Sveittur á kantinum

Nú er maður búinn að liggja þokkalega sveittur alla vikuna. Þvílíka veikindaslubbið sem er búið að vera í gangi, fyrst Kristján og Rúna og svo ég. En þetta er allt að koma núna sem betur fer. Maður er búinn að horfa á allt sem er komið af Jericho. Helvíti fínir þættir og frekar pirrandi að þurfa að bíða eftir næsta þætti. Ætli maður taki ekki pásu í því og glápi á það sem er komið af 24 og Lost. Eins get ég kíkt á The Unit, Heroes og My Name is Earl. Það er sko af nógu að taka.

Maður er svona rétt að venjast þessu nýja bloggi. Soffi búinn að skipta úr MT yfir í WordPress. Þetta wordpress dæmi er voðalega líkt Blogspot sem að maður var með í denn. En þetta kemur allt saman með kalda vatninu.

Þangað til næst….

Nýtt look

Jæja, þá er hann Soffi minn búinn að græja nýtt lúkk á síðuna. Kominn tími til held ég. Svo er maður bara í rólegheitunum að henda inn linkum o.s.fr.

Annars liggja allir hérna heima með einhverja bölvaða pest. Kristján Freyr búinn að vera sínu verstur með gubbupest. Búinn að fara 3 sinnum í bað og skipta 6 sinnum um föt á síðustu 2 sólarhringum, bagalegt ástand.

Þangað til næst….

Bjúgu

Vitiði hvað hún Rúna mín gerði í gær…

Hún eldaði bjúgu eins og ekkert annað væri sjálfsagðara. Snilld segi ég, bjúgu með soðnum kartöflum og uppstúf… Svo þegar maður kom inní íbúðina fylltist ég Hofstaða nostalgíu því að lyktin þar var eins og í sveitinni hjá ömmu á Hofstöðum í æsku minni… mmmm good times

Þangað til næst…..

Orðabók

Ef ske kynni að einhver ykkar þyrfti að umgangast son minn í nánustu framtíð þá hef ég tekið að mér að búa til orðabók fyrir ykkur svo ykkur gangi betur að skilja kauða. Þetta er nú ekkert gríðarlegt verkefni enda ekki um auðugan garð að gresja hvað orðaforða varðar.

en hérna kemur þetta og vonandi verður þetta ykkur nytsamlegt samskiptalega..

Soggana – Þetta þýðir “ég vil fara í sokkana” og þetta er óspart notað þessa dagana.

Oiiijj – Þetta þarfnast nú varla neinnar þýðingar og þýðir bara Oj, Þetta er vinsælasta orðið í dag.

Hæstu – Þetta þýðir “hættu” (af hverju ætli hann hafi lært þetta???)

Bæj eða bess – Bless

Nammi – þýðir sig sjálft

Namm – Morgunmatur

Seiggjó – Sleikjó

Beiju – Skipta um bleiju

Fúbba – Súpa

Lulla – Lúlla

Pabbi og mamma er nú nokkuð skiljanlegt hjá honum

Voffi – Soffi frændi

Efna – Líklega er þetta Hrefna

Baggi – Maggi Jobba

Danný – Dagný

Súggi – Gústi Alex

Dijjá – Diljá

Njinni – Ninni

Dammar – Dagmar

Amma og afi er líka nokkuð skiljanlegt

Lúlli – Júlli

Seini – Steini

Addí – Arndís

Begga – er bara Begga

Hanna – er bara Hanna

Tess – Kex

Katt – Kalt

Ba – Fara í bað

Kannínna – Kanína

Voff – Hundur

Spijja – Spila á hljóðfæri

Flúvva – Flugvél

Sjemma – Skemma eða eyðileggja

Pabbaá – Pabbi á þetta

Bíljin – Fara í bílinn

Eddu – Fara til Eddu dagmömmu

Iss – ís

Gubbanna – Leika sér með kubbana

Botti – Bolti

Memja – Lemja

Þetta er svona það helsta sem ég man eftir. Ef þið lendið í tungumálaörðuleikum við hann Kristján þá veriði óhrædd við að spyrja okkur Rúnu og við munum reyna að hjálpa eftir fremsta megni.

Þangað til næst….

Bingó

Nú er kominn enn einn föstudagurinn. Rúna er komin á kvöldvakt sem þýðir að við Kristján erum bara einir heima á kvöldin. Maður hittir kelluna ekki neitt nema þegar ég kyssi hana bless á morgnana.

En svona er þetta bara, vinnan göfgar manninn eins og einhver spéfuglinn sagði hérna um árið.

Helgin framundan og ég að vinna á laugardaginn… hnuss.

Bújakaza

Þangað til næst…

Frostbit

Sælar

Við feðgarnir fórum vestur um helgina og skildum Rúnu litlu eftir í borg óttans. Þetta var voðalega ljúft. Kristján fékk að sparka í hundana hennar Dittu ömmu og éta allt úr skápnum hjá Sigrúnu ömmu. Svo sporðrenndi hann óteljandi sleikjóum hjá Önnu ömmu sinni.

Þetta var bara voðalega ljúft allt saman.

Ég er búinn að setja inn myndir eftir mánaðar pásu. Til hamingju ég.

Þangað til næst….

Grundó

Við feðgarnir erum komnir til Grundarfjarðar í rólegheitin. Rúna er í bænum greyið því hún þarf að vinna. Núna sit ég og er að sötra Miller með Gústa bróðir á meðan Ninni skeggapi er að chilla með kústskaft uppí görninni. Þetta er súrrealísk stemming.

Þangað til næst…..