Kolbeinn og Kölski




Kolbeinn og Kölski

Originally uploaded by Tómas Freyr

Einu sinni er sagt að kölski hafi veðjað við mann þann er Kolbeinn hét og nokkrir ætla að hafi verið Kolbeinn jöklaskáld.
Skyldu þeir báðir sitja hvor hjá öðrum á Þúfubjargi undir Jökli þegar brim gengi þar hæst og kveðast á þannig að kölski gerði fyrri hluta næturinnar fyrri helming vísnanna en Kolbeinn skyldi botna hjá honum. En seinni hluta nætur skyldi kölski botna hjá Kolbeini en hann kveða fyrri hluta vísnanna og var það skilið undir samningi þessum að hvor þeirra sem ekki gæti botnað vísu hins skyldi steypast ofan af bjarginu og vera þaðan í frá í valdi hins.

Þeir tóku sig svo til og settust út á bjarg eina nótt er tungl óð í skýjum. Kveðast nú á, sem ætlað var, fyrri huta nætur og verður enginn stans á Kolbeini að botna vísur kölska. Svo tekur Kolbeinn við og kveður upphöfin seinni hluta næturinnar og gengur kölska allvel að slá botninn í hjá honum uns Kolbeinn tekur hníf upp úr vasa sínum og heldur honum fyrir framan glyrnurnar á kölska svo eggin bar við tunglið og segir um leið:

Horfðu í þessa egg, egg,
undir þetta tungl, tungl.

Þá varð kölska orðfall því hann fann ekkert orð íslenskt sem yrði rímað í móti tungl og segir því í vandræðum sínum: “Það er ekki skáldskapur að tarna, Kolbeinn.” En Kolbeinn botnar þegar vísuna og segir:

Ég steypi þér þá með legg, legg,
lið sem hrærir ungl-, ungl-.

En þegar kölski heyrði þetta beið hann ekki boðanna og steyptist ofan fyrir bjargið í eina brimölduna þar sem hún brotnaði og bauð ekki Kolbeini til kappkvæða eftir þetta.

(J.Á.II. — Eftir sögnum að vestan.)

The look




The look

Originally uploaded by Tómas Freyr

Fór á sérdeilis frábæra tónleika með Lúðrasveit tónlistarskóla Grundarfjarðar í gærkvöldi. Þemað var Rokk og ról og var þetta alveg magnað show hjá krökkunum. Lög eins og Uprising með Muse og Clocks með Coldplay, Don’t stop believing með Journey. Þetta var alveg magnað. Maður fékk gæsahúð hvað eftir annað þarna.

Miklir snillingar þessir krakkar sem við eigum hérna.

Konungur fuglanna




Konungur fuglanna

Originally uploaded by Tómas Freyr

Tókum smá rölt inní Kolgrafarfirði í gær… þar sáum við nokkra erni sem voru að spóka sig í góðum gír. Þeir voru svolítið langt frá og 100-400 linsan var ekki alveg að massa það. Myndirnar eru töluvert mikið croppaðar og því gæðin ekki til að hrópa húrra fyrir… En það er samt stórkostlegt að sjá þetta. Þarna rákumst við líka á nokkra skarfa, sel sem var að spóka sig og fleiri fuglategundir. Allt iðandi af lífi.

Þangað til næst…

Impressive




Impressive

Originally uploaded by Tómas Freyr

Enn af hvölum…

Nú í dag (sunnudag) voru hvalirnir svo nálægt landi að maður varð bara hissa á að þeir strönduðu ekki… Þeir voru nánast alveg uppí fjöru að gúffa í sig síld í mestu makindum. Þetta var alveg magnað fyrirbæri. Maður er bara stein hissa á að Rúv eða Stöð 2 nenni ekki að drattast hingað með eina myndavél og mynda þetta… fá eitthvað annað í fréttatímann en Icesave. Fleiri myndir inná flickrinu.

Þangað til næst….