GRUNDARFJÖRÐUR REPRESENT

Jæja, þá getur maður loksins horft fram á veginn eftir strembna tíma undanfarið. Þetta sumar leggst hálf furðulega í mann. Áður fyrr voru sumrin tími djamms og fyllerís og maður beið alltaf eftir vorinu fullur tilhlökkunar eftir þessum 13 helgum sem framundan voru, og þar var sjómannadagshelgin yfirleitt fremst á meðal jafningja. En nú er nýtt tímabil að hefjast hjá Tommanum og maður er farinn að horfa allt öðruvísi á lífið. Edrú skal það vera og hananú. Maður er einhvernveginn í miklu meira sambandi við sjálfan sig núna og allt allt öðruvísi stemming fyrir hlutunum. Kannski eru það árin sem eru að tala, ég veit það ekki, ég fletti þessu fyrirbæri upp í alfræðiorðabókinni og þar er þetta víst kallað “að þroskast” hvað sem það nú er. Kannski kominn tími á það, en allavena þá horfir maður temmilega bjartsýnn fram á við.

Þið sem hættuð að lesa í þriðju línu… Fokk jú en þið sem hlustuðuð á þetta persónulega væl þá lofa ég að þetta gerist aldrei aftur. Mér líður bara svona og finnst nokkuð fínt að pústa þessu út á bloggið.

Takk

Þangað til næst……

GRUNDARFJÖRÐUR REPRESENT

Þá er maður mættur í fjörðinn fallega, fékk símhringingu seint í gærkvöldi þar sem mér var boðið að koma í löndun kl 7 morguninn eftir og þáði ég það með þökkum. Brunaði vestur og mætti gallvaskur eldsnemma. Fæ svo aðra löndun annaðkvöld sem verður eilítið erfiðari en löndunin í morgun. Helvítis fínt bara.

Allt að verða crazy inn ðe breinhás hérna hjá manni. Fantar fljúga og rækjur rappa af mikilli list. Veit bara ekki hvernig marr á að höndla svona skít endalaust.

Dabbi Odds orðinn geðveikur, spurning um að leggja kallinn bara inn enda löngu kominn tími á hann.

Jói Bling kominn með nýtt blogg og um að gera að uppfæra linkinn á kallinn enda yfirleitt mjög gaman að bullinu í honum, svona nett slétt flétt ruglaður á því hann Jói, enda með glimrandi standpínu yfir gengi Arsenal þessa dagana.

Nú er bara að vona að Man Jú girði sig í brók og drullist nú til að vinna þennan skíta FA bikar svona rétt til að bjarga andlitinu. Allt annað en sigur er SKANDALL.

Jæja, best að fara að skella sér í grill heim, heheheheheheeheheheehe gríðarleg stemming fyrir grilluðum lambalærisneiðum ala Sigrún, slef og slurp

Þangað til næst…….

Júró snúró

Þá er þetta helvítis Júravisjón afstaðið og ekki riðum við Íslingar feitum hesti frá þessu helvíti, enda ekki við öðru að búast þar sem að þetta var vægast sagt lélegt lag. Einn lesandinn giskaði á rétt sæti en það var 5 síðasta sætið og er sá hinn sami beðinn að gefa sig fram við skyggnilýsingafélagið þar sem að afgerandi líkur eru á að viðkomandi sé alveg glimrandi skyggn.

Ný könnun er á leiðinni og eru flestir hvattir til að taka þátt í henni.

Svo er maður víst á leiðinni á sjóinn og verður því líklegast ekkert slúður næst. En við sjáum bara til.

Var að keppa firsta leikinn í utandeildinni þar sem að við töpuðum ósanngjarnt 1-2 og er öllum öðrum kennt um það nema okkur að sjálfsögðu. Vellinum, dómaranum, hinu liðinu, loftslaginu, veðrinu, osfr. Gengur bara betur næst.

Þangað til næst……

Jæja fjósaliðið mitt, þá er

Jæja fjósaliðið mitt, þá er nú runninn upp fagur og fallegur flöskudagur og því ekki seinna vænna en að koma með ferskt slúður úr lífi smáborgarans.
Svo vil ég líka benda á að Júróvisjón er á morgun og því ekki seinna vænna en að kjósa í könnuninni í hvaða sæti Júró Jónsi lendir í, en hann verður hluti af slúðrinu í tilefni dagsins.

Heyrst hefur…..

að Tommi hafi tekið Ninna Dittu í einkakennslu í tölvunotkun og að sögn gangi það gríðarlega vel. Ninni kann nú þegar að opna Internet Explorer og fara inn á thehun.net, hann segist ekki þurfa að læra meira en þrjóskur Tomminn vill nú líka kenna honum á msn.

Ninni var sáttur með að komast inná http://www.spankmegood.com

að Soffi hafi á dögunum klikkast ærlega þegar hann hugðist taka flug til Vestmannaeyja. Soffi fékk að eigin sögn heiftarlegt einkenni af geðklofaflughræðslu og reyndi ólmur að naga sig í gegnum gólfið á vélinni.

Þessi mynd var tekin þegar Soffi var orðinn örmagna af þreytu eftir að hafa nagað sig ofan í farangursrýmið

að Soffi hafi seinna borað í nefið af mikilli list.

Alveg uppí heila

að Soffi beri heldur enga virðingu fyrir hinum eldri.

Einn gamlinginn fær hér fyrir ferðina

að Rutlan hafi farið á stefnumót með Gísla Marteini og drepleiðst allan tímann.

Eins og sést hérna var Rutlunni ekki skemmt

að Rutlan hafi seinna um kvöldið farið á fyllerí og föndrað sér forláta húfu úr gamalli jólaseríu.

Rutlan fór á mikið flipp eins og sést hér

að Soffi og Signý hafi kynnt sér ástaratlot simpansa og iðki þau af mikilli list.

Þetta er simpanskur blaut koss

að Tryggvi Hadda hyggi á mikinn frama í píkusleikingum og sé nú í æfingabúðum hjá Ron Jeremy.

Tryggvi við æfingar síðdegis

að Hönd dauðans sé snúin aftur, reyndar aðeins eldri og krumpaðri en áður og því telst ekki mikil hætta af henni.

Höndin var lúin eftir að hafa reynt að murka líftóruna úr litlum kettling. Kettlingur slapp með skrámur

að Rutlan hafi á dögunum höstlað sér eldri mann, Maðurinn kom rosalega kunnulega fyrir sjónir en ég kem honum bara ekki fyrir mig… Þeir sem gætu haft upplýsingar um þennan mann eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Norðupólnum.

Á meðan allt lék í lyndi

að Jónsi sé ekki við eina fjölina felldur í geitarmálum

Jónsi var sveittur eftir að þessi hafði keyrt hann út

að Rósa og vinkona sem vildi ekki láta nafn síns getið séu búnar að stofna fyrirtækið mömmukoss ehf. Þær eru með heimsendingu og opið allan sólarhringinn.

Ljósmyndari keypti einn tvöfaldann og sá ekki eftir því

að Rósa og co hafi fengið harða samkeppni og að samkeppnisaðilarnir séu með mun betri þjónustu, þær heita blautir mömmukossar ehf.

Ljósmyndari var 16 mínútur að þurrka slefið af kinninni á sér

að Blobbi og Tommi hafi á dögunum kynnt til sögunnar nýja íþróttagrein sem ber nafnið flísabolti. Æfa drengirnir nú af miklu kappi fyrir fyrsta Íslandsmeistaramótið í Flísabolta sem hefst nú um miðjann júní.

Drengirnir við æfingar í Smáralindinni, þeir brutu aðeins 4 glugga og 5 ljósakrónur sem verðu að teljast vel sloppið

að Laugi Jónasar hafi tekið inn einhverja ólyfjan og snúi nú öfugt. Þetta er að hans sögn frekar óþægilegt þar sem að hann kemst ekki út úr húsi nema að vera í bandi.

Laugi var óvenju hress miðað við aðstæður

að Big Goj aka maðurinn með þúsund andlitin hafi farið í andlitslyftingu og sé nokkuð sáttur með árangurinn eins og sést hér. Augabrýrnar lyftust um 12 cm.

Eins og sést hér þá náðist gríðarlegur árangur með þessari litlu 12 tíma aðgerð

að Viggi og Elsa hafi loksins fattað af hverju rassakinnarnar duttu af Hafnfirðingnum með skrúfjárnið.

Bjánarnir hlógu samfleytt í 4 klst þegar þau föttuðu þetta loksins

að Maggi Jobba hafi loksins unnið þann eftirsótta titil “sterkasti maður sólvalla” en Maggi hafði árangurslaust keppt í þessu síðan hann var sjálfur á Sólvöllum sem barn.

Maggi hnykklar vöðvana montinn

að Hrotti hinn mikli hafi downlódað yfir sig og liggi nú þungt haldinn á bráðamóttöku Landspítalans

Hrotti rétt fyrir áfallið en hérna er hann að stæra sig af því að vera að ná í áttaþúsundasta terabætið sitt

að Gæi Hadda sé farinn að selja Hörbalæf í frístundum.

Gæi er gríðarlega ánægður með árangurinn og hyggst halda áfram að selja Hörbalæf grimmt

að Rúna Jobba hafi eitthvað misskilið leirbaðs hugtakið.

Rúna var ósátt með að fá engan árangur af leirbaðinu

að rakaðir karlmannsleggir séu að komast í tísku.

Tomminn lætur ekki þessa tískubylgju fram hjá sér fara

að Sleggjan sjálf hafi villst af leið þegar hún ætlaði að rölta niður í miðbæ Parísar. Hún komst nú samt til byggða aftur nokkuð hrakin.

Sleggjan sló þessu bara upp í grín og leyfði ljósmyndara að smella af einni mynd

að Rúna hafi skellt sér í brjóstastækkun en læknarnir hafi aðeins misst sig í geðveikinni.

Rúna er komin með heiftarlega bakverki af þessu

Jæja, er þetta ekki orðið ágætt í bili, vil samt benda fólki á að vera duglegri að taka myndir svo ég geti verið duglegri að stela myndum aight.

Þangað til næst…….

Ótrúúúúúúúlegt

Sá fáheyrði atburður gerðist í vikunni að hinn treggáfaði Tommi náði að krafla sig í gegnum spænsku prófið með stææææææl. Var með 4.6 í vetrareinkunn sem er bæ ðe vei ótrúlegt en það sem bjargaði mér þar var munnlega prófið sem ég fékk 8 í. Svo á lokaprófinu fékk ég 5.4 og þar af leiðandi var annareinkunin 5 JE BEIBÍ JE. Lágmarksvinna í vetur og hámarks árangur. Vildi að ég gæti sagt það sama um stærðfræðina en hún fór því miður á versta veg fyrir mig. Nenni ekki að tala um það hér.

Nú á ég bara eftir að fá eina einkunn í viðbót og er ég nokkuð öruggur á fínustu einkunn þar, líklegast 6 eða 7, kemur í ljós síðar.

Föstudagsslúðrið kemur í kvöld.

Þangað til næst…….

Sögnin að slæpast

Jæja góðir hálsar, ég hef tekið þá ákvörðun að vera ekkert að koma með svona 100 liða lista því að ég einfaldlega nenni því ekki, get örugglega ekki fundið upp svona mikið um sjálfan mig hvort eð er, enda einstaklega einfaldur maður.

Keppti hálfan leik í gær og komst meiðslalaus frá honum. Unnum 4-2 en hitt liðið gafst upp í hálfleik sökum mannfæðar. Lét Steina minn teipa ökklann til helvítis áður en haldið var af stað á völlinn, tel ég að það hafi gert gæfumuninn hvað ökklann varðaði. Fyrsti alvöru leikurinn er á sunnudaginn kl 6 að Ásvöllum og reikna ég með að verða í eldlínunni þar, vonandi.

Annars er maður bara að slæpast núna, svaf fram að hádegi í dag af því að ég átti það alveg skilið, búið að vera helvítis álag á manni bæði í skólanum og svo einkalífinu en eins og áður sagði þá förum við ekki nánar út í það hér. Reikna með að skutla Steina að göngunum á eftir þar sem Begga tekur fagnandi á móti honum og ber hann áleiðis í nafla aleimsins þar sem hann mun taka upp fyrri störf að selja litlum krökkum nammi og sleikjó.

Annars er maður bara að spá í að skella sér í sturtu og þrífa storknaðann svitann úr rassaskorunni á sér eftir leikinn í gær, gút plan?

Þangað til næst……

Búinn

Jæja, þá er maður búinn með prófin á þessari önn. Ég kláraði síðasta prófið í morgun og held svei mér þá bara að ég hafi gert nóg til að slefa í gegn, enda engin ástæða til að gera meira en það aight.

Búinn að vera að dunda mér í Tæger Vúdds síðan ég kláraði skólann og setti nokkur vallarmet þar. Annars verða líklega bara rólegheit fram eftir degi en ég ætla að reyna að keppa í fótbolta í kvöld ef ökklinn minn leyfir.

Sá að Ellý hafði sett upp svona 100 liða lista um sjálfan sig eins og bloggurum þykir voða sniðugt, ég ætla að prófa þetta líka…. Here goes…

1. Ég heiti Tommi
2. Ég á vin sem heitir Steini
3. Steini var að hringja í mig núna
4. Ég þarf að sækja hann
5. Hann er að bíða núna
6. Hann er örugglega orðinn pirraður á því að bíða
7. Hann er ekki vinur minn lengur
8. Best að drulla sér að ná í hann

gotta gó… Klára þetta seinna NOT

FOR ME TO POOP ON

Þangað til næst……

Daddaraddaraaa massablað

Kallinn kominn með enn eina sjöuna í farteskið en maður massaði að sjálfsögðu félagsfræði prófið í morgun. Bullaði bara einhverja vitleysu og náði semsagt að bulla mig uppí sjö. Fór svo í spænsku kl eitt en það fór nú eitthvað minna fyrir kallinum þar. Veit ekki alveg hvernig það fer allt saman en maður verður bara að krossa fingurna og vona það besta.

Annars hefur mikið gengið á hjá manni undanfarna daga og maður er alveg á nippinu í þessu helvíti. Próflestur og svo fullt af persónulegum vandamálum sem ég fer nú ekki nánar út í hér. Ég held svei mér þá að maður verði bara að leggja sig á eftir. Eitt helvítis próf eftir og svo er bara að leggjast undir feld og íhuga lífið og tilveruna.

Au revoir moþþer fokker

Þangað til næst……

Danske skúnkenmand

Þá er danskan að baki og þá er bara að snúa sér að enn erfiðari tungumáli…. Spænskan er semsagt eftir gúlp. Djös ves að vera ekki nógu góður í þessu helvíti. El guapo es Tommi se llaman y chingo el nino. Guð má vita hvað þetta þýðir.

Skellti mér í fyrstu golf ferð sumarsins áðan. Ég og Gulli vinur minn fórum á Keilisvöllinn og tókum sitthvora fötuna og drævuðum úr þeim af mikilli list. Maður var nú bara nokkuð nettur á því og áttum við bara fínustu högg. Að sjálfsögðu komu slæm högg inn á milli en árangur minn kom mér skemmtilega á óvart þar sem að ég hef ekki spilað golf síðan ég rúllaði Ninna og Svavari Áslaugs upp á Grundarfjarðarvellinum síðasta sumar. Þá ákvað ég nefninlega að hætta á toppnum.

Könnunin fer vel af stað, enda ekki við öðru að búast af svo dyggum lesendum mínum. Haldiði nú samt áfram að kjósa og reynum að ná þessu aftur yfir 45 atkvæðin.

Það er svo gaman að segja frá því að ég er kominn með 2 lokaeinkunnir í skólanum og voru þær báðar 7, bæði í dönsku og íslensku, sem er bara ágætt ehaggi?

Annars þarf ég að fara að læra fyrir spænsku og félagsfræði.

Þangað til næst……