Þá er það orðið official. Knattspyrnufélagið sem áður bar nafnið FC Fist heitir nú hinu virðulega nafni Vatnsberar.
Þangað til næst….
Þá er það orðið official. Knattspyrnufélagið sem áður bar nafnið FC Fist heitir nú hinu virðulega nafni Vatnsberar.
Þangað til næst….
Soffi, þú þarft að athuga —ÞETTA—
Þangað til næst…..
Var að uppgvötva nýja bloggara og að sjálfsögðu fá þær Elsa Fanney og Dagmar link hjá kallinum, jíha
Þangað til næst….
Nú er páskadagur og um að gera fyrir alla sem eiga vettling að borða eins mikið af páskaeggjum eins og þeir geta í sig látið.
Við Rúna erum bara stödd í Grundarfirði í sveitasælunni. Hér er mikið chill í gangi enda höfum við það mjög fínt. Veisla á hverjum degi.
Helvítis Frakkar. Ekki hægt að treysta á að þeir geti unnið skítalið Sviss fyrir fimmaur. Ég var semsagt að tippa í gær, tippaði á 6 leiki og svo í gærkveldi þegar ég var að athuga með árangurinn voru 5 leikir af 6 búnir. England hafði unnið N.Íra sannfærandi 4-0 þar sem ég hafði tippað á að þeir ynnu með 2 mörkum eða fleiri. Króatía burstaði Ísland þar sem að Tommi hafði tippað á að þeir ynnu með 2 eða fleiri. Þýskaland vann Slóveníu á útivelli. Argentína vann Bólivíu á útilvelli og Ítalir unnu skota með meira en einu marki. Þá var bara helvítis Frakkaleikurinn eftir og hann var enn í gangi þegar undirritaður athugaði stöðuna og lítið eftir af honum. Staðan var fokking 0-0 og þannig endaði helvítis leikurinn. Ef að Frakkar hefðu drullast til að vinna leikinn á heimavelli eins og allir ætluðust til af þeim væri London vísareikningurinn minn 20.000 kr lægri. En í staðinn er hann 2000 kr hærri. Hnuss. Heimsku Frakkar. Heimski Henry og Heimski Viera og allir þessir frönsku pappakassar sem geta bara átt sig og sinn hroka. Fávitar.
En nú ætla ég að njóta þess að borða páskaeggið mitt nr 5 sem elsku tengdó keypti handa mér og athuga hvort að það lagi ekki pirringinn minn.
Þangað til næst…..
Nú er föstudagurinn langi og ég er ekkert að botna í því hvers vegna hann er kallaður föstudagurinn langi. Nú er kl rúmlega tvö og mér finnst dagurinn búinn að vera einstaklega fljótur að líða. Föstudagurinn langi er eitthvað í sambandi við þegar Jesú litli frá Nazaret var krossfestu… eða eitthvað svoleiðis. Einum of langt síðan ég var í kristinfræði.
Steini Jobba er búinn að fara hamförum í nýju íbúðinni okkar Rúnu og er búinn að mála loftið og eina umferð á veggina. Nú er bara að bíða eftir því hvað Maggi Jobba vill gera við eldhúsið mitt. Væntanlega flytjum við inn fljótlega eftir páska. Ooooh það verður svo ljúft að þurfa ekki að flytja 2svar á ári. Að geta verið í sinni eigin íbúð og þurfa ekki að búa í pappakössum. Jebeibíje.
Við Rúna ætlum að fara að pilla okkur til Grundó og hanga þar yfir páskana. Éta eitthvað gott vonandi og slappa af. Steini klárar að mála á meðan. Ekki það að ég myndi ekki hjálpa honum en hann vill frekar gera þetta einn kallinn. Enda hefur maður nú ekki mikið vit á málningarvinnu og væntanlega myndi maður sletta slatta af málningu á parketið hrmpf.
Jæja, þetta fer að verða gott af röfli í bili. Þarf að fara að skjótast með hjólið hans Ninna í skúrinn til Vigga. Adios.
Þangað til næst…..
Já, við fengum íbúðina okkar á laugardaginn. Fínt fínt, nú er bara að skvetta smá málningu á veggina og kannski loftið og þá ætti þetta að verða klárt. Það þarf reyndar að flikka aðeins upp á eldhúsið en ég hugsa að heilsu minnar vegna sé best að leyfa Rúnu að stjórna þessu. Það er semsagt fjör framundan í Blöndubakka 10. Vonandi að við flytjum einhverntímann eftir páska.
4 meðlimurinn er kominn í ofurmótorhjólaracerklúbb Grundarfjarðar. Ninnmundur er nefninlega búinn að fjárfesta í einum racer árg 75, 26 hestöfl og 480 kg. Ofur græja alveg. Til hamingju Ninni.
Ég er að braggast af þessum lasleika sem betur fer enda kominn á sýklalyf. Reyndar eru þau þess valdandi að ég er með vatnshægðir í hvert skipti sem ég þarf að losa en það verður bara að hafa það.
FC Fist var að keppa í sínu síðasta móti í gær en þegar það keppir næst mun það heita eitthvað annað, sem betur fer. Hrannar og Gæi voru að keppa með okkur. Ekki það að Gæi hafi ekki verið hress en come on Gæi, Ælandi eins og múkki eftir fyrsta leikinn. Rólegur í eplasnafsinum svona daginn fyrir leik.
Þangað til næst….
Jæja, nú er föstudagur og þið vitið hvað gerist á föstudögum… Allir fara í ríkið nema Tommi hehehe.
Heyrst hefur…..
að á ferðalagi sínu um heiminn hafi Signý.is tekið fugladansinn einum of alvarlega.
að keppnin um strekktasta brosið hafi farið fram á Gauknum um liðna helgi
að Hobba Hólmari sé orðin langþreytt á spassalátunum í Gumma Palla
![]()
Hobba fæst þó til að brosa annað slagið
að Gummi Palla sé farinn að ganga full vasklega fram þegar kemur að því að vera með spassalæti.
![]()
Ekkert skrítið að Hobba sé orðin þreytt
að Rósa sé orðin sólgin í hnetusmjör blandað saman með súrmjólk
![]()
Rósu finnst þetta ógurlega gott eins og sést á þessari mynd… skrítið
að Siggi súri og Denni Diskó séu búnir að opinbera
að Viggi Runna sem aldrei hefur verið við kvenmann kenndur, sé búinn að klúðra eina sénsinum sem hann átti með of bráðu sáðláti.
![]()
Viggi var akkúrat að fá úr honum þegar ljósmyndari náði að smella af
að Rósa hafi enn einu sinni sent frá sér ánægðan viðskiptavin.
![]()
Þessi tiltekni kúnni var ánægðastur með góða þjónustu
að Jóhanna Beck og Stankurinn hafi þurft að hlusta á þjóðsögur Jóns Árnasonar lesnar upp af samtökum stamara í 14 klst.
![]()
Jóhanna náði mun betri árangri en Héðinn með því að halda sér vakandi í 17 mínútur
að Atli Kristins kunni bara alls ekki að borða tyggjó.
![]()
Það vita nú allir að tyggjóið á að fara í munninn en ekki nefið
að Atli verði líka alveg einstaklega reiður þegar einhver minnist á þetta tyggjó vandamál við hann.
![]()
Hér er hann búinn að dulbúa sig sem Bin Laden og ætlar að berja einhvern illilega
að Ninni Dittu sé farinn að klæðast grænu til að mótmæla gróðurhúsa áhrifum frá vélknúnum bátum.
![]()
Ninni er hér að mótmæla kröftuglega niðri við höfnina
að frændurnin Tommi og Dabbi hafi skellt sér í maraþon bíó í síðustu viku.
![]()
Drengirnir fóru að sjá Syster Act 2 48 sinnum í röð
að Tommi hafi gert kjarakaup þegar hann fjárfesti í þessum forláta Skoda Favorit árg sautjánhundruðogsúrkál fyrir 6 millur.
![]()
Hann fékk meira að segja vegakort af Fáskrúðsfirði í kaupbæti
Jæja, þetta er ágætt í bili.
Þangað til næst…..
Jójójó, ekki það að mig langi í jójó þá vissi ég bara ekki hvernig ég átti að byrja þennan guðsvolaða pistil.
Tímabilið hjá FC Fist er að byrja. Það er talað um að skipta um nafn á liðinu sem er gott. Allar ábendingar um nýtt nafn á þetta merkilega fótboltalið eru vel þegnar í commentakerfið hér að neðan.
Ég og Auðunn erum búnir að sníkja út styrki hjá góðum fyrirtækjum fyrir staðfestingargjaldinu sem þarf að borga í síðasta lagi á morgun. Við gengum frá því nú í dag þannig að allt er komið á fullt. Svo erum við líka búnir að fá æfingarvöll hjá Fram kl 22:00 á þriðjudagskvöldum. Þar höfum við hálfann völlinn í eina klst. Þannig að það er æfing næsta þriðjudag aight.
En nóg um það. Rúna mín er orðin huge. Ég veit hreinlega ekkert hvað ég á að gera í þessu. Það er varla að maður komist fyrir í rúminu lengur. Svo er hún alltaf bröltandi um allar nætur og maður fær engann svefnfrið ofan á allt saman. En þessi elska er nú líka búin að ganga í gegnum ýmislegt og á skilið verðlaun fyrir allt harkið. Þannig að hún kemst nú líka upp með ýmislegt í mínum augum. Ég reyni að láta allt eftir henni 😉
Maður er nú orðinn veikur aftur ofan á allt saman. Kominn með einhvern hálsbólguhitahóstaskít. Ég stóð í þeirri meiningu að ef maður er veikur að þá styrkist ónæmiskerfið þannig að maður yrði ekkert veikur aftur í bráð. Eeeen neeeei að sjálfsögðu þegar Tomminn er að braggast af ensku veikinni að þá kemur bara önnur veiki í staðinn. Hvur andskotinn gengur eiginlega á með þessu?
Mínir menn í Inter rúlluðu upp Porto í gær sem betur fer. Það er allavena eitt af mínum uppáhaldsliðum sem komst áfram. Adriano sá um að skora mörkin í gær. Nokkuð nettur á því kallinn.
Jæja, nóg af röfli í bili. Kannski og bara kannski kemur slúður fyrir helgi. Sjáum til. En endilega komið með tillögur um nýtt nafn á fótboltaliðið mitt í commentakerfið aight.
Þangað til næst……
Var fyrir vestan, nú er ég ekki lengur fyrir vestan, sem er slæmt.
Þangað til næst…..
Af hverju vill enginn kaupa hugverkasjóð Tomma. Kannski að það sé nú ekki svo mikið þar á bakvið. Nokkrar slappar íslenskuritgerðir síðan í sjöunda bekk og svo eitt bassastef sem ég samdi með Soffa. Ekki mikils virði en ég myndi nú alveg sætta mig við eins og eina pylsu fyrir góssið, kannski eina kókómjólk meððí.
Hygg á ferð vestur á morgun. Þarf náttúrulega að sækja betri helminginn, eða kannski besta helminginn, sem er farin að gera sig ansi hreint heimkomin hjá mömmu sinni. Maður efast bara um að hún vilji nokkurn tímann koma til mín aftur.
Hér er svo texti sem ég var að semja sem er falur fyrir rétt verð:
Í borginni er gaman
þar búa allir saman
búa úti og inni
og allir eru með
drekka bjór og skíta
þið ættuð bara að vita
í borginni menn hafa gott
og gaman af því héééééér
Þangað til næst…..