Rugl dagsins er: Nýr Íslandsvinur.

Rugl dagsins er: Nýr Íslandsvinur. Já söngvari hinnar heimsfrægu bresku hljómsveitar The Bonkeys er staddur hér á landi þessa dagana vegna Star Trek ráðstefnunnar sem haldin er í Fáksheimilinu. George Gaymarnen sagði í viðtali við fjölmiðla að hann hrifist af landi og þjóð og þá sér í lagi var það íslenska sauðkindin sem hefur hrifið hann mest. 🙂

Tomminn stendur í ströngu þessa dagana við innheimtu á fótboltagjöldum. Enn eiga nokkrir heiðursmenn eftir að borga og vill Tomminn nú ýta á þá að fara að leggja inn.

Tomminn mætti í bolta á sunnudagskvöldið og hafði bara gaman af. Lið Tommans sem samanstóð af Tommanum sjálfum, Dabba frænda, Dodda og G-strengnum bar sigur úr bítum. Ekki var það nú Tommanum að þakka að svo fór en aumingja gamli maðurinn var alveg búinn eftir c.a. þrjár mínútur og fór bara í markið hrmpf. Enginn var Gæi Hadda á svæðinu þar sem að karlanginn er eitthvað slasaður og því var óvenju rólegt þann daginn. Gamli skoraði reyndar tvö eða þrjú mörk þegar hann nennti fram en það var nú ekki oft. Fyrsti tíminn var mjög erfiður og þetta hlýtur að skána.

Svo er það landsleikurinn á laugardaginn og Dabbi, ef þú hefur áhuga á að mæta á hann þá skaltu borga fokking miðann hehehe. Já Tomminn á von á peningum úr öllum áttum en þar sem að lögfræðingarnir frá Intrum Justica eru farnir að anda þungt niður hálsmálið á Tommanum nær gamli ekki að njóta þeirra lengi. Svo þarf vesalings Tomminn líka að kaupa nýja blöðru fyrir fótboltann þar sem að Sössinn virðist hafa misnotað Mitre boltann svo illilega með anal lube og of þröngum innsetningum að hann er alveg ónothæfur og leggur Tomminn nú til að fundinn verði nýr ábyrgðarmaður fyrir nýja boltanum.

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Heyrst hefur

Rugl dagsins er: Heyrst hefur að Tom Jones ætli sér að fara í svifdrekaflug fram af Látrabjargi og reyna að vera fyrstur manna til að svífa til Grænlands.

Helvítis Sáþhamtonn að vinna Mansteftir Júnæted svona. Nú þurfa mínir menn að girða sig í brók og fara að taka sig saman í andlitinu. Og þið þarna púllaradjöflar, þurrkið þetta helvítis skítaglott af sméttunum á ykkur. En svona er þetta bara, maður vinnur ekki alltaf.

Núna eru reyndar Asnenal menn undir eftir sjálfsmark Laurens en ætli helvítis Nallarnir reddi þessu ekki.

Inter menn voru bara seigir og mörðu sigur á Módena 2-0 með mörkum frá Kristían Víerí og Markó Materassí á 87 min og 94 vííííhaaa.

En, helvítis Júnæted aular og vitleysingar. Niður með auðvaldið

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Bigfoot sást

Rugl dagsins er: Bigfoot sást við Álfhólsveginn, Já, stórfótur sjálfur var illilegur á sýn þegar Tomminn rakst á hann við Álfhólsveg 141 í Kópavogi nú síðdegis. Stórfóturinn sem vildi láta kalla sig Guðjón steig mikinn stríðsdans á götunni sökum þess að Lifrapollsliðið hafði unnið leik fyrr um daginn. 🙂

Jamm svo að Maccaman gerði 2 ára samning við Mansteftir Sjittí og líkaði vel. Samningi hans hjá Real Madríd var rift og þurfti Mansteftir Sjittí því ekki að greiða krónu fyrir kappann.

Hinn mikli snillingur Andí Kól skorað tvö mörk í dag þegar Blakkbörn gerði 2-2 jafntefli við Tjelsí

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Justin Timberlake

Rugl dagsins er: Justin Timberlake ætlar að höfða mál gegn McDonalds keðjunni fyrir að afgreiða hann ekki á undan öðrum viðskiptavinum. Justin brást ókvæða við og henti súrsuðum gúrkum af BicMac hamborgaranum sínum í afgreiðslufólkið. 🙂

Jamm svo að Lifrapollurinn hefur unnið fyrsta leik sinn á leiktíðinni með 3-0 sigri á lánlausum Efratonns mönnum, Það var undirlendisbúinn Haraldur Kjúvell sem gerði þriðja og síðasta mark Lifrapollsmanna Húlla gamla til mikillar gleði.

Svo er bara að sjá hvernig Mjóhannesi Karli reiðir af með Úlfunum í dag

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: John Travolta

Rugl dagsins er: John Travolta og David Beckham ætla að opna saman Grænlenskan veitingastað niðri á Granda og ætla þeir að sérhæfa sig í sölu á niðursoðnu selspiki. 🙂

Svo að Stíf Makkmannamann er genginn til liðs við Mansteftir Sjittí. Gengið var frá 1 árs lánssamning í morgun. Það verður eflaust gaman að sjá Makka og Fávler saman á ný.

Lifrapollurinn er es ví spík að vinna Evertonn 2-0 með tveimur mörkum frá Mækel Óven og er hann nú búinn að skora öll þrjú mörk Lifrapollsins á þessari leiktíð. En leikurinn er nú ekki búinn og aldrei að vita nema að einhverjir fleiri fái tækifæri á að setja blöðruna í netið.

Svo er það bara bolti á morgun í Sporthúsinu og ekkert rugl. Vonar Tomminn að sem flestir sjái sér fært um að koma því kallinn þarf nú að gerast harðari á að rukka inn gjaldið. Tomminn er nú með átta lögfræðinga á hælunum sem eru að innheimta og aðeins fjórir spilarar búnir að greiða gjöldin.

Þangað til næst……

Doh Enn ein leiðinda edrú

Doh

Enn ein leiðinda edrú helgin að renna upp og aumingja Tomminn ætlar bara að vinna alla helgina. Ekki mikið að gerast á þeim bænum nema kannski bara bíóferð í mesta lagi. Sáþhamptonn spilar við Mansteftir Júnæted á Seint Marís um helgina og Evertonn spilar við Lifrapollinn í hörku 0-0 slag líklegast. Húlla til mikillar gleði líklegast.

En þetta kemur allt saman í ljós á morgun og hinn.

Ótrúlegur atburður átti sér stað í dag. Það kom pistill á bumburnar í dag. Alveg ótrúlegt og hefur Tomminn nú hringt í lifandi tækni og vísindi og látið vita af þessum sérkennilega atburð sem átti sér stað föstudaginn 29 ágúst 2003. Þeir ætla að ganga í málið og rannsaka þetta.

Járni G-strengur vinur minn er ekki sáttur þessa dagana með gengi sinna manna og ef Lifrapollurinn stendur ekki undir væntingum á morgun þá fer hann líklegast að halda með Huddersfield Town.

En svona er þetta bara.

Þangað til næst…..

Champions League Jebb, svo að

Champions League

Jebb, svo að það er búið að draga í Meistaradeild Evrópu þetta árið og Man Jú lenti í riðli með Panthinaikos, Stuttgart og Glasgow Rangers og eru því nokkrar athyglisverðar viðureignir þá sérstaklega viðureign Reingjers og Júnæted. Njúkastel menn geta bara farið að einbeita sér að Júeifacöp með Lifrapollsmönnum og verða líklega nokkrar athyglisverðar viðureignir þar líka eins og Lifrapollur vs stórlið Karnten eða eitthvað soliz HEHEHE

Þannig að þetta verður allt voða fínt

Þangað til næst…..

Jebb, Tomminn var að horfa

Jebb, Tomminn var að horfa á hinn mikla stórslag Mansteftir Júnæted og Úlferhampton Undrerers og Tomminn var bara nokkuð hrifinn af baráttu Úlfanna, sérstaklega var gaman að sjá gamla jálkinn hann Pól Ins vera eitthvað að ibba sig. Rútur Nístilroj tókst ekki að skora í 11 leiknum í röð og unnu Man Jú bara 1-0. Úlfarnir áttu alveg skilið að jafna þetta miðað við færin sem þeir fengu en inn vildi boltinn ekki. Hinn ungi Rögnvaldur var ekki að gera góða hluta aðra en að láta hirða af sér boltann og sýna einhver tilgangslaus skæri og virðist sem að 15 mínútna frægðinni hans sé lokið……DJÓK. Klebbi slebbi sýndi ekki neitt og kom það engum á óvart að þeir 2 voru teknir útaf á 63 mínútu. En eins og fram kom þá unnu Júnæted 1-0 og sitja á toppnum á samt Asnenal með fullt hús stiga. Það var jú Jón Ó Sjei sem skoraði sigurmarkið.

Lifrapollurinn náði sér í dýrmætt stig á heimavelli á móti Tótenham. Stórsigur fyrir hinn elliæra og varnarsinnaða Húlla. HEHEHE
Jamm 0-0 var niðurstaðan og Húlli og Nebbi geta unað sáttir við sitt enda eitt stig í sampinn og þeir búnir að auka stigafjöldann á leiktíðinni um heilan HELMING.

En svona er þetta bara, ég er farinn að horfa á LOTR the two towers

Þangað til næst…..

Jebb, það er alltaf jafn

Jebb, það er alltaf jafn gaman að blogga í vinnunni þegar það er lítið að gera. Mansteftir Júnæted a.k.a besta lið í heimi tekur á móti Úlfahampton Undrerers í kvöld á Gömlu Torfunni á Mansteftir og verður vonandi mikil skemmtun fyrir Júnæted hunda eins og sjálfan mig. Flestir eru að búast við stórsigsi Mansteftir manna en sjálfur reikna ég nú með Úlfunum brjáluðum og baráttuglöðum eftir frekar dapra byrjun í deildinni. Þannig að mín spá er 2-1 fyrir Júnæted og það verða Úlfarnir sem skora fyrsta markið á fyrstu 20 mínútunum og liggja svo í vörn og staðan í hálfleik verður 0-1. En þeir ná ekki að halda út allan leikin og hinn kjálkastóri Rútur Nístilroj jafnar á 70+ mínútu og hinn ungi Rögnvaldur mun skora sigurmarkið við mikinn fögnuð heimamanna á 80+ mínútu. Þetta er spá Tommans og verður gaman að sjá hvort hún rætist hehehe.

Þangað til næst…..

SNIIIIIIIIIILLD er orðið yfir það

SNIIIIIIIIIILLD er orðið yfir það sem ég var að upplifa rétt í þessu. Tomminn var semsagt að koma af tónleikum með hinni stórgóðu sveit Foo Fighters í höllinni og þetta var ROOOOOOSALEGT eins og Bubbi nokkur Mortens hefði orðað þetta. Tomminn var mættur í röðina kl. 18:26 og þá var góður slatti af liði fyrir framan okkur. Húsið opnaði kl 19:00 og ég og Gaui komum okkur fyrir upp í stúku fyrir miðju og biðum með mikilli eftirvæntingu. Vínill voru fyrstir á sviðið og voru mættir þangað um átta leytið. Þeir spiluðu nokkur lög og stóðu sig bara ágætlega. Svo þegar þeir voru búnir að ljúka sér af mætti hljómsveit sem hét held ég My monthly jacket eða eitthvað svoleiðis og spiluðu eitthvað Zeppelin rokk og voru bara nokkuð þéttir. Svo var röðin komin að Foo Fighters, þeir létu bíða svolítið eftir sér en biðin var svooo þess virði. Lýðurinn trylltist þegar Dave Grohl mætti á sviðið, hann mætti bara einn og sagði lýðnum frá því þegar hann í gærkvöldi var að borða á Stokkseyri og heyrði þá tónlist úr nálægum bílskúr. Hann fer á stúfana og sér þá einhverja unglinga hljómsveit vera að æfa sig. Grohlarinn fer þá bara að djamma með þeim og bíður þeim svo að taka eitt lag á stóru tónleikunum. Pæliði í því að vera að æfa sig með hljómsveitinni sinni og svo mætir Dave Grohl bara á svæðið og vill djamma með manni. Þetta gerist bara í ævintýrunum. En þessi unga sveit frá Stokkseyri sem ég veit reyndar ekki hvað heitir tók eitt lag á undan Foo Fighters og maður verður bara að taka ofan fyrir þeim.

En svo byrjaði snilldin. All my life var fyrsta lagið og Tomminn fékk gæsahúð um allan kroppinn og tísti eins og smástelpa hrmpf hehe roðn. Síðan kom hver slagarinn á fætur öðrum, Times like these og fleiri þekkt lög. Þeir spiluðu lög af öllum diskunum sínum og var mjög gaman að heyra For all the cows og Breakout og fleiri snilldar slagara. Maður sat bara í stúkunni í losti yfir þessu. Svo enduðu þeir á Everlong og aftur var maður farinn að garga eins og smástelpa 🙂

Þessir tónleikar fara tvímælalaust í annað sæti yfir bestu tónleika sem Tomminn hefur mætt á. Jamm þeir ná ekki að skáka Rage against the machine tónleikunum í Kaplakrika ’94 þar sem Rageararnir fóru á kostum. Það voru rosa tónleikar. En Foo Fighters fara uppfyrir Rammstein tónleikana 2001 sem voru allsvakalegir líka.

Semsagt algjör snilld og þið þarna sem voruð heima að prjóna eða hvað sem þið voruð að gera misstuð sko af miklu. Svekk fyrir ykkur

Þangað til næst…..