It’s Friday I’m in love

Föstudagur eina ferðina enn, ætli maður reyni ekki að koma með eitthvað gott. Viggi bauð kjellinum í mat í gær. Ægilega grand á því með purusteik og brúnaðar kartöflur, ég sé sjálfan mig í anda vera að brúna kartöflur jahérna, góður Viggi.

Heyrst hefur….

að Harry Potter (33) hafi mætt á klakann hellaður á því.


Tilefnið er að sjálfsögðu frumsýning fertugustu Harry Potter myndarinnar, Harry Pothead og homminn í kistunni

að hin árlega keppni í rúnkaþoni hafi farið fram á Sólon


Hér sést sigurvegarinn Rúnki Jónsson (19) í sigurrúnkinu

að Viggi Runna (41) hafi á dögunum látið gamlann draum rætast þegar hann skellti sér í stúdíó með óþekktri söngkonu og tók upp ástardúettinn “allt á floti allstaðar” við gríðarlega litlar undirtektir.


Smáskífan kemur út rétt fyrir jól og verður seld í takmörkuðu upplagi á netaverkstæðinu í Grundarfirði

að Herra Ísland árið 2005 sé engin annar eeeeeen


Jósafat Þjóðólfsson (16) frá Syðri Hörgsá í Dalasýslu. Til hamingju Jósafat

að Logni Stormsson þurfi sérstök gleraugu þegar hann horfir á bláar myndir


Logni (58) er hér í góðum gír að græja sig í glápið

að Gæi Hadda (16) hafi fest kaup á nýrri vél í bílhræið sitt


Gæi er hérna að fínstilla gripinn

að Dabbi Wium hafi ákveðið að byggja sér nýtt hús vegna of mikils íbúðarverð á höfuðborgarsvæðinu.


Dabbi (39) er hérna að leggja lokahönd á kofann

að Rutla og Hrefna hafi á dögunum stofnað samtök til heiðurs illa klæddum bændum


Samtökin telja 3… Rutlu (14), Hrefnu (15) og Gísla Göngutúr (112).

að Ninni Dittu hafi verið nappaður uppá elliheimili við ósiðlega iðju


Ninni (12) og vinkona (102) sem vildi ekki láta nafn síns getið, skammast sín ekkert fyrir hegðun sína.

að systurnar Anna og Ellý hyggi á framleiðslu á nýjum raunvöruleikaþætti sem byggður verður upp á reynslu Önnu við að vinna á Kristjáni IX í denn


Anna (30) og Ellý (21) eru báðar gríðarlega spenntar yfir þessu verkefni

að Ellen E (16) stefni á farsælan feril sem köntrýsöngkona.


Ellen ætlar víst að flytja á Skagaströnd og er búin að fá leigt herbergi hjá sjálfum köntrýkóngnum Hallbirni (164)

að Big Goj hafi farið í brúnkumeðferð hjá Gillsenegger


Árangurinn hjá Gaua (42) lét ekki standa á sér

að Soffi hafi tekið að sér hlutverk Jesús krists í nýrri uppfærslu á Jesús súperstjarna í samkomuhúsinu


Soffi (15) var 6 mánuði að safna þessu skeggi

að Rúna Jobba ætli að sækjast eftir hlutverki Júdasar í þessu verki


Rúna (13) var búin að næla sér í 2 eintök af handritinu

Jæja, þetta er fínt í bili. Verið svo duglegri að commenta fólk.

Þangað til næst…..

Herra Stjörnutorg

Jæja gott fólk. Nú eru jólin að nálgast og ferðum mínum í Kringluna fer að fjölga. Nú er ég búinn að fara tvisvar á mjög svo stuttum tíma og hef borðað á Stjörnutorginu og ég er alveg gjörsamlega ráðþrota eftir þessar máltíðir. Ástæðan er einföld…. Herra Stjörnutorg er horfinn. Hvað varð um Herra Stjörnutorg??? Vinalega brosandi andlitið sem allir þekkja.
Nú eruði kannski að spyrja ykkur hver þessi herra Stjörnutorg sé. Jú Herra Stjörnutorg er maður sem allir þeir sem nokkurntíma hafa snætt máltíð í Kringlunni kannast við. Herra Stjörnutorg er latínó gæi sem gekk brosandi um Stjörnutorgið og þurrkaði mæjónesið af borðunum ykkar með bros á vör í mörg ár. Alveg síðan ég man eftir mér hreinlega. Sögurnar segja að Kringlan hafi verið byggð yfir Herra Stjörnutorg og því hafi hann alltaf verið þarna. En ég trúi því nú ekki svo glatt. Hann var örugglega þarna þegar Kvikk var og hét. Þá gekk hann undir nafninu herra Kvikk. Það brást ekki að þegar maður kom í Kringluna að þá sá maður Herra Stjörnutorg að störfum. Alltaf í hvert einasta skipti.

En nú er hann herra Stjörnutorg horfinn á braut. Allavena hef ég ekki séð hann í dágóðan tíma. Og þá vakna spurningarnar. Hver er hann? Hvar er hann? Hvert fór hann? Ætli hann sé að þurka af borðum í Smáralind? Jafnvel í mjóddinni? Það eru allavena stál heppin borð sem fá þess heiðurs aðnjótandi að láta Herra Stjörnutorg þurka af sér.

Kringlan er ekki söm án hans.

Tribute til Herra Stjörnutorgs.

Þangað til næst…..

Monday bloody monday

Eins og sagði í textanum… eða þannig.

Konan er að fara frá mér enn einu sinni. Aftur verð ég einn í kofanum. Einhver óskast til að elda fyrir mig og taka til á meðan hún er í burtu gegn vægu gjaldi eða góðvild. Annars er það bara 1944 fyrir kjellinn og þar sem að maður borðar bara 1 tegund af því að þá nenni ég ekki að gúffa í mig kjötbollum í brúnni í 2 vikur.

Bíllinn var rafmagnsslaus í morgun sem má rekja til gríðarlegs klaufaskaps og klúðurs því einhver ónefndur aðili lokaði farþegahurðinni ekki almennilega á laugardaginn. Því logaði ljósið í bílnum alla helgina þar sem að hann var ekkert notaður í gær. Maður varð svona frekar pirraður á því í morgun. Ég vona bara að ónefndi aðilinn hafi ekki fengið mikinn hiksta.

En endilega verið dugleg að svara umsóknum mínum um tiltekt og eldamennsku í commentakerfið.

Þangað til næst……

Úff

Svartasta skammdegið í gangi og skaplundin eftir því. Kallinn er að gera allt vitlaust heima þessa dagana. Þræl pirraður yfir öllu, pantaði nýtt vinnsluminni í Dellarann minn í afmælisgjöf frá pabba, reiknaði með því daginn eftir en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ákváðu þessir snillingar að senda minnið til Grundarfjarðar í staðinn fyrir að senda það heim. Þannig að ég gerði allt vitlaust yfir þessu, skammaðist í konunni (eins og það væri henni að kenna) og ég veit ekki hvað og hvað. Verð að fara að hemja mig aðeins.

Leikhúsferð í kvöld. Spurning um að jakkafata sig upp og vera reffilegur á því. Ekki svo oft sem maður fer í leikhús. Enda er það bara fyrir einhverja menningarsinnaða besservissa sem finnst gaman að fara í jakkaföt. Eins og til dæmis hann Jón Frímann. Hann fór nú bara spes ferð í Herragarðinn til að versla sér jakkaföt fyrir þessa leikhúsferð. Ætli hann komi ekki til með að sitja í klefanum sínum úti á sjó í jakkafötunum að horfa á psp tölvuna mína sem hann plataði mig til að selja sér. Djös plebbinn.

Hvað er svo málið með þessa rauðhærðu Idol wannabe í Ástarfleyinu??? Hvert skipti sem hún kemur í mynd þá byrjar hún að gaula eitthvað…. Hvað er málið. Af hverju skráði hún sig ekki bara í Idolið og fékk sína 5 mínútna frægð þar. Svona fólk pirrar mig enda er þetta athyglissýki á háu stigi.

Prump out

Þangað til næst…..

Púðurslúður

Jæja, long tæm nó hír, búið að vera sæmilega mikið að gera hjá manni. Nú er maður einn í kotinu því konan og guttinn flúðu til Grundó í afslöppun. Skildu bara gamla kallinn einan eftir. En nú er komið að smá slúðri aaaaaaight.

Heyrst hefur….

að Soffi hafi farið í flókna aðgerð til að láta sér vaxa mottu.


Aðgerðin fólst í að skera hár frá getnaðarlimnum en aukaverkanir eru þær að Soffi greyið þarf að pissa sitjandi

að Dabbi Kvistur sé orðinn ansi vígreyfur þessa dagana yfir hækkandi verði áfengis. Dabbi er hér að messa yfir lýðnum um hertar mótmæla aðgerðir.


Það má geta þess að stuðningsmenn Dabba voru þeir Lalli Johns og Viggi Runna

að Dabbi Wium sé orðinn ansi hreint stórtækur í útgerðarmálum og sé búinn að stofna útgerð og festa kaup á bát.


Sigga Skipstjóri er hérna ásamt einum hásetanum að reyna að kasta í smá fisk

að Rut Rúnars sé búin að stofna kynlífshjálparlínu fyrir fátæka. Mínútan kostar aðeins 12.90 mínútan.


Rut er hér að gíra sig í fyrsta símtalið en það var enginn annar en Gísli Göngutúr sem var fyrsti viðskiptavinurinn og hlaut hann að launum 3 fríar mínútur, til hamingju Gísli.

að Eskimói hafi fundist á gangi í Hlíðunum.


Eskimóinn var nokkuð hress miðað við aðstæður

að eitthvað furðulegt fyrirbæri hafi rekið á land á Grafarnesi.


Fyrirbærið sést hér ofan á faratækinu sínu í góðum gír

að Tommi Dittu hafi haft svo rosalegar áhyggjur af kollvikunum sínum að hann hafi ákveðið að fara í hárígræðslu erlendis.


Tommi fékk besta verðið á klipparastofu í Harlem

að Bjössi Kolla hafi fengið sig fullsaddann af leiðinda miðbæjardjammi að hann hafi stofnað tjalbúðar borg fyrir austan og titlað sjálfan sig borgarstjóra.


Borgin hans Bjössa hefur íbúafjölda uppá þrjá

að Begga Jobba sé búin að kaupa sér nýtt dress fyrir skólagönguna


Begga tekur sig gasalega vel út í nýja dressinu

að Rúna Jobba sé farið að vinna við að kynna nýja ópalinn í Hagkaup


Hressir bætir og kætir

að Maggi Jobba hafi á dögunum skrifað undir lítið plagg sem veitir honum rétt til að pissa í glas þegar honum sýnist.


Maggi er hérna sáttur að losa en sökum velsæmis birtum við bara andlitið á drengnum

að þeir sem drekki of mikið að RC Cola eigi ekki von á góðu.


Þessir drukku sitthvort glasið og urðu alveg snar feilaðir áðí

að skortur á negrum sé yfirvofandi.


Nokkrir athafnamenn úr Ólafsvík voru ekki lengi að kippa því í liðinn

Ég held að þetta sé bara orðið alveg ágætt. Og endilega verið nú duglegri við að commenta aight.

Þangað til næst…

Mánudagur

Jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeesssssssssssssssssssssssssssssss Heeeeeeeeellllllll JJJJJJJJJjjjjjjjjjjjjeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee

Svona leið mér í gær þegar Man Utd vann Chel$ki á OT í gær. Djöfull var það sætt að vinna þessu fokdýru rússamellur. Portúgalski hrokagikkurinn hann Moroninho hefur grátið söltum tárum ofan í koddann sinn í nótt og bölvað “heppni” minna heittelskuðu United manna.

En nóg um það. Nú er þessi frekar erfiði en samt venjulegi mánudagur í gangi hjá manni. Er með dúndrandi hausverk í vinnunni og hef oft verið betur upplagður þrátt fyrir þennan sæta sigur minna manna í gær.

Þangað til næst…..

ammli gott

þetta var rosalega fínt og takk fyrir allar kveðjurnar á þessum síðustu og verstu. Eftir vinnu fórum við Rúna á Rauðará og borðuðum. Þar gaf Rúna mér afmælisgjöfina mína og það var sko ekkert smá. Heill bassi takk fyrir. Eitt Ibanes kvikindi Hell Je

Nú getum við í Kvaðratrótinni farið að rokka fljótlega. Þarf bara að fjárfesta í einu magnara kvikindi og þá fyrst byrja grannarnir að kvarta.

En nóg í bili. Vil nota tæki færið og óska vertanum í Baulunni til hamingju með daginn en hann átti afmæli 1 nóv og svo Nínu frænku minni sem átti afmæli 3 nóv. Til lukku með það.

Þangað til næst…..

Í dag….

Í dag er merkilegur dagur.

1755 Mary Antoinette fæðist
1913 Burt Lancaster fæðist
1969 Fieldy bassaleikari KoRn fæðist
1974 Hommarapparinn Nelly fæðist
1976 Tommi fæðist

Hell je. ég á afmæli í dag. Eitt ár enn komið í bunkann.

Þangað til næst…..

Ammli

Á morgun hætti ég að vera 28 ára. Sniff

Þetta er því síðastafærslan mín sem 28 ára einstaklingur. Næst þegar ég skrifa eitthvað verð ég 29 ára… Fokking 29 ára plebbi með hor. Andskotinn. Það er ekki svo langt síðan ég var að blása á 10 kerti.

Þangað til næst…..

Lítill drengur

Óðum steðjar að sá dagur,
afmælið þitt kemur senn.
Lítill drengur, ljós og fagur
lífsins skilning öðlast senn.
Vildi ég að alltaf yrðir
við áhyggjunar laus sem nú
en allt fer hér á eina veginn:
Í átt til foldar mjakast þú.

Ég vildi geta verið hjá þér
veslings barnið mitt.
Umlukt þig með örmum mínum.
Unir hver með sitt.
Oft ég hugsa auðmjúkt til þín
einkum, þegar húmar að.
Eins þótt fari óravegu
átt þú mér í hjarta stað.

Man ég munað slíkan,
er morgun rann með daglegt stress,
að ljúfur drengur lagði á sig
lítið ferðalag til þess
að koma í holu hlýja,
höfgum pabba sínum hjá.
Kúra sig í kotið hálsa,
kærleiksorðið þurfti fá.

Já góðir hálsar, afmælið mitt er á næsta leiti. Verið vakandi fyrir nýjum tilkynningum.

Þangað til næst…..