Föstudagur til frægðar

Jójójójó leidís end djentelmen, Haldiði barsta ekki að kallinn hafi slúttað önninni með stæl í morgun, fór í þetta munnlega spænskupróf hjá hinni sætu Carmen og að sjálfsögðu var allt þetta stress til einskis. Hasta la vista baby og ég veit ekki hvað og hvað. Me llamo Tomas y yo vivo el Kopavogur. Je beibí je.

En þá er komið að hinu margfræga föstudagsslúðri og er af nógu að taka.

Heyrst hefur…..

að hinn margt sniðugi Tommi hafi greinst með tourette einkenni og fljúgi nú hvert blótsyrðið á fætur öðru á Álfhólsveginum.

Eins og sjá má þá er þetta grafalvarlegt mál

að hinn dansk ættaði Laugi hafi smitast af Tommanum og sé öllu verri.

Þessar myndir náðust af Lauga þar sem hann var bölvandi og ragnandi í fermingarveislu frænda síns

að BigGoj hafi fengið leið á sveitalífinu á Íslandi og ákveðið að flytjast búferlum til Alabama og gerast hardcore redneck. Ekki er vitað hvaða frændsystkini hann tók með sér.

BigGoj er sáttur með nýja lúkkið

að Soffi hafi tapað mojóinu í veðmáli við djöfulinn.

Soffi var fúll á móti þegar ljósmyndarinn smellti þessari

að Laugi hafi overdozað af coke um síðustu helgi og bíði þess seint bætur.

Laugi var nett slétt flétt geggjaður af þessu ofurefni

að Viggi Runna hafi dottið all hressilega í það um daginn og gert agalega stórann skandal.

Viggi er víst gefinn fyrir sopann

að skandallinn sem Viggi gerði… tjah er nú varla lýsingarhæfur en myndin talar sínu máli.

Eins og sjá má hér þá er Viggi í vondum málum

að Viggi beri af sér allar sakir.

Viggi vildi ekkert tala við blaðamann

að Tommi hinn mikli hafi messað aldeilis yfir líðnum á fundi jafnaðarmanna síðasta laugardag. Tommi var ansi kröftugur á fundinum og var að lokum valinn ræðumaður kvöldsins.

Verst að það mættu ekki fleiri en 5 á fundinn

að Laugi sé óléttur og sé kominn 3 mánuði á leið, aðspurður sagðist hann hafa orðið himinlifandi þegar clearblue óléttuprufan varð blá.

Laugi sýndi bumbuna stoltur

að Bjössi Kolla ofurvélstjóri sé ansi hrifinn af bekknum á vinnustaðnum.

Bjössi í sinni vanalegu stellingu

að Ninni Dittu hafi farið í klippingu og árangurinn hafi ekki látið á sér standa.

Ninni er óvenju flottur með nýju greiðsluna

að Simmi hafi sigrað í hinni árlegu kleinuátskeppni kvenfélagsins.

Simmi gúmlar í sig síðustu kleinunni af 467 kleinum

að Viggi Runna hafi ekki alveg fattað brandarann sem Tommi sagði honum um daginn.

Eins og sést greinilega hérna þá er hlátur Tomma algjörlega ósvikinn á meðan Viggi rembist við að pína fram bros

að Simmi hafi fundið nýjann lífsförunaut á einkamál.is

Hamingjan skín af félögunum

að Simmi sé samt orðinn það drykkfelldur að hann stofni hinu nýstofnaða sambandi sínu í mikla hættu.

Þessi mynd er tekin kl 11:34 fyrir hádegi

að Hercule Paroit sé kominn á kreik til að rannsaka hvernig Laugi varð svona kasóléttur.

Hr Hercule var ekki sáttur við þessa málalyktan

að Rutla litla hafi þénað það mikið að hún hafi þurft að greiða hátekjuskatt.

Rutla við aukavinnuna sína

að Soffi fýli kúk og piss húmor.

Soffa fannst rosalega fyndið þegar Signý leysti vind

að Soffi hafi farið í fýlu þegar Signý vildi ekki endurtaka leikinn.

Soffi fór ekki leynt með fýluna

að Tommi og Soffi hafi farið í aðgerð og látið sauma sig saman á eyrunum.

Þeir félagarnir eru alveg óaðskiljanlegir þessa dagana

að Signý sæta hyggi á frama sem poppdíva og hefur nú sparkað ferlinum af stað með því að syngja á árshátíð samkynhneigðra bænda.

Signý var grand á því rétt áður en hún steig á sviðið

að ónefndir BT starfsmenn leggi mikið uppúr að ná sem mestri nánd við viðskiptavini sína

Drengirnir með einn kúnnan inná klósetti

að S.Rósa hafi drjúgan skilding uppúr því að auglýsa colgate tannkrem.

Fyrsta auglýsingin af 9 lítur svona út

að Lebbi Kex ofurrokkari taki oft bítið og fríki út.

Lebbi var flottur á því

að Hilli hafi ekki getað leynt vonbrigðum sínum þegar Danní Mörfí skoraði enn einusinni sigurmarkið fyrir Lifrapoll á Óld Trafford.

Hilli var vonsvikinn eins og við hinir

að Hemmi Scooter sé svo snöggur að bora í nefið að enginn taki eftir því.

Það er ekki einusinni hægt að ná athöfninni á mynd

Jæja, þetta er orðið gott í bili. Enn og aftur vil ég benda fólki á það að þeim sem ætla í mál við mig er bent á að sleppa því bara og kíkja frekar til mín í kaffi og við getum rætt málin ok

Þangað til næst…….

Dansk det er dajlight

Jááááááááááá góðir hálsar, haldiði barasta ekki að kallinn hafi þrumað sér í munnlegt próf í dönsku í morgun, sem væri nú ekki frásögum færandi nema það að maður kann ekkert í dönsku. Áttum semsagt að lesa einhverja bévítans sögu um gamlan róna sem heitir Alfred sem sótti sinn félagsskap í litla drengi. Renndi yfir söguna í hádeginu c.a. 30 mín áður en ég átti að fara í prófið. Fór svo í þetta blessaða próf, frekar svona þrungið andrúmsloft og smá stress í kallinum en það var nú fljótt að hverfa skal ég nú segja ykkur, þarna sem ég stóð á gólfinu fyrir framan kennarann þá fékk ég danska vitrun. Hugljómun ef ég má orða það þannig. Mér varð allt í einu hugsað til hans Lauga vinar míns sem tekur oft upp á því að verða danskur svona þegar síst er von á. Haldiði bara ekki að kallinn hafi fengið blístrandi munnræpu á dönsku, röflaði heil ósköp um þessa blessuðu sögu og fór mikinn. Endaði svo á því að kennarinn þurfti nú bara að stoppa til að fá að spyrja mann einhverjar spurningar úr sögunni en minn hélt nú ekki, bannað að stoppa kallinn þegar hann er on a roll. For helvede, ja far det da i satan helvede og aðrar svoleiðis fleygar línur fengu að fjúka ala Jenni Danski hérna í frystinum í denn. Svo kom maður með nokkrar svona knulle mig fleygar Lauga setningar. Og haldiði barasta ekki að kallinum hafi verið hreinlega sparkað útúr stofunni með 8 í farteskinu hehehe. Kaaaaaalllinnn sko, blístraði þessu af á nó tæm og fékk 8 fyrir, rétt eins og að drekka sítrónusafa dry. Nokkuð sáttur með þetta.

Svo lenti maður í undarlegri lífreynslu í mötuneytinu í dag. Þannig er mál með vexti að það er einhver snargeðveikur gæi í skólanum. Gengur alltaf í þykkri úlpu með hettuna upp og er alltaf í þykkum vettlingum.
Við sátum þarna, vanalega gengið og vorum að spjalla eins og svo oft áður en þá ber þennan fyrrnefnda geðsjúkling að. Hann fer eitthvað að sniglast þarna í kringum ruslaföturnar því hann er með einhverja dularfulla kóktappa áráttu, en hann virðist þurfa að ná í flesta þá kóktappa og já flöskur líka sem hann getur náð í. Eníveis að þá er þessi gæi eitthvað að sniglast þarna og svo viti menn, barabímmbarabúmm teygir kallinn sig bara ekki ofan í rusladallinn og nær sér í hálfétna samloku, bara svona eins og ekkert væri sjálfsagðara. Svo tekur hann sig til og byrjar bara að éta gripinn með góðri list. Allir í mötuneytinu göptu bara af undrun, svo virðist sem eitthvað hafi verið farið að slá í samlokuna því að eftir nokkra bita byrjar gæinn bara að kúgast og hrækja ofan í ruslið. Uuuuussss ég hef bara aldrei séð annað eins marr. OJ For helvede eins og hann Alfred vinur minn hefði orðað það svo nett.

Jæja, fólk. Minni enn og aftur á að þið kíkjið á hann Lebba vin minn og lesið það sem hann hefur fram að færa. Mjög fyndnar pælingar hjá kallinum.

Þangað til næst…..

Gerrard til Man Jú

Hafiði heyrt aðra eins vitleysu? Fyrir það fyrsta þá er bara móðgun að vera að orða einhverja Lifrapollskalla við Man Jú og svo öfugt. Hvað þá aðal stjarnan þeirra og sá eini sem er búinn að sýna eitthvað af viti í allan vetur. Ef að Lifrapollurinn myndi selja Gerrard yrði Húllíer ráðinn af dögum, ef að Lifrapollurinn myndi selja Gerrard til Man Jú þá yrði Húlli gamli ráðinn af dögum með því að troða kjarnaoddi inní anusinn á honum. Sjitt hvað kallinn yrði krossfestur.

Þessi frétt var á manutd.is og vakti að sjálfsögðu athygli mína. En þegar ég sá hver heimildin var þá gat maður nú ekki annað en bara brosað út í annað, auðvitað var það hinn gríðargóði fjölmiðill THE SUN sem stóð fyrir þessu. Álíka mikið til í þessu eins og að Tómas F Kristjánsson væri á leið til Man Jú fyrir metfé. HNUUUUSSSS.

Kallinn var flottur á því í dag þegar hann leit út um gluggann. Glampandi sólskin og ekki bærðist neitt tré í garðinum hjá kellu sem á íbúðina. Uuuuusss þvílíkt glimrandi veður hugsaði maður með sér. Fór í kvartbuxurnar og bol og var svona nett sportlegur á því. Fór svo út og komst að því að það var ekkert svo rosalega hlýtt. 8 stiga hiti. Æi fokk itt, fór bara samt svona og var bara svalur á því hehehehe.

Annar var ég í íslensku áðan og þá var einn gæinn sem átti eftir að flytja verkefni. Verkefni þetta var yfirleitt unnið í hópum og skiluðum ég og minn hópur þessu af okkur í síðustu viku og fengum 9 fyrir. Þessi náungi var bara líbó á því, var bara einn, skýrði frá höfundi ljóðsins og svona og stóð sig bara vel. Svo kom að flutningi ljóðsins og þá tók gæinn sig bara til og söng það sjálfur, aleinn fyrir allan bekkinn og stóð sig bara vel. Fyrst þegar hann byrjaði þá sökk maður svona ofan í sætið og skammaðist sín pínu fyrir hans hönd, svona hvaðerannaðspá hugsanir, en hann náði svo sannarlega að skila þessu af sér og þurfti sko ekkert að skammast sín neitt því hann söng bara helvíti vel, og á heiður skilinn fyrir að hreinlega þora þessu og hananú.

Landsleikurinn á eftir, kók, snakk, pizza, súkkulaði, sófi, sveittartæruppíloft, franskar, BigGoj, lazyboy, nennekkiaðtakatildrasláborðinu, pepsi, svekkelsi, Eiðurekkimeðfýla, HemmiHreiðarstöffarierfyrirliði, rassaklór, grátur, hlátur, fýlasigíbotn.

Spurning hvernig þetta fer hmmmm.

Þangað til næst…….

Ja hérna hér, ég verð

Ja hérna hér, ég verð nú eiginlega að benda fólki á að kíkja á síðuna hans Lebba og lesa það sem hann hefur fram að færa. Á mjög einlægan en samt fyndinn hátt segir hann frá sínum neyðarlegustu atvikum, maður getur nú ekki annað en glott út í annað og kannski bara fylgt fordæmi hans.

Mitt allra neyðarlegasta atvik átti sér stað sumarið sem ég keypti mótorhjólið mitt. Ég var ægilega svalur með leðurgallann og hjálminn með litaða glerinu og var ægilega ánægður með sjálfann mig, svo vorum við á rúntinum ég og Hörður vinur minn en hann var á Hondu CBR racer hjóli en ég á Hondu Shadow Hippa. Svo erum við á ljósum á miklubrautinni og erum á beygjuakrein. Svo kemur grænt ljós og Hörður kippist af stað á undan umferðinni sem kemur á móti en undir venjulegum kringumstæðum ætti maður að bíða eftir að umferðin á móti færi fram hjá en vegna snerpu racersins skýst Höddi á undan öllum. Og ég í sakleysi mínu dóla á eftir honum án þess að hugsa út í neitt. Svo á miðri leið átta ég mig á því að bíllinn sem kemur á móti mér er í rétti þannig að ósjálfráð viðbrögð mín verða til þess að ég bremsa, en um leið bremsar hann líka og þá gef ég í, en um leið gefur hann í og þá negli ég niður og flýg á hausinn eins og asni. Ég held ég hafi aldrei skammast mín eins mikið og þarna. Stend upp á götunni og örugglega sona cirkabát milljón bílar, allir að glápa á þennan aula sem kann ekki að keyra mótorhjól. Ég reif hjólið upp og teymdi það skömmustulegur upp á næstu umferðareyju og langaði mest til að hverfa ofan í jörðina. Þakkaði Guði fyrir svarta hjálminn minn með gyllta glerinu sem ekki var hægt að sjá í gegnum.

Annað vandræðalegt móment var þegar ég var unglingur og var að vinna við að pilla rækju í frystihúsinu á Grundarfirði ásamt flestum krökkunum á mínum aldri. Þetta var þegar við vorum c.a 14 – 15 ára og ægilega miklir vitleysingar.
Þannig var mál með vexti að rækjubandið var inní svona herbergi og c.a 5-6 krakkar sátu sitthvoru megin við það og helmingurinn af liðinu sneri baki í hurðina, og sá þar af leiðandi ekkert ef verkstjórinn var að nálgast. Þetta skiptið sat ég á móti Dabba frænda mínum og ég var í eitt af fáu skiptunum að reyna að vera duglegur (vanalega var maður að fíflast eða kjafta). Dabbi var nú ekkert á því og var alltaf að laumast til að henda í mig eins og einni og einni rækju, fyrst um sinn lét ég þetta mig ekkert varða og hélt bara áfram að pilla rækju. En Dabbi lét ekki segjast og hélt áfram að kasta einni og einni rækju í mig og á endanum hitti hann einni rækjunni beint í augað á mér og þá var mér nóg boðið. Ég get orðið frekar skapstór annað slagið og þarna var mínum nóg boðið, gríp eina lúku fulla af rækjum og bomba þeim svoleiðis í Dabba, en í því sem ég er nýbúinn að sleppa rækjunum og Dabbi reynir að forða sér undan þeim þá er gripið harkalega í öxlina á mér mjó kvenmannsskessurödd öskrar “Langar þig að verða sendur HEIM” UUUUUSSSS hafði þá ekki verkstjórakerlingin endilega þurft að labba inn á þessu augnabliki. Allir krakkarnir við bandið hörfðu stífum augum ofan í rækjubandið á meðan ég reyndi að stama einhverjum afsökunum út úr mér með litlum árangri. Eldrauður og sveittur fékk ég nú samt að halda áfram að vinna þennan dag þó ég hefði frekar viljað hreinlega bara hverfa.

Þetta voru mínar skömmustu sögur en ég mæli með því að þið kíkið á Lebbann og brosið út í annað 😉

Þangað til næst…….

Nýtt lúkk á kallinn

Háar fjárhæðir strauaðar af kortinu í dag þar sem að kallinn þurfti að kaupa sér ný gleraugu. Fékk 2 fyrir 1 tilboð hjá Sjón á laugarveginum og tók ein venjuleg gleraugu og 1 sólgleraugu. Þjónustan þarna hjá Sjón alveg til fyrirmyndar. Kallinn hress á því og svo voru bara skutlur að vinna þarna sem snerust í kringum mann og leiðbeindu manni við val á umgjörð og svoleiðis. Mæli með að allir sem þurfa svona augnþjónustu skelli sér í Sjón á Laugarveginum.
Fór svo í linsumátun við hliðina á Sjón og fjárfesti í 2 pörum af litalinsum þannig að maður ætti að ver set fyrir sumarið. Hellings munur að sjá allt í einu miklu betur enda hafði sjóninni hrakað um 0.5 😦

Fínasti skóladagur í dag, vaknaði kl 07:03 og hentist í sturtu, fór svo um 10 mín í 8 og mætti á réttum tíma í Félagsfræði til Guðlaugs. Skilaði ritgerðinni minni sem bæ ðe vei tók min um 58 mín að klára (vonandi yfir 6 í einkunn). Fór svo í kaffi, gleymdi að borða, þannig að eina sem maður lét ofan í sig var ein drykkjarjógúrt og 7+ kaffibollar í dag. Fór svo í eyðu og ætlaði að vera voða duglegur að læra undir Eðlisfræði próf en ákvað bara að beila á því og drekka frekar kaffi með henni Ástu brettarudda. Fór svo í próf og stóð mig ekkert voðalega vel, enda skiptir það ekki öllu þar sem að ég var kominn með nokkuð góða vetrareinkunn hvort eð er hehehe. Svo var það hádegismatur og enn gleymdi maður að borða, hékk í matsalnum, drakk kaffi og skiptist á kúkasögum við félagana (kannski ekkert skrítið að maður hafi ekki haft neina list). Svo var það bara fokking danska. Svo eftir skóla var það þetta blessaða gleraugna stúss og svo loks fattaði maður að maður hafði steingleymt að borða og kl orðinn sex. Jæja, er nú sem betur fer búinn að næra mig núna annars væri maður nú örugglega steindauður.

Hvað kallar maður úrsmið, sem tekur úrið af hendinni á manni, gerir við það á 2 mín og lætur það svo aftur á hendina á manni og neitar að þiggja krónu fyrir??? Jú mikið rétt, maður kallar hann Gilbert úrsmið sem er einmitt staðsettur við hliðina á Sjón, Þvílíkur endemis dásemdar karl. Það var nú samt ekkert mikið að úrinu en það er sama. Góð þjónusta og fær hann hæðstu meðmæli.

Nú er maður farinn að skakklappast hækjulaus og gengur það svona bærilega, þetta er allt að lagast og maður bíður í ofvæni eftir að geta farið aftur að spila fótbolta og slasa sig meira, enda með því skemmtilegra sem maður gerir.

Þangað til næst…….

Votts kúkking in ðe breinháááás

Mánudagar til mæðu, var það ekki einhvernveginn svoleiðis? Þurfti að klöngrast á hækjum í skólann í morgun og var það frekar pirrandi. Er samt að lagast og losna því örugglega fljótlega við þær.

Fer í fokking munnlegt próf í dönsku á morgun og ef það er einhver þarna úti sem á ritgerð um samkynhneigð, fátækt eða eitthvað svoleiðis sjitt fyrir fél 202 þá er hinn sami beðinn um að koma henni til mín hið snarasta.

Helgin var frekar róleg, eins og alltaf, svo virðast flestir lesendurnir hér vera á því að ég eigi bara að halda áfram að vera edrú hmmm. Það er nú samt kominn einhver svona vorfiðringur í mann helvítis djöfull. Sé til hvað maður gerir.

Síðasta vikan í skólanum er að líða es ví spík og svo byrja prófin næsta mánudag. Ég fer í slatta af prófum og verð búinn 12 maí, svo er bara að sjá hvað tekur við hjá manni hmmmmmmm. Járni vinur minn kvartaði við mig yfir lélegri mætingu í boltann í gær. Þetta er náttúrulega engan veginn nógu gott að það mæti 5 manns af 14 sem borga. Svo var ég búinn að bjóða nokkrum aukamönnum og þar mætti bara 1. Hnuuuuusssss, taka sig á, ég held samt að maður sé nú löglega afsakaður frá svona hreyfingu um sinn.

Svo var hann Lebbi vinur minn sem vinnur með mér að byrja að blogga og að sjálfsögðu fær hann link hjá mér enda mikill snillingur þar á ferð.

Þangað til næst…….

Tónleikasumarið…

Síðustu fregnir herma að tónleikasumarið verði ansi hreint fínt.


Smellið á myndirnar til að stækka

Uuuuuussssssss hvað þetta verður fínt.

Annars er maður bara skroltandi um á hækjum núna 😦

Eins og þið sjáið þá er kallinn ansi hreint bólginn, helvíti slæmt.

Asnenal voru að tryggja sér enska meistaratitilinn og óskar maður Ívari Karli, Begga Sveins, Jóa Svans og fleiri Asnenal mönnum til hamingju með það. Njótið þess vel í þetta eina ár sem þið hafið hehehe. Asnenal eru reyndar búnir að sýna það að þeir eru vel að þessu komnir og hafa borið höfuð og herðar yfir önnur lið í deildinni.

Jæja, ætli það sé ekki besta að halda áfram að góna á Real vs Barca á SÝN…

Þangað til næst…….

Leiðindadagur

Man Jú lá á gömlu torfunni í dag fyrir Lifrapollinum 1-0 með marki frá Danny Murphy (hverjum öðrum) Sjæt. TIL HAMINGJU PÚLLARAR og þar hafiði það. Ég get þó allavena tekið ósigrinum eins og maður sem beygir sig eftir sápunni í sturtuklefanum í San Quentin. En leikurinn var hvort eð er hundleiðinlegur á að horfa og bæði júnæted og lifrapollurinn voru að spila frekar varfærnislega, alveg þangað til að hinn gríðarskemmtilegi (Liverpool’s fan’s favourit) Gary Neville strauaði Stífen Djerrard inní vítateig og réttilega dæmd vítaspyrna. Eftir það virkuðu lifrapollsmennirnir nokkuð frískir en svo á 75 – 80 mín fengu júnæted nokkur góð færi í röð og meðal annars átti Ræan Giggs skot sem hafði viðkomu í báðum stöngunum hjá Dúddekk. En allt kom fyrir ekki og Lifrapollurinn vann. Það er nú eins gott að Newcastle vinni Chel$ki á morgun svo að Júnæted eigi nú einhvern séns á öðru sætinu.

Jæja, nenni ekki að svekkja mig á því lengur en allavena til hamingju Gaui, Laugi, Halli, Jón Árni, Sössi, Doddi Pimp, Egill, Særún, Jónas Skipstjóri, McGunner, Lenny B og fleiri Lifrapollssleikjur sem ég þekki.

Þangað til næst…….

Beiðni

Síðunni hefur borist beiðni þar sem allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir um að svar spurningu sem veltur á vörum ákveðinna manna og að sjálfsögðu verð ég við þeirri beiðni.


Smellið á myndina af Bjössa Höstlmeister 3000 til að sjá spurninguna

Þangað til næst…….