Ný mynd

B2 setti myndasíðuna hans Soffa algjörlega á hliðina. Það borgar sig að auglýsa á B2.is En það er komið í lag núna og verið er að vinna í að skella upp öflugri vél fyrir síðuna.

En hvernig líst fólki á nýju myndina hérna fyrir ofan??? Ef að viðtökur eru slæmar svissum við bara um mynd. Koma svo með komment.

Þangað til næst….

Gott að búa í Breiðholti

Á laugardagsmorgunin vöknuðum við Rúna við að einhver var að spila Prins Póló í botni aftur og aftur. Það má geta þess að klukkan var rétt rúmlega 9. Rúna fer frekar pirruð niður og komst að því að lætin komu neðst neðan úr kjallara úr einhverju leiguherberginu. Þar mætir henni afskaplega kurteis blindfullur drengur sem spyr hvort hún fýli ekki Prins Póló. En hann sagðist vera að fara í “annað partý” fljótlega. Ekki linnti látunum þann daginn og svo um sex leytið þá heyrast þessi þvílíku brot hljóð og barsmíðalæti fyrir utan. Við Rúna förum út á svalir sem og aðrir íbúar í íbúðunum við hliðina og fyrir ofan og þar sjáum við þennan sama dreng og um ræddi hér fyrir ofan, alblóðugan öskrandi og æpandi út úr ruglaðann. Þá var hann búinn að kýla í gegnum rúðuna á hurðinni niðri og allur skorinn og blóðugur. Mamma þessa drengs hringdi bara á lögguna og lét hirðann, sem betur fer. Djöfulsins skítapakk. Gaurinn sem leigir hjá okkur Rúnu var alveg brjálaður yfir þessu. Enda skiljanlegt þar sem að hann kom heim úr vinnu kl 3 á föstudagsnóttina, þá var standandi partý, og fór aftur í vinnu kl 2 á laugardeginum, þá var ennþá standandi partý, og aumingja leigjandinn okkar gat ekkert sofið og var ekki að spara lýsingarorðin þegar hann hringdi í mig til að kvarta. Hnuuusssss.

En nóg um það, ég verð bara pirraður af því að tala um þetta dópistafífl.

Og eitt enn… ég á sætustu og bestustu konu í heimi. Og sætasta barn líka 🙂

Þangað til næst……

DOOM

Ég og mæ men Big Goj gerðumst svo menningarlegir í gær og fórum í bíó. Ég hafði nú ekki farið í bíó í háa herrans tíð, mig minnir að síðasta myndin sem ég sá í bíó hafi verið The Birds eftir Meistara Hitchkock. Eníveis að þá fórum við Gaui á þessa mynd.. DOOOOOOOM sem er gerð eftir samnefndum tölvuleik. Mér fannst þessi ræma bara alveg eins og ég bjóst við. Semsagt að ég varð ekki fyrir vonbrigðum og er heldur ekki frá mér numinn af hrifningu. Fínasta ræma, fer í sama flokk og Alien vs Predator og þessháttar vísindaskáldsögusull. The Rock er helvíti svalur gaur. Svo verð ég bara að taka undir með Finna vinnufélaga mínum að svalasta atriðið var þegar gaurinn var að drepa skrímslin alveg eins og í leiknum. Þ.e. að það sást bara í byssuna þegar hann var að hlaupa eftir allskyns göngum, krókum og kimum. Helvíti svalt.

Annars er maður bara þræl kvefaður í vinnunni og það er frekar rólegt eins og svo oft áður. Það er þessi tími segja þeir. Verst að ég er búinn að smita Kristján Frey af þessum óþverra og nú er litla krílið mitt farið að hósta svona þurrum og ógisslegum hósta eins og ég. Aumingja litla krílið 😦

20 mínútur eftir af þessum vinnudegi. United að gera jafntefli við Tottenham. Annars bara adíós amígós.

Þangað til næst…..

Föstudagur

Heyrst hefur….

að Steinar Áslaugs þyki ansi gaman að fara með einleik í sunnudagaskólanum.


Steinar er hér í gervi Jesús frá Nazaret

að fyrir langa langa langa langa löngu hafi Logni Stormson verið lítill og sætur.


En við tökum það fram að þetta var fyrir langa langa langa langa löngu

að Simmi hafi á dögunum staðist skyndipróf í sjálfsbjargarviðleytni 103.


Simmi kemur hérna fagnandi út úr skólastofunni.

að rokksveitin súpa ætli að hita upp fyrir opnunarræðu óla grís á Erveivs hátíðinni.


Frá vinstri: Slúbbi, Keli, Dræsill og Grútti

að Soffi snúlli bjóði nú upp á nýja þjónustu


Þjónustan felst í allrahanda nefborun á lágu verði

að Gæi Hadda sé sestur á skólabekk á ný og taki nú námið gríðarlega alvarlega


Gæi er hérna hjá sérkennaranum sínum að fara yfir stafrófið

að Fanney Dóra sé of hipp og kúl til að taka þátt í svona vitleysu


Fanney vildi ekki láta smella þessari mynd af sér

að Evu Sleggju finnist sopinn ooooof góður


Sleggjan er kominn með auglýsingastyrk hjá Kaffi Austurstræti

að Tinna Ágnús hafi á dögunum bætt heimsmetið í 10 metra spaghettílengjusogi.


Tinna bæti metið um heilar fjórar sekúndur

að Ingveldur litla sem hefur tekið sér listamannsnafnið IGG og Rebba hafi dottið feitt íða um daginn og djammað af sér afturendann


Hérna eru skvísurnar sveittar á Kringlukránni í feitum fýling

Þangað til næst…..

Sjitturinn

Það er strax aftur að koma helgi. Vikan var rétt svo byrjuð. Kannski spilaði það inní að ég er búinn að vera veikur í einhverju hitamóki heima í 2 daga. Þannig að þeir dagar duttu hreinlega bara út hjá mér.
Annars er allt fínt að frétta. Kristján Freyr orðinn svakalega duglegur í sundinu. Farinn að fara í kaf og alles eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Myndirnar hrúgast inná myndasíðuna hjá Soffa og vil ég benda öllum sem vantar myndasíðu að tékka á þessu. myndir.ekkert.is Ekkert verð ekkert bull.

Þangað til næst…..

Föstudagur í dag

Jæja gott fólk. Nú er kominn föstudagur og helgin að ganga í garð. Á föstudögum er alltaf gaman. Þá er alltaf nóg að gera í ríkinu og sollis. Rok og rigning og svolítill haustbragur á þessu. En nóg um það. Allt að gerast á þingi vestfirskra bænda. Palli Beljubakur hyggst kaupa sér meiri mjólkurkvóta og Siggi frá Straumi hótar Tóta á Mel barsmíðum ef hann rekur ekki rollurnar sínar úr landinu sínu.

Heyrst hefur…..

að Haddi Rutlu sé nokkuð nettur á því þegar kemur að oral gluggaþvotti.


Haddi er hérna nýbúinn að sleikja 3 randaflugur af glugganum heima hjá sér

að Rutlan hafi á dögunum verið kærð fyrir kynferðislega áreitni gagnvart saklausum þýskum ferðamanni.


Vesalings ferðamaðurinn átti sér einskis ills von og verður aldrei samur eftir þetta. Hann dvelur nú hjá Stígamótum

að það sé að komast í tísku að elda kraftmikla kjötsúpu á Flúðum.


Það vantar ekki kraftinn í þessa kjötsúpu

að Sleggjan sé meiri sleggja en gengur og gerist.


Nú verður hver að dæma fyrir sig um sleggjuskap sleggjunnar

að Þórhildur hafi skellt sér á afar flókið ljósmyndaranámskeið á dögunum.


Þórhildur er hérna einbeitt á svip að læra “að smella af”

að hljómsveitin Dudek and the donkeys hafi slegið í gegn með coverslagarann sinn Júll Never Wolk alón.


Þeir félagar halda allir mikið upp á Liverpúl og þetta er víst eina lagið sem þeir kunna

að Soffi sullskór hafi tileinkað sér nýja tækni til að hlaupa ofan á vatni.


Soffi segist ekki vilja gefa upp leyndarmálið en viðurkennir að það tengist miklu kaffibaunaáti.

að Dabbi Wium sé svoddann jólasveinn


Alltaf stuð á jólunum með Dabba W.

að nýi Bachelorinn sé loksins fundinn. En það er enginn annar eeen…


Loooooooogni Stormsoooon (brjálað lófatak og fagnaðarlæti)

að títtræddur Logni hafi farið í sjóræningjaskólann síðasta vetur.


Logni er hérna að læra að skrúbba dekkið

Þangað til næst….

Ungbarnasund

Í gær fórum við Rúna með Kristján litla í sund. Sá skemmti sér vel. Það var svo gaman hjá okkur að það hálfa hefði verið miklu meira en nóg. Þessi Snorri sem er með þetta er snillingur.

Svo verð ég að segja ykkur hvað ég á góða konu. Ég kom heim í gær eftir vinnu og tók mig til við að horfa á landsleikinn. Rúna fer eitthvað að brasa í eldhúsinu. Svo eftir það fer hún að sópa gólfið. Og af því að við eigum ekki ryksugu þá fer hún að gera svona ryksuguhljóð með munninum til að trufla boltann. Svo að sjálfsögðu þarf hún mest að sópa fyrir framan sjónvarpið. Virðist alltaf vera mesta rykið þar. Svona var hún með sópinn í hendinni og gerandi einhver ryksugubúkhljóð í leiðinni, svona er þetta nú góð kona.

Þangað til næst….

Góð saga er aldrei sögð nógu oft

Ég var að vafra í gegnum gömlu færslurnar mínar og rakst á þessa skemmtilegu sögu sem ég ætla að láta flakka aftur. Enda finnst mér hún mjög fyndin hrmpf (heimskur hlær að sjálfs síns fyndni segir einhversstaðar). Here goes:

febrúar 12, 2004
Lag dagsins er: Beautiful Day

Lag dagsins er: Beautiful Day með U2

Já eitt hérna, Gústi Alex litli bróðir minn átti afmæli í gær, peyinn varð 16 ára. Shit, ég man þegar ég varð 16 ára og fannst ég vera tilbúinn í allt. Djöfull er tíminn fljótur að líða, mér finnst nú ekki svo langt síðan að maður var oft að passa Gústa í Söðulsholti, en svona er þetta marr, uusss.
jæja, allavena til hamingju með daginn í gær Gústi minn.

Þetta minnir mig reyndar á söguna um alverstu skítalykt sem ég hef á ævinni fundið. Ekki tengja það samt neitt við Gústa Alex nema að þetta gerðist á þeim tíma sem að hann var pínku ponsu lítill.

Lífið í Söðulsholti gekk yfirleitt sinn vanagang, vorin voru yfirleitt mjög skemmtilegur tími, skólinn að verða búinn og sumarið framundan, mig minnir að ég hafi verið svona 12 – 13 vetra og Ninni bróðir 5 árum yngri. Við vorum mikið saman eins og gefur að skilja enda ekki mikið um félagsskapinn í sveitinni. Ekki það að Ninni hafi verið slæmur félagsskapur langt því frá. Við brölluðum margt skemmtilegt saman. Svo var það einn vordaginn að gesti bar að garði í Söðulsholtið, þetta fannst okkur bræðrum ákaflega spennandi enda skemmtileg tilbreytni að fá gesti í heimsókn. Gestirnir í þetta skiptið voru frá Grundarfirði, einhvað hestafólk sem ég man ekki alveg hverjir voru fyrir utan einn sem kemur við sögu hér, mig minnir að Kjarri Jéra og Bjarni Eyjólfs hafi verið í þessu föruneyti en vegna gloppótts minnis og margra ára gæti mér skjátlast. En eitt man ég að Rögnvaldur gamli frá Grundarfirði var þarna með. Fyrir þá sem ekki vita er Rögnvaldur gamli mjög sérstakur gamall karl. Grundfirðingar vita nú allt um hann og hans sögu en fyrir þá sem vita það ekki þá er hann mjög stór maður, allavena fannst okkur bræðrum það enda ungir að árum og litlir miðað við aldur.
Þegar allir gestirnir eru komnir inn í andyrið vekur Rögnvaldur strax athygli okkar bræðra, ekki veit ég af hverju það var en það gæti hafa spilað inn í að karlinn virtist eitthvað hálf slappur. Þegar inn var komið fóru allir inn í eldhús, nema Rögnvaldur, hann laumar sér inn á klósett. Enginn gefur þessu neinn gaum nema við Ninni, enda þurfti Ninni að mig minnir að nota klósettið. Svo líður tíminn að því er virtist óra lengi og aldrei kemur karlinn út af kamrinum. Ninna var hætt að lítast á blikuna enda bara eitt klósett í kotinu. Svo líður og bíður og loksins, já ég segi loksins, heyrist einhver umgangur af klósettinu. Við Ninni öndum léttar enda á þessum tímapunkti farnir að hafa áhyggjur af því að karlinn væri hreinlega dauður og við fengjum aldrei að nota klósettið aftur. Sáum fram á að þurfa að létta á okkur út í skurði eða eitthvað álíka.
Loksins opnast hurðin og Ninni stekkur af stað í átt að klósettinu og mætir Rögnvaldi gamla í dyrunum, ég horfði svona á eftir honum og sá viðbrögðin þegar hann mætti Rögnvaldi, það er svolítið erfitt að lýsa þessu, en það var svona svipað og að Ninni hefði stungið hausnum upp í rassgatið á rotnandi hesti sem hefur legið í 6 vikur ofan í rotþró. Skelfingarsvipurinn á stráknum var rosalegur, hann hvítnaði allur upp og sneri við í snarhasti. Ekki liðu nema svona 4 sekúndur þangað til ég komst að því, ðe hard vei, af hverju viðbrögð Ninna voru svona allsvakaleg. Skítalyktin breiddist um húsið eins og eldur í sinu. Rögnvaldur sá greinilega viðbrögð okkar enda var engin leið fyrir okkur að leyna þessum ósköpum, gamli karlinn rölti bara fram hjá okkur eins og ekkert hefði í skorist á meðan við vorum þarna í dauðateygjunum að reyna að gaspra í súrefni. Við sáum okkur þann kostinn vænstan að flýja hreinlega út úr húsinu til að fá loft, jesús minn, verri lykt hef ég aldrei fundið um ævina.
Ekki hættum við okkur inn aftur fyrr en gestastóðið var farið af bænum og þá ennþá vottaði fyrir helvítis lyktinni.

Ástæðan fyrir þessari sögu er bara sú að mér datt þetta í hug í Félagsfræði tíma í morgun. Vissulega eru einhverjar ýkjur vegna misminnis en grunnurinn er nokkurnveginn réttur.

Svona eru bernskuminningarnar skrítnar, poppa bara upp þegar síst varir, það lá við að ég hefði fengið hláturskast í tíma en sem betur fer náði ég að halda niður í mér hlátrinum og forðaði mér frá því að hafa mig að fífli, finnst betra að gera það hér á blogginu hehehe.

Jæja, nóg í bili.

Þangað til næst……

Vonandi höfðuð þið gaman að þessu.

Þangað til næst…..

Fyrir ári

Þetta var fyrir einu ári síðan. Það má svo geta þess að frk E.E er engin önnur en Ellen Ellertsdóttir

október 11, 2004
Siggalafó

Rigningarsuddafokkingmánudagshelvíti

Leiðinda veður, leiðinda dagur, leiðinda árstíð og leiðinda kjötsúpa

Fórum vestur ég og lufsan um helgina og tókum frk E.E með okkur. Það er nú eiginlega ævintýri útaf fyrir sig að ferðast með frk E.E og taka hana með sér á staði. Frk E.E er skemmtilegur ferðafélagi. T.d er frk E.E einstaklega hrædd við hunda þó að hún sé komin vel á þrítugsaldurinn. Ég og Rúna fórum heim til mömmu þar sem eru 2 litlir sætir dúllu hundar. Ég geng fyrstur inn um hurðina og á eftir fylgir Rúna og svo frk E.E. Hundarnir byrja að gelta á frk E.E og aumingja frk E.E fær þetta líka litla sjokk. Grípur þéttingsfast í Rúnu og felur sig á bak við hana og í leiðinni rekur hún hausinn í vegginn og fær kúlu. Svo er frk E.E alveg eins og kleina á meðan á heimsókninni stendur. Ég gat bara ekki hætt að hlæja að henni, þetta var allt of fyndið.

Set myndir inn við fyrsta tækifæri hehehe.

Þangað til næst…..

Kolkrabbinn

Hvað varð um þennan stórmerkilega kolkrabba sem allir voru að tala um hérna í denn??? Er hann ennþá til? Er Mogginn Kolkrabbinn? Dó Kolkrabbinn þegar Dabbi Odds dró sig í hlé? Hvar er hann? Hver er hann? Hvert fór hann? Fór hann kannski ekkert? Um hvað er ég að tala? Er ég Kolkrabbinn? Hjáááááááááálp.

Þangað til næst….