Rugl dagsins er: Flóðhestabúggí
Kemur á óvart hmm
Villian! You want to watch the Hero crumble and
die.
What type of Disney character are you?
brought to you by Quizilla
Þangað til næst……
Rugl dagsins er: Flóðhestabúggí
Kemur á óvart hmm
Villian! You want to watch the Hero crumble and
die.
What type of Disney character are you?
brought to you by Quizilla
Þangað til næst……
Rugl dagsins er: Hmm
Tomminn er víst kynlífsfíkill og nympho drusla á háu stigi og þarf að leita sér ráðgjafar hið snarasta. Veit ekki hvað mér finnst um þetta.

Take the What
animal best portrays your sexual appetite?? Quiz
Þangað til næst…….
Rugl dagsins er: Da dúmmadadúmmadadúmmadúmm, dúmmadadúmmadadúmmadúmm
Þetta er víst myndin sem lýsir Tommanum best hmm,
Pirates of the Caribbean!
What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla
Þangað til næst…….
Rugl dagsins er: Doddi er víst byrjaður að blogga og fær link hjá Tommanum
Rugl dagsins er: Út á sjónum er mitt líf
Já, Tomminn var að ljúka símtali við aflakónginn Rúnar Magg sem er skipstjóri á Sóley SH 124 og þar var Tomminn að lofa sér út á sjó næsta fimmtudag. Skólinn verður bara að sitja á hakanum því að Tommanum sárvantar peninga.


Í gærkvöldi skrapp Tomminn í heimsókn til Hrottans þar sem að kallinn var að setja upp einhverjar gríðarlegar græjur í íbúðinni sinni. Þetta var ekkert smáræði, skjávarpi sem vegur 53 kg og er á stærð við þotuhreyfil. DVD spilari sem kostar á annað hundrað þúsund og heimabíó sem ég vil ekki einusinni vita hvað kostaði. Þegar snúrurnar í þetta dót kosta marga tugi þúsunda þá vill maður ekki vita hvað græjurnar sjálfar kosta. Hjá Hrottanum drakk Tomminn of marga kaffibolla og úðaði í sig harðfisk með bestu list hehehe. Annars eru það bara rólegheit hjá kallinum. Þarf reyndar að vinna upp fyrir skólann áður en ég fer út á sjó, en þetta hlýtur að reddast.
Þangað til næst…….
Rugl dagsins er: Miskilningur: Svo virðist sem að stór misskilningur sé í gangi um tónleikana 10 desember. Það er víst ekki breska hljómsveitin Muse sem er að halda tónleikana heldur er það íslenska hljómsveitin Maus sem leikur fyrir dansi. Það voru svekktir plebbar sem Tomminn mætti á Laugarveginum í morgun en þeir höfðu beðið eftir miðunum á Muse frá því kl 14:39 þann 3 nóvember.
Tíhíhíhíhíhíhíhí

Já Guttinn hann Gústav Alex mætti gallvaskur í röðina á Laugarveginum fyrir allar aldir í morgun:
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Og náði í 5 miða í stúku og 4 í stæði. Þannig að þið sem eigið hina fjóra stúkumiðana, þ.e. Laugi, Gaui, Dabbi og Ninni, þar sem að þeir eru nú í vörslu Tommans þá gæti verið að þeir myndu hækka í verði ef það selst upp hehehe. Verið því viðbúnir að hósta upp meiri seðlum þegar líður á.
Þessir tónleikar leggjast bara ótrúlega vel í Tommann enda uppáhalds grúppa Tommans þessa dagana.
Þangað til næst……..
Rugl dagsins er: Hórus snýr aftur
Jæja, Tomminn er bara í rólegheitunum núna og ritar þennan litla pistil. Lítið er að frétta af gamla nema kannski að hann og Big Goj fengu sitthvora Gudjohnsen treyjuna frá London í gær, Sniiiiiiillllld.
![]()
![]()
![]()
Erum við ekki svalir hehehe
Já, Big Goj er semsagt lifandi ennþá og sestur fyrir framan…. hvað haldiði? Auðvitað fyrir framan CM, alveg ótrúlegt.
Tomminn hugðist skella sér á tónleika í gær með Brain Police og Mínus og var búinn að biðja Soffa að kíkja með sér og Soffinn játti því og allt var klappað og klárt. Eeen neeeeii, þegar Tomminn hittir stórvin sinn hann Soffa þá er kallinn (Soffi sko) bara búinn að vaka í 28 klst og í engu ástandi til að fara á tónleika, Tomminn skildi þetta svo sem alveg og ákvað bara að vera heima. Horfði bara á þessa snilld beint hérna. Mjög sniðugt, djöfull eru nú Brain Police suddalega góðir.
Beiler vikunnar: Soffi
Sjúklingur vikunnar: Big Goj
Hetja vikunnar: Soffi líka (hann fékk leiðinda sjúkdóm út á sjó og lifði af)
Standpína vikunnar: Jónsi í Svörtum Fötum
Kroppur vikunnar: Sveppi á Popp TíVí
Lið vikunnar: Man Utd (þeir verða reyndar alltaf lið vikunnar allar vikur ársins)
Jæja, nú er Gústi Alex rétt ókominn og við bræður þurfum líklega að fara snemma í háttinn til að koma guttanum snemma í Muse röðina.
Þangað til næst……..
Rugl dagsins er: Big Goj er búinn að vera veikur í 2 daga og er búinn að spila yfir sig af CM. Ef einhver þarna úti kann eitthvað gott ráð við þessum einkennum er viðkomandi vinsamlegast beðinn um að koma þeim til mín hið snarasta. Einkennin: Skjálfti, Títt munnvatnslos, Ólykt, Vindgangur (skýrir kannski ólyktina), uppköst, hiti, útbrot, fjandsamlegt augnráð, skær hlátur, tíðir andlitskippir, geðveikisleg hegðun, öskur ef yrt er á hann, mikil svitalosun ásamt tíðum klósett ferðum.
Eins og sést á þessari mynd þá er þetta mjög alvarlegt.
Það er greinilega stórhættulegt að fara á brimbretti hehehe. (Tekið af spjallborði manutd.is)

Þangað til næst……
Rugl dagsins er: Ef þú hyggur á langferð þá skaltu koma við í Select aight
Tja, nú er ég aldeilis hissa
Haldiði barasta ekki að Tomminn hafi farið með einnar rúðuþurrku bílinn sinn á verkstæði til að reyna að virkja hina rúðuþurrkuna, jú jú sem væri ekki frásögum færandi nema að “viðgerðin” sjálf tók c.a. 37 sekúndur og Tomminn var ekki rukkaður fyrir neitt. Þetta var í Bíla Áttunni í Kópavogi. Þetta var nú svo sem ekki mikið, þurfti bara að herða hægri blöðkuna aðeins en annars fínasta þjónusta og fá þeir hrós fyrir.
Tomminn hyggur á tónleikaferð niður í Laugardal þann 10 desember. Reikna með að Ninnsterinn og Heisinn mæti líka á þessa stórtónleika Muse. G. Alex (sem er yngsti bróðir Tommans) er á leið í bæinn til að fjárfesta í nokkrum miðum og ætlar Tomminn að láta guttann kaupa fyrir sig og Big Goj
Tomminn þarf að skutla G. Alex í röðina kl 07:00 á föstudagsmorguninn því að búist er við mikilli aðsókn á þessa frábæru hljómsveit Muse.
Nú ekur Tomminn um með bros á vör og sveiflar tveimur jafnfljótum rúðuþurrkum upp og niður framrúðuna hehehe.
Annars er það bara leti í dag þar sem að ég og Big Goj erum að glápa á LOTR TT og háma í okkur KFC rop.
Fór í bolta á sunnudaginn og í gær og það verður að segjast að löpp Tommans er engann veginn orðin nógu góð fjandinn hafi það. Tomminn fékk boltann, já boltann í löppina og það var nóg til að kallinn emjaði af sársauka ouch. En maðurinn harkaði þetta nú af sér og kláraði tímann en kallinn ætlar að hugsa sig vel áður en hann fer í næsta fúzzball tíma. Það er ekkert gaman að hlaupa um eins og hölt hæna í fótbolta. ![]()
Jæja, best að fara að hætta þessu röfli og halda áfram með The Two Towers.
What business does an elf, a man and a dwarf have in the riddermark? Speak quickly
Þangað til næst……
Rugl dagsins er: Æ kent sí sjitt in hjer
It’s United United, thats the team for me
United United off to victory
Its the finest team in England
And I hope you all agree
We never stop
until we have won the cup
and the English football league
heheheehe
Glory glory man united
glory glory man united
glory glory man united
and the reds go marching on
Þangað til næst…….