimi. Þegar rökkva tekur þá fer Pavel og berst við hlið Wolverine við ill öfl í heiminum.

Tommi, alltaf sjötti með heitustu fréttirnar.

Lesa má meira um þetta —HÉR— þar sem að þessi heimild fékkst hehehe.

Þangað til næst……

Sjæse blæse mæse

Portúgal slóge ze Engrish út úr keppninni í vító. Gamlar fréttir þar sem að Ze Engrish hafa ekki unnið vítakeppni síðan sautjánhundruð og súrkál. Meistari Becks gaf tóninn með spyrnu rétt yfir slána (c.a 8 metra yfir) og reyndi svo að kenna vítapunktinum um klúðrið sitt, gút for him. Hvernig ætli fyrirsagnirnar verði á morgun? Annars var markvörðurinn hjá Portúgal helvíti svalur. Varði síðustu spyrnuna berhentur og tók svo úrslita spyrnuna fyrir Portúgal strax á eftir og hamraði leðrið í netið. Helvíti nett þar sem að hann tók öruggasta vítið. Englendingarnir voru áður búnir að hamast við að skjóta í mitt markið hjá honum kall greyinu en bling blingarnir í Por fóru með sigurð af hólmi eins og áður sagði og sigurður biður bara að heilsa.

Þangað til næst……