Uppstigningardagur

Frí í dag. Sit hérna í tölvunni og as we speak er love roolercoaster með Red Hot Chilli Peppers að rúlla í mp3 spilaranum og kallinn er í svaka fýling, enda heví góður slagari þar á ferð.

Hérna kemur mynd af Vigga sem færðist þrjú sæti neðar á mótorhjólatöffaralistanum með þessu atviki. Viggi er sem stendur í 6 sæti á eftir mér, Magga, Ninna, Þórði og Finnboga.

Það er alveg svakaleg bongóblíða í dag. En samt svona gluggaveður því það er doldið chilli úti. Það eru ansi margir sem ætla að bregða sér í bæjarferð um helgina því mamma og Ninnalingur eru víst á leiðinni og mér skilst að litla púddan hún Hanna systir mín sé með í för. Það verður örugglega heilmikið activity í borginni þegar þessi hersing kemur. Annars er ég vonandi að fara að keppa eitthvað í fótbolta en það kemur í ljós síðar. Vatnsberar rokka aight.

Fór í bíó í gær og sá eina súrustu mynd sem ég hef nokkurntímann séð eða The Hitchhikers Guide To The Galaxy. Vá segi ég nú bara. Hún var mega fyndin og Alan Rickman fór á kostum sem vélmenni með geðhvarfasýki á háu stigi. Reyndar var svo stappað í salnum að við Steini og Gúndi þurftum að sitja á öðrum bekk á endanum. Ég held ég hafi heldur ekki séð svona mikið samansafn af nördum á einni mynd síðan ég fór á Star Wars episode 2 hérna um árið. Svo er ég að spá í að hanna svitalyktareyði fyrir nörda því lyktin í salnum var eins og í fjárhúsinu hjá Tryggva Rolluríðara iff jú gett mæ drift. Hnuuussss.

þangað til næst…..

Jeeeeeeessss

Þessi langi vinnudagur er loksins að verða búinn. Það er svo lítið að gera hérna að það er ekki einusinni fyndið.

Fótboltaæfing í kvöld hjá hinu stórmerkilega liði Vatnsbera og öllum velkomið að mæta niður í Safamýri að berja stjörnurnar augum kl 22:00 í kvöld. En fyrst verður það leikur Lifrapolls og Chel$ki í beinni. Ingi vinnufélagi er búinn að veðja við Ásgeir sölustjóra um að ef Lifrapollurinn dettur út þá mætir Ingi í kjól í vinnuna á föstudaginn og svo öfugt. Þannig að ef Chelsea vinnur þá hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að mæta niður í verslun EJS á föstudagsmorguninn og sjá Inga í kjól að afgreiða. Hann þarf bara að klæðast kjólnum fram að hádegi þannig að mætið tímanlega. Nú hinsvegar að ef Liverpool slysast áfram þá eiga allir að mæta í EJS fyrir hádegi og biðja um að fá að ræða við Ásgeir Ásgeirsson. Hann verður þá væntanlega klæddur í kjól og fínt hehehe.

Þangað til næst…..

Slúður

Heyrst hefur……

að Bling Bling og Kotari séu búnir að rúnta svo mikið um Grundarfjörð að þeir taki rúntinn í svefni nú orðið.


Hér eru þeir félagarnir á gatnamótum Grundargötu og Sæbóls

að Viggi Runna hyggi á mikinn frama sem Lúftgítarspilari.


Viggi segist vera næsti Eddie Van Halen

að Heisi hafi skráð sig í Tomas Gravesen lookalike keppnina og unnið.


Tomas Gravesen og Heisi… Eins og sjá má gætu þeir verið tvíburar

að Tommi Jobba hafi fengið nýtt starf sem ræsishreinsari með 340 kr á tímann.


Tommi er hér nýkominn úr ræsinu heima hjá Gaua litla og hafði uppúr því 863 kr

að Kotarinn hafi reynt ítrekað að fá Rósu í trekant með sér og Danna


Skiljanlega var Rósa ekki hrifin af uppátæki Kotaranna

að Kotararnir hafi í staðinn fengið Kalla Bjarna til að hlaupa í skarð Rósu.


Hérna koma félagarnir þrír sáttir eftir 4 mínútna langann trekant

að Finni Nilla hafi á dögunum stofnað til fjöldanámskeiðs í myndatöku.


Sverrir Karls og Gísli Göngutúr nutu góðs af kennslu Friðfinns

að Viggi Runna hafi þurft að fá far til Gerfahverfis um liðna helgi.


Viggi bætti hraðametið sitt um heilar 16 mínútur með þessu uppátæki

að Maggi Jobba hafi gert 48 kr auglýsingasamning við Vífilfell


Þessi auglýsing mun hanga á Essóskálanum á Breiðdalsvík og inni á kvennaklósettinu á Kaffi Austurstræti

Þangað til næst…..

Vrrrúúúúúúúúmmmm

Já fóks. Ég skrapp uppí Borgarfjörð í gær. Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar mótorhjólagengið “Dvergvaxnir að neðan” sameinaðist á ný eftir margra mánaða aðskilnað vegna bilana og slyddu. Viggi “Dvergvaxinn að neðan#1” kom úr Grundarfirði en ég Tommi “Dvergvaxinn að neðan#2” kom úr Reykjavík og vorum við búnir að mæla okkur mót í Hyrnunni. Þegar við hittumst þar, felldum nokkur tár og fengum okku pepsi max brunuðum við svo í Bauluna og létum Sigrúnu frænku skella nokkrum rollum á grillið og gefa okkur að éta. Því næst voru það Hofstaðir í heimsókn til Kibba “Raftar#33” og svo næst í bæinn.

Nú er betri tíð í vændum með bensín í haga og hjálm á hausnum. Ég meira að segja missti af fótboltaæfingu út af þessum miklu fagnaðarfundum.

Þangað til næst….

Long tæm nó hír

Wassup niggas?

Mí und mæ hómís í Vatnsberunum vorum að spila æfingaleik í gær og gekk bara bærilega. Við reyndar töpuðum 3-2 en það eru ekkert svo slæm úrslit fyrir okkur þar sem að Magic eiga nú að vera mun sterkari en við. Hrannar sækó fékk rauðaspjaldið og Tommi sjálfur raised hell og hefði líka átt að fá rauðaspjaldið fyrir grodda brot en svona er þetta. Arfa slakur dómaragöndull sem dæmdi leikinn. Dabbi frændi tók nettann Cudicini á þetta og stóð sig vel. Það er nú ekki hægt að kenna honum um mörkin þrjú en við gerum það samt hehehe. Við erum nú búnir að auka áhorfendafjöldann á leikjum um 100% úr einum áhorfenda í 2 en Big Goj kom og hvatti okkur til dáða. Reyndar voru nú nokkrir pappakassar þarna líka eins og Tryggvi Hadda og Ragnar Smári en þeir létu sig hverfa áður en flautað var til leiksloka og teljast því ekki til fullgildra aðdáenda Vatnsberanna.

Annars er maður bara rólegur á tíðinni. Rúna er alltaf að eyða peningum í einhverja vitleysu eins og skiptiborð og svoleiðis. Ég meina… er ekki nóg að eiga bæði eldhúsborð og stofuborð?

Mótorhjólið mitt er til sölu. Milljón á borðið og málið er dautt. Ný yfirfarið og í toppstandi. Ekki það að mig langi til að selja það en svona er þetta helvíti.

þangað til næst…..

Heimska brotna hendi guðs

Ég og Crying Freeman fórum í morgun og þrumuðum nokkrum sveittum golfböllum fram af básunum í Grafaholtinu. Það vildi nú ekki betur til en svo að Tommus Maximus er búinn að eyðileggja alla Tiger Woods drauma með því að brjóta á sér hendina í haust. Helvítis heví verkur í hendinni eftir þetta. Ekki það að maður hafi verið búinn að segja upp í vinnunni og taka einn Birgir Leif á þetta en kommon. Nú verður maður bara að treysta á að ná sem lengst í atvinnumennskunni í knattspyrnu. Það er ennþá séns hrmpf. Við í Vatnsberunum eigum leik við Magic í Safamýrinni á sunnudaginn kl 19:00. Hvet ég alla velunnara Vatnsberanna til að mæta og hvetja hið gríðarlega skemmtilega atvinnumannalið til dáða enda hefur maður heyrt að Magic séu með firna sterkt lið.

Annars vorum við Rúna og fá einhverjar ofurgræjur inná klósettið hjá okkur. Þegar ég kom heim úr vinnunni voru Steini Jobba og Crying Freeman búnir að þruma upp einhverjum súper dúper þvottavél og þurrkara frá Gorenje. Þetta eru víst 635 hp græjur sem snúast 8000 snúninga á sekúndu. Maggi Jobba sá um að díla þetta út hjá Jóa Rönn. Nú getur maður farið að þvo alla pínu litlu manchester united gallana sem litla barnið á að fá.

En þetta er orðið ágætt í bili. Tomminn mælir líka með því að fólk kíki á Crying Freeman en kallinn er nýbyrjaður að blogga.

Þangað til næst……

Critters

Æ em bonghúlíjó

Hvað er títt? Vorið er loksins komið með stæl. Styttist í sumarið. Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn. Veit ekkert hvað maður á að bulla.

Ég gæti svo sem sagt ykkur frá hinum gríðarlegu tilþrifum sem fótboltaliðið mitt sýndi í síðasta leik en miðað við undirtektirnar í commentunum hér fyrir neðan þá væri það nú til lítils.

Ég gæti líka sagt ykkur frá því að ég var að festa upp ljós í barnaherberginu í gærkvöldi og ég gjörsamlega missti mig úr pirring yfir þessu djöfuls drasli, enda enginn iðnaðarmaður í mér. En það tókst nú samt á endanum. Svo komu þeir Jón Frímann og Blobbi og hjálpuðu mér með restina. Sem betur fer, annars væri ég á hæli núna.

Hún Rúna mín var hjá lækni í dag og þar frétti hún nú bara að hún væri á síðustu metrunum í þessari meðgöngu sinni. Kannski þarf hún að eiga fyrir tímann því líkaminn hennar þolir ekki þetta álag sem þessi bölvaði blóðtappi olli.

En þetta er orðið gott í bili held ég.

Þangað til næst…..

Monday bloody monday

Mánudagur… úúúff. Veit ekki. Við í Vatnsberunum vorum að spila æfingaleik í gær við FC Fame sem er liðið hans Inga sem ég er að vinna með. Við gerðum okkur lítið fyrir og unnum þennan leik öllum að óvörum 2-1. Gæi Hadda setti eitt kvikindi og Hrannar átti góðann leik á miðjunni. Flestir í okkar liði áttu góðann dag og sérstaklega miðverðirnir okkar tveir, þeir Steini Jobba og Jón Frímann þannig að þetta var kúl. Það má svo geta þess að Ingi er ekki sáttur í dag, hann er búinn að vera með miklar afsakanir um að menn hafi ekki verið að spila í sínum stöðum og svoleiðis en ég læt það sem vind um eyru þjóta hehehe. Þetta væri ekki svona svalt ef að Ingi hefði ekki verið með svona miklar yfirlýsingar fyrir leikinn um yfirburði FC Fame.

En nóg um það. Rúna mín er sæt þó hún líti út eins og kúla. Mig hlakkar svo til þegar hún hættir að vera eins og kúla og litli erfinginn kemur í heiminn. Íbúðin fer að verða komin í þokkalegt stand en okkur vantar ennþá þvottavél og þurrkara en Maggi Jobba er að vinna í því. Pabbi og Sigrún lánuðu okkur stofuborð og svo stálum við sjónvarpsskápnum hennar Sylvíu þannig að nú þarf sjónvarpið okkar ekki að standa ofan á stól. Hell Je.

Þangað til næst……