Skinka dagsins er: Ali Smá

Skinka dagsins er: Ali

Smá spurning, Hvað er eðlilegt að líði langur tími á milli þess að maður heyri í félögum sínum sem eiga heima í öðrum landshlutum???

Ástæðan fyrir að ég spyr að þessu er sú að einn góður kunningi minn frá Akureyri hringdi í mig á laugardaginn og við vorum svona að spjalla um daginn og veginn og svoleiðis, og þá segir hann svona upp úr þurru að hann sé nýorðinn pabbi, ég varð alveg gáttaður, var virkilega svona langt síðan ég heyrði í honum síðast?? Úff barasta meira en níu mánuðir og Tomminn alveg clueless. Ég óskaði honum náttúrulega til hamingju með þetta enda var hann hinn ánægðasti.

For The Love Of The Game

Þetta er ég á góðri stundu hehehe

Hvað er Ísdrottningin að gera???

Þangað til næst…..

Lag dagsins er: Glow með

Lag dagsins er: Glow með Alien Ant Farm

Jæja, vandræðasaga Tommans hélt áfram, Tölvan tók upp á því að slökkva á sér þegar henni bara datt það í hug, frekar pirrandi. Ég þurfti að punga út fimm þúsund og fimmhundruð krónum fyrir nýjum spennugjafa sem var 550 w. Það virðist hafa gengið upp því að hræið er ennþá gangandi.

Helgin fór bara í pirring út af tölvunni þannig að ekkert var farið út á lífið í þetta skiptið. Maður sat bara með andlitið ofan í tölvukassanum að grúska í þessu drasli.

Svo er það bara bolti í kvöld og ekkert bull.

Í síðustu viku mælti Tomminn sér mót við Gæa nokkurn Hadda og af því tilefni var smellt mynd af kallinum.

Þangað til næst……

Markmaður dagsins er: Árni Gautur

Markmaður dagsins er: Árni Gautur Arason fyrir snilldar frammistöðu í gær

Það eru bara góðir hlutir að gerast þessa dagana, Árni Gautur átti stóran þátt í endurkomu ársins ef ekki aldarinnar þegar hann hjálpaði Man Sjittí að vinna Tottenham 4-3 eftir að vera 3-0 undir í hálfleik og manni færri. Peter Schmeichel sagði í þætti Gary Liniker að þetta væri markvarsla ársins þegar Árni varði aukaspyrnu í slánna og tók svo skallann frá Poyet sem fylgdi í kjölfarið. Uuuuussss, þetta var rosalegt.

KoRn á leiðinni á klakann sem er algjör snilld og engin spurning um að maður láti sjá sig í höllinni þann 30 maí næstkomandi. Gústi Alex lillibró ætlar enn og aftur að standa í röðinni fyrir eldri bræður sína þannig að maður ætti vonandi að geta orðið sér út um nokkra stúkumiða. Við skulum allavena vona það.

Svo er líka tölvan öll að koma til. Það var skjákortið eins og mig hafði grunað sem var eitthvað að stríða mér og ég arkaði með það niður í BT, þar þurfti ekki að spyrja að liðlegheitunum því að ég labbaði inn með GF 4200 Ti 128mb en labbaði út með GF 5700 Ultra kort sem voru sko alls ekki slæm skipti. Nú þarf maður bara að græja sig upp aftur þegar maður er orðinn nettengdur aftur. Sjitt hvað hún er smúþþþ, je beibí je.

Jæja, best að fara að vinna í þessu rusli.

Þangað til næst……

Vesen dagsins er: Heimska tölvan

Vesen dagsins er: Heimska tölvan hans Tomma

Júbb, líklegt þykir að á morgun verði tölvuhræið mitt tekið í analinn og system diskurinn strauaður. Þegar Tomminn hefur sett upp stýrikerfið aftur og ennþá verður vesen verður arkað með ruslið niður í BT og öskrað sig hásann. Líklegast verður manni þá sagt upp en hvað gerir maður ekki fyrir málstaðinn. Eins og áður sagði að strauið sé ekki nóg til að laga þennan mjög svo pirrandi bögg að tölvan slökkvi bara á sér þegar henni sýnist þá er greinilega um eitthvað hardware problem að ræða og Tomminn grunar GeForce skjákortið en það kemur í ljós á morgun þegar Onkel Benz mætir eiturhress á svæðið með tölvusjúkrageisladiskamöppuna sína. Maður er búinn að vera sveittur hérna að taka backup af því sem manni er kærast af c-disknum og hefur maður nú flutt yfir 80 Gb af klámi, mp3 fælum, bíómyndum og þáttum yfir á nýu diskana mína. Eins gott að maður fjárfesti í þessum 160Gb disk um daginn, kemur sér svei mér vel núna.

Mæli með að fólk kíki á commentin hans Gæa Hadda hérna undir FM-hnakka greininni minni þar sem er greinilegt að nýtt fjallaskáld er fætt hérna á klakanum. Heyrst hefur að Gaddinn ætli að gefa út ljóðabók fyrir næstu jól þar sem hann mun árita fyrir utan Hagkaup í Kringlunni þann 22 desember næstkomandi með organdi litlu sætu snúlluna sína á öðrum handleggnum og ljóðabókina í hinni.

Jæja, veit ekki hvenær ég get bloggað næst en vonandi fljótlega.

Þangað til næst……

Vírus dagsins er: Troj istan.A

Vírus dagsins er: Troj istan.A

Gjíííííí man, Heimska Norton vírusvörn mæ es, Var að keyra vírusvörn frá Trend og viti menn, haldiði ekki að ruslið hafi fundið 48 vírusa sem að hafði á einhvern ótrúlegan hátt frarið framhjá hinu virðulega vírusvarnarforriti Norton Antivirus. JÚÚÚÚNK. Onkel Benz ætlar að redda mér Trend vörn því það eru hreinar línur að Norton er ekki að gera það fyrir mig. Mæli eindregin með því að fólk sniðgangi Norton og allar vörur frá Symantec aight.

Sjitt hvað helgin var róleg, byrjaði reyndar á smá hasar því við BigGoj og Laugi gerðum okkur ferð til Þorlákshafnar til að styðja við Snæfell sem atti þar kappi við heimamenn. Til að gera ekki svo langa sögu stutta þá völtuðu okkar menn yfir lánlausa og lélega Þórsara og voru miklu betri. Ég tók fullt af myndum en því miður kem ég þeim ekki inná netið. (Soffi ezka laga sem fyrst) Vonandi að þessar myndir fái að líta dagsins ljós ásamt öðrum myndum frá ákveðnu Sleggju partýi sem var haldið á laugardaginn. Eða um leið og Soffi minn kemur í land (vonandi). Við Smári Tarfur erum að huga að ferð til Hveragerðis 12 feb þar sem að Hamar og Snæfell eigast við. Það er stemming í kallinum fyrir þessu því Snæfell eru núna á toppnum og mikil stemming í liðinu.

Svo fór helgin bara í ekki neitt nema fótboltagláp. Horfði á Louis Saha byrja vel á Old Trafford auk þess að horfa á Henry skora brilliant mark á Highbury grrrrr 😦 hnuss pirrrrrrr.

Fór í bolta í gærkvöldi þar sem var 100% mæting og því lítið um hreyfingu. Eftir það komu Ívar Karl, Egill og Atli í heimsókn og við horfðum á Superbowl þar sem við Egill tókum afstöðu með New England Patriots en Íbbi og Atli með lúseraliðinu Karólína Panties eða eitthvað svoleiðis hehehe. Nafni minn Brady var flottur en quarterbackinn hjá Panties hann DelHommi átti nú reyndar líka fínan leik og þvílíkar sendingar.

Fór þar af leiðandi frekar seint í fletið og svaf Stærðfræðina af mér 😦

Fékk 9 í Eðlisfræðiprófi og er bara nokkuð sáttur en hefði samt getað gert betur. Tían freistar marr.

Eins og sést hér að neðan eru misskiptar skoðanir á þessari FM-hnakka grein minni og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Gæi nokkur Hadda fór mikinn en ég man nú ekki betur en að kallinn hafi nú oft dillað sér við Sugarbeibs, Atómik Kitten, Jöstin Timburleik og Destínís Tjæld þannig að hann ætti bara að loka þverrifunni og líta í eigin barm áður en hann fer að tala út um rassgatið á sér um fataval Iðnskólaprófesorsins, Ninna Dittu og Dabba Hlíðkvist aight.

En þetta var nú allt í góðu og svona meira gert í gríni en alvöru aight, og Gæi, ég elska þig líka eins og þú ert.

Þangað til næst…….

Leikmaður dagsins er: Louis Saha

Leikmaður dagsins er: Louis Saha

Þetta kemur nú kanski ekki svo mikið á óvart er það nokkuð…..

My inner child is sixteen years old today

My inner child is sixteen years old!

Life’s not fair! It’s never been fair, but while
adults might just accept that, I know
something’s gotta change. And it’s gonna
change, just as soon as I become an adult and
get some power of my own.

How Old is Your Inner Child?
brought to you by Quizilla

Þangað til næst……..

Lag dagsins er: Megalomaniac með

Lag dagsins er: Megalomaniac með Incubus

Það var annað sem ég var að pæla í, hugleiðingar sem hafa pínu nagað mig undanfarið, alveg síðan í sumar, er ég FM-hnakki????

FM-hnakkar eru fyrir mér dúddar sem keyra um á semi sportbílum, ljósabrúnir, með brilliantín í hárinu í fötum frá Mótor eða Park hlustandi á Sjúgarbeibs, Bíoncí Knówls og Jöstin Timberleik.
Þó að tónlistarsmekkur minn hafi oft á tíðum talist frekar víðtækur þá hef ég aldrei gefið mig út fyrir að hlusta á svona sellát sorp sem var nefnt hér á undan og mín uppáhaldstónlist er yfirleitt ekki spiluð á FM957.

En Tökum hérna nokkur dæmi:

FM-hnakkar vs Tommi
FM-hnakkar fara í ljós – Tommi fer stundum í ljós
FM-hnakkar fara í ræktina – Tommi hefur jú einhverntímann sést þar
FM-hnakkar eru með filmur í bílunum sínum – DOH, Tommi er jú með filmur í Rollunni en þær voru þegar ég keypti hana
FM-hnakkar hlusta á FM tónlist – Tommi vildi ekki einusinni láta það helvíti heyrast í jarðarförinni sinni og hananú
FM-hnakkar fara oft í klippingu – Tommi fer í klippingu á 1 til 2 mánaða fresti
FM-hnakkar eru með gel í hárinu – Tommi er jú stundum með svoleiðis sull í hársverðinum
FM-hnakkar raka sportröndina ofl – No comment
FM-hnakkar eru með keilu í bílnum – Tommi fer annað slagið í keilu
FM-hnakkar blasta græjurnar á Laugarveginum – Tommi blastar græjurnar á Vatnaleiðinni þegar hann er einn í bílnum og syngur þá með hátt og snjallt.
FM-hnakkar eiga vitlausar kærustur – Tommi á ekki kærustu
FM-hnakkar versla í Mótor – Tommi hefur jú keypt einstaka flík þar
FM-hnakkar dýrka R og B – Tomminn er nýlega búinn að uppgvötva fyrir hvað R og B standa hehehe

Tökum nokkur sjóndæmi:

Þetta eru myndir af mér og Ninna sem hefur jú verið sakaður um það sama.

Jæja, þið verðið hreinlega bara að dæma sjálf aight. Persónulega tel ég sjálfan mig ekki tilheyra þeim hópi sem kallast FM-hnakkar en ég skal samþykkja að vera svona, tjah semi hnakki hehehe

Þangað til næst…..