Lag dagsins er: Dead Embrionic Cells með Sepultura
Hann Blobbi Jobba fagnar aldarfjórðungs afmælinu sínu í dag 12 des. Til Hamingju Steini:

Þangað til næst……
Lag dagsins er: Dead Embrionic Cells með Sepultura
Hann Blobbi Jobba fagnar aldarfjórðungs afmælinu sínu í dag 12 des. Til Hamingju Steini:

Þangað til næst……
Lag dagsins er: Sunburn með Muse
Það er komin ný könnun, takið þátt.
Þangað til næst…….
Lag dagsins er: New Born með Muse
Vá er orðið sem er Tommanum hugfallið núna, Vá er eina sem maður getur sagt við þessari snilld. Tomminn var semsagt að koma af tónleikum með bresku hljómsveitinni Muse og þvílík andskotans snilld. Þetta var rosalegt. Mínus byrjaði að hita upp og þeir voru rosalega góðir og stóðu sig vel. Mikill fýlingur þegar þeir tóku Romantic Exorcism, My name is Cocaine og The Long Face. Þeir semsagt hituðu mannskapinn upp en það var ekkert miðað við það sem fólkið átti í vændum.

Þegar Muse steig á sviðið var eftirvæntingin orðin mikil og ekki varð maður fyrir vonbrigðum, þvílík hljómsveit, Tomminn á barasta engin lýsingarorð til að lýsa þessu. Þessir tónleikar fara pottþétt á topp 3 listann yfir þá tónleika sem Tomminn hefur sótt. Hver slagarinn rak annan og Tomminn skríkti eins og smástelpa á milli þess sem hann kláraði raddböndin í að syngja með. Hérna kemur smá sýnishorn en myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna.


Þangað til næst…..
Lag dagsins er: Pardon Me með Incubus
Jólagjöf Tommans er hér. Áhugasamir leggji inn pöntun sem fyrst svo þetta náist nú fyrir jól aight.
Þangað til næst…….
Lag dagsins er: The Whole World með Outkast
Jæja, Tomminn var að koma úr prófi í íslensku og gekk það barasta bærilega, eftir prófið var farið að fá sér í gogginn og svo í ljós og chillað, restin af deginum fer í ekki neitt, reikna með að koma liðinu mínu í FIFA 2004 upp um deild eða bara hanga í CM fram eftir degi og horfa svo á Man Utd vs Stuttgart í kvöld.
Var að vafra inn á Innu og ath með einkannir og svoleiðis og sá þá að mér sýndist að snillingurinn hann Guðlaugur væri bara strax búinn að fara yfir prófið og viti menn, Tomminn var með 7 í vetrareinkunn og 7 í prófseinkunn þannig að lokaeinkunin hans var 7, einnig fann ég lokaeinkunina í Stæ 223 og reyndist hún vera 8 sem er barasta fínt. Tomminn rambaði einnig á einkunina í EFN 203 og vil sem minnst tjá mig um það en það fór sem Tomminn hafði spáð, vægast sagt illa. Lægsta einkun í skólasögu Tommans 😦
Svo má líka geta þess að það eru 99kr dagar í Hagkaup þar sem að Tomminn gerði góð kaup og keypti 3 kippur af pepsi hehehe
Þangað til næst…….
Lag dagsins er: Alexander The Great með Iron Maiden
Tomminn var að fjárfesta:


Þangað til næst…..
Lag dagsins er: Plug-In Baby með Muse
Maður veit hreinlega bara ekki hvað maður á að segja við þessu:

Hérna eru þessar frægu hlébarðabuxur sem hún Rutla er búin að vera að skúbba um undanfarið, þetta er verra en ég hélt
Þangað til næst…….
Lag dagsins er: Hysteria með Muse
Jamm og Já, Tomminn skellti sér í nafla alheimsins um helgina og skemmti sér bara vel. Námsbækurnar voru hafðar með en það fór nú eitthvað minna fyrir því að kallinn gluggaði eitthvað í þær. Viljinn er fyrir hendi og allt það en samt er alltaf hægt að finna eitthvað skemmtilegra að gera hehehe. Um leið og við komum (ég og Rúna) þá fórum við beint í Kaffi 59 og horfðum á Idolið þar sem að gamli bekkjarfélagi Tommans steig fyrstur á svið og stóð sig með mikilli prýði, go Kalli og vonandi kemst hann sem lengst. Svo var kíkt á familíuna og horft á imbakassann og svo var farið í háttinn. Kallinn vaknaði svo kl 12:00 til að glápa á Nefkastle taka á móti Lifrapollnum. Fór á Kaffi 59 þar sem að elskurnar elduðu dýrindis pizzu fyrir kallinn og horfði á leikinn þar í góðum félagsskap. Þá sérstaklega Svenni á Eiði sem fór á kostum, þangað til Nefkastalinn jafnaði hehehe. 1-1 voru úrslitin, alveg ásættanlegt. Nefkastalinn átti nú samt öll stigin skilið þar sem að hinn aldni Húlli spilaði hið gríðar góða varnarkerfi 9-1-0. Svo var kíkt á Líds og Tjelsí gera jafntefli.
Helgin Spilaðist gríðarlega vel fyrir Tommann um helgina þar sem að Tjelsí, Asnenal og Lifrapollurinn gerðu jafntefli á meðan Júnæted rúllaði yfir Astón Villa 4-0 þar sem að Rútur Nístilroj og Deddlí Díegó sáu um markaskorunina og Brazzinn hann Klebberson fór víst á kostum hehehe.
Pabbi og Sigrún buðu okkur Rúnu svo á jólahlaðborð um kvöldið þar sem að maður gat úðað í sig alls kyns kræsingum með bestu list. Þvílík snilld.
Hérna koma svo nokkrar myndir frá ferðinni, restin af myndunum er hér
Hanna með hvolp
Arndís með hvolp
og Rúna með hvolp
Viktor Helgi töffari sem var í pössun hjá mér á föstudeginum
Beckham, sætasti kisi í heimi
![]()
![]()
Jólahlaðborðið var snilld
Svo lagðist maður þreyttur til svefns.
Þangað til næst……
Lag dagsins er: Dance Commander með Electric Six
Viðurkenning:
Já Tomminn ætlar að gefa sjálfum sér viðukenningu, ekki svona hefðbundna viðurkenningu eins og maður fær fyrir að binda hnúta í skátunum eða svoleiðis, nei ónei því að Tomminn á enga slíka viðurkenningu skilið fyrir gríðarslakann árangur í prófinu í morgun en það er önnur saga.
Þessi viðurkenning byggist upp á því að Tomminn ætlar að viðurkenna svolítið sem hefur mörgum verið hulið í mörg mörg ár, þ.e. þeim sem hafa þekkt mig í mörg mörg ár, líklega bara nánasta fjölskylda, hinir geta bara lesið og haft gaman af. Jæja hefst þá viðurkenningin.
Einu sinni fyrir mörgum árum sirkabát níu árum þegar Tomminn var nýorðinn 18 ára og ennþá ungur og vitlaus hafði hann svolítið gaman af því að spila Championship Manager. Þessi leikur, sem var sá fyrsti í röðinni af mörgum, byggðist upp á Ítalska boltanum tímabilið 92/93 minnir mig.
Þannig var mál með vexti að Tomminn var (og er kannski enn) einstaklega tapsár þegar kemur að allskyns keppnum og öðru slíku og líkar það mjög illa að lúta í gras. Þannig var það í eitt skiptið að Tomminn var búinn að byggja upp þvílíkt meistarlið (að honum fannst) sem átti að hans mati að vera alveg ósigrandi í öllum keppnum. Tölvan var ekki á sama máli og Tomminn. En Tommi komst þó með liðið sitt í Úrslitaleik í Evrópukeppni meistaraliða og átti þar að etja kappi við hið ómerkilega lið Rauðu Stjörnuna frá Belgrad. Tomminn ýtir á “save” fyrir leikinn bara svona til öryggis ef þetta skildi nú fara illa því það var nú bara, að hans mati, formsatriði að klára þennan leik.
Svo byrjar Tomminn að spila og tapar 3-0 sér til mikillar gremju, en restartar bara og byrjar upp á nýtt því þetta gat að sjálfsögðu ekki staðist. Aftur byrjar Tomminn að spila og tapar, nú frekar stórt, 4 eða 5-0. Þetta fer að fara í skapið á Tommanum og hann er byrjaður að bölva upphátt við sjálfan sig (sem gerist ekki oft nema mikið sé vegið að Tommanum). Aftur restartar Tomminn og byrjar aftur og þetta gengur svona í nokkur skipti í viðbót og Tomminn orðinn brúnaþungur. Svo prófar Tomminn einu sinni enn og byrjar að spila. Nær jafntefli og sigurreifur Tomminn segir við sjálfan sig að nú hljóti þetta að koma, vítaspyrnukeppni og Tomminn raðar sínum vítaskyttum upp og bíður spenntur, en viti menn. Tomminn tapar í vítaspyrnukeppninni og þá var honum nóg boðið.
Tomminn ríkur upp úr stólnum þannig að stóllinn þeytist aftur fyrir sig, snýr sér til að leita að einhverju til að kýla í af öllu afli og hittir þar fyrir forláta rúmdýnu sem lá þarna í sakleysi sínu. Tomminn lætur vaða í helvítis dýnuna til að fá smá útrás fyrir þessum uppsafnaða pirring en vildi svo illa til að Tomminn hittir fyrir eitthvað verulega hart undir mjúkri dýnunni.
Tomminn fékk nú sýna útrás af þessu, stendur í smá stund meðan honum rennur reiðin og jafnar sig. Lagar stólinn og sest aftur við tölvuna, tekur um músina en finnur þá fyrir stingandi verk í hægri hendinni. Tommanum líst nú illa á þetta, slekkur á tölvudruslunni og tekur að rölta upp á heimavistina á Akranesi (Tomminn var staddur í húsi þáverandi kærustu á þessum tíma). Þegar upp á vistina var komið var hönd Tommans orðin frekar mikið bólgin og blá að Tomminn lætur Dabba frænda sinn skutla sér niður á heilsugæslu. Þar kemur í ljós að Tomminn hefur brotið á sér hendina í þessu bræðiskasti sínu. Læknirinn spyr nú hvernig þetta hafði gerst og skömmustulegur Tomminn segist hafa dottið á svelli og lent svona helvíti illa, læknirinn segir nú að þetta sé nú kallað “boxarabrot” og hendi yfirleitt þá sem hafi gefið einhverjum á kjammann. Tomminn þrætti nú fyrir þetta og stóð fastur á þessari “dettaásvelli” sögu sinni. Þannig útskýrði líka Tomminn þetta kjánaprik sitt fyrir sinni nánustu fjölskyldu sem tók Tommann trúarlegan. Enn þann dag í dag heldur fólk að hinn rólegi Tommi hafi dottið á svelli á leið sinni í skólann en þar hafiði það. Hinn skapstóri Tommi handarbraut sig á rúmdýnu í bræðiskasti yfir að hafa tapað í CM og geri aðrir betur.
Nú er Tomminn búinn að létta þessari vitleysu af samviskunni og getur nú andað léttar.
Þangað til næst……
Lag dagsins er: The Long Face með Mínus
Búinn að vera að læra í allan fokking dag en er samt engu nær, helvítis djöfull hvað þetta leggst illa í mig, ef að ég fell hjá þessari helvítis leðurlesbíu einu sinni enn þá skal ég hundur heita ef ég sit annan áfanga hjá henni.
= Tommi ef hann verður aftur hjá Nasista leðurlesbíunni
Jæja, ætli manni sé ekki hollast að fara að halla sér svo að maður verði allavena vakandi í þessu helvítis bölvaða prófi
Þangað til næst……