Pliff

Man Ure datt út í gær fyrir elstu vörn í heimi, ég er dapur í dag. Liðið á nú bara séns á FA bikarnum og væntanlega detta þeir út úr honum líka um helgina þar sem að Rútur Nistilskúnkur getur engan vegið skorað þessa dagana.

Annars er maður ennþá hálf veikur eftir þessa Englandsför um daginn. Er enn með einhvern kvef skít í hálsinum. Rúna er fárveik fyrir vestan út af mér.

Eru kótilettur með marmelaði málið?

Þangað til næst……

Welcome Home Sanitarium

Jæja, þá er kallinn kominn heim í heiðardalinn á ný eftir frægðarför til London. Veit ekki hvort að maður á að koma með einhverja ferðasögu því þetta var nú ekki svo merkilegt.
Eníveis að þá er maður búinn að vera veikur síðan ég kom með hita, beinverki og kvef. Dabbi líka, ég kýs að kalla þetta ensku veikina.
Ég komst að því í þessari ferð að of mikið af McDonalds er ekki hollt. Hvorki fyrir líkama né sál. Morgan Spurlock var spot on með þessari mynd sinni. KFC og Burger King er nú líka sama tuggan. Beikon bras sem er framreitt af sveittum asíubúa með gleraugu. Ekki það að ég hafi neitt á móti þeim en ég held að það sé komin einhver ný ráðningarstefna á skyndibitastaðina í Englandi. Only hiring asians with glasses please.

Rúna litla flúði úr minni kvefuðu návist eftir að hún fékk sjálf kvef. Hún er nú komin til Grundarfjarðar í gott yfirlæti hjá mömmu sinni. Á meðan er ég einn heima veikur. Jú reyndar poppar Steini Jobba stundum inn til að skipta um sokka en hann virðist einnig vera fluttur að heiman eftir að hann fann einhverja tjéllingu til að lúlla hjá.

Nenni ekki að röfla meira í bili.

Þangað til næst……

Word fra London

Hi folks. Sit herna a 3 haedinni a Debenhams og blogga. 3 pund fyrir klst er adeins skarra en hitt helvitid.
Eg og Dabbi erum badir komnir med einhverja bolvada pest enda buinn ad vera skitakuldi herna a Bretlandseyjunum. Eg la i nott i einhverju moki ad drepast ur beinverkjum og kofsvitna i leidinni. Helviti othaegilegt. Vid erum a einhverju skitahoteli sem er snilldarlega stadsett. Ofan i ollu actioninu a Piccadilly Circus. Vid erum bunir ad fara a Planet Hollywood ad eta og eg er buinn ad kaupa 2 pk af Wilkinson Sword fyrir Jon Frimann. Fjogurra blada trillitaeki sem aetti ad skafa skeggid og rotina af kallinum.

Vid vorum lika i Manchester i 3 daga. Forum a Man Utd vs Portsmouth thar sem Wayne Rooney for a kostum og setti 2 kvikindi. Eg er buinn ad taka fullt af myndum med mjog mismunandi arangri, gaman verdur ad sja utkomuna ur tvi og hvad af tessu sleppur a netid hrmpf.

Samt er madur nu buinn ad vera einum of lengi fra henni Runu minni og mig hlakkar rosalega mikid til ad koma heim i kvold. Enda eru 7 dagar, 3 hotel, bua i ferdatosku, labba 7000 km, alveg agaett i bili. Thad verdur gott ad koma heim.

Thangad til naest…..

London

Jæja, ég er farinn til London. Konan kominn í fóstur vestur hjá mömmu sinni þannig að ég og Dabbi frændi skellum okkur út. Adios og heyrumst eftir viku. nema að ég komist í einhverjar tölvur úti, sjáum til.

Þangað til næst……

Aðgerðin

Aðgerðin hennar Rúnu gekk mjög vel og er hún núna að láta sér batna á spítalanum. Hún losnar út einhverntímann eftir helgi væntanlega. Þannig að allt er í gúddí núna sem betur fer og miklu fargi af mér létt 😀

Þangað til næst….

Jæja

Þetta er svei mér þá búið að vera skrítið. Á miðvikudagskvöldið er Rúna að koma úr sturtu og þá byrjar vinstri fóturinn á henni að bólgna upp. Hún hringir í lækni og er kölluð inn á sjúkrahús. Þar, eftir tveggja og hálfs klst bið er henni tjáð að það sé möguleiki á að þetta sé blóðtappi og að hún þurfi að fara í rannsókn. Hún er lögð inn á spítalann og ég sendur heim. Svo fer hún í rannsókn á fimmtudeginum þar sem þetta er staðfest. Hún er með blóðtappa í náranum vinstramegin og þarf að fara í uppskurð. Þetta væri ekkert svo mikið mál ef hún væri ekki ófrísk en þannig er mál með vexti að þetta er mikið mál.
Ég fékk að gista hjá henni í nótt upp á Borgarspítala. Allir þar eru æðislegir og miklu betri samskipti og upplýsingaflæði til sjúklinga heldur en á kvennadeildinni.
Akkúrat í þessum skrifuðu orðum er Rúna mín að fara í aðgerð og mér líður ekkert smá illa yfir þessu. Mig hlakkar svo til að hitta hana aftur eftir hádegið að ég er að farast.

Veit ekki hvað ég á að segja nema að ég elska hana meira en allt annað. (fyrirgefið væmnina en svona líður mér bara)

Þangað til næst……

Sniff

Nú líður mér illa. Rúna mín fékk einhvern asnalegan bólginn fót í kvöld og við þurftum að fara upp á sjúkrahús. Þar var hún lögð inn og fer í rannsókn í fyrramálið. Á meðan sit ég hérna aleinn og að drepast úr áhyggjum af henni. Líst ekkert á þetta 😦

Góða nótt.

Þangað til næst…..

Já,

Það er ýmislegt búið að gerast hjá kallinum þessa dagana. Hæst ber að FC Fist tók þátt í innanhús móti á laugardaginn og Ingi vinnufélagi er að pumpa mann um að segja eitthvað um það. Það er nú ekki frá miklu að segja nema að FC Fist komu, sáu og voru saltaðir. Spiluðum 3 leiki, töpuðum 3 leikjum og markatalan var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir, 3 mörk skoruð og 17 fengin á okkur og undirritaður náði sér í 1 gult spjald. Hmmmm en það fór sem fór og leiðin getur bara legið uppá við vonandi hrmpf.

Þá er maður búinn að koma því frá sér. Load of my chest.

Þangað til næst……

Well well well

Þá er komið að smá slúðri.

Heyrst hefur…..

að það sé ekki mjög hollt að vera mikið á Herbalife


Þessi óheppni einstaklingur var búinn að vera á Herbalife í 8 vikur

að Haddi Pimp hafi tekið aðeins of stórann skammt af kaffi um daginn


Haddi var ansi hreint ör á því

að Johny Ásgríms hafi verið doldið þreyttur á að láta mynda sig.


Johnny lét ljósmyndara kvaðratrótarinnar finna fyrir því skömmu eftir að þessi mynd var tekin

að Viggi Runna sé sestur á skólabekk aftur og búinn að fá nóg af sjómennskunni í bili.


Viggi vill hérna ólmur fá að segja kennaranum sínum frá uppgvötvun hans á Pýþagóras reglunni.

að Dabbi Hlíð hafi skellt sér í veiðiferð á dögunum.


Dabbi sýnir hér ljósmyndara stærðina á marhnútnum sem hann veiddi

að Þórhildur og Eva María hyggi á blístrandi frama í auglýsingaleik fyrir Colgate


Þetta er portfólían sem þær stöllur sendu inn

að Heiðrún Sigurjóns sé farin í strangann megrunarkúr.


Heiðrún sýnir hér ljósmyndara hvað hún ætlar að verða mjó

að Rósa hafi fengið vinnu hjá Þjóðleikhúsinu.


Fyrsta hlutverk Rósu er Prinsessan á bauninni

að Bibbi brjálaði vilji alltaf fara í bað í öllum fötunum


Bibbi er halltaf glaður þegar hann fær að fara í bað

að nýjasta óléttu tískan sé ekkert að gera sig


Bumbulína var samt að fýla sig

að Frímann fjölhæfi hyggi á gríðarlega samkeppni við Jóa Fel, Völla Snæ og Sigga Hall með nýjum sjónvarpsþáttum sem verða sýndir á Omega


Frímmi Fjör eins og hann kýs að kalla sig ætlar að sérhæfa sig í eldun á grjónagraut

að Blobbi Jobba hafi sett íslandsmet í maraþon klámmyndaglápi.


Blobbi er hér búinn að horfa á allt safnið með Jennu og er nýbyrjaður á “Best of Rocco”

að það sé lágmarkskurteisi að læra að leggja áður en maður keyrir fullur.


Arnar Pétursson baðst forláts á að hafa lagt inni í garði

Fínt í bili.

Þangað til næst…..