Föstudagsslúður

Jæja jæja góðir hálsar, sjitturinn titturinn hóran og mellan marr, þá er kominn fallegur föstudagur og nýtt slúður lítur dagsins ljós. Svo má geta þess að þið getið smellt á myndirnar til að stækka þær.

Heyrst hefur……

að Big Goj hafi fundið upp nýja aðferð við að skrifa diska og stundar hann það nú í gríð og erg.

Big Goj situr sveittur og skrifar diska

að Viggi hafi á dögunum eignast nýjann vin sem hann kýs að kalla Pulla pönk og eru þeir að sögn orðnir mjög nánir.

Viggi og Pulli Pönk á góðri stund

að Tommi hafi sagt Vigga svo klúrinn brandara um daginn að Viggi greyið hafi alveg farið í keng.

Viggi var stórhneykslaður á þessu framferði Tomma

að Soffi hafi stofnað nýjann klúbb sem heitir “Living og the edge” og sérhæfir sig í að brjóta lögin með því að tala í símann í tíma og ótíma á meðan keyrt er.

Soffi á rúntinum í símanum með lögguna á hælunum

að Svavar og Gæi Hadda séu svo nánir úti á sjó að félagar þeirra séu farnir að hafa stórar áhyggjur af þeim. Það nýjasta er að þeir félagar hafi pantað sér ferð til San Fransisco saman á alþjóðlegu hommasýninguna.

Þeir eru alltaf límdir saman drengirnir

að sést hafi til tveggja geimvera á Laugarveginum. Geimverur þessar hafi talað reiprennandi Klingosku og hafi verið nokkuð spengilegar.

Geimverurnar voru hressar þegar ljósmyndari náði þeim í Levis búðinni

að Dabbi Hlíðkvist hafi fundið blönduna af hinum fullkomna rassasafa og hyggur Dabbi á framleiðslu á þessum sérstaka drykk. Reiknað er með að þetta komi í verslanir um næstu mánaðarmót.

Dabbi með nokkrum af framleiðsludýrunum þar sem hann smakkar á fyrsta safanum

að Dabbi hafi seinna um kvöldið týnt Diesel peysunni sinni í Kólaportinu þar sem hann var að selja harðfisk og rassasafa.

Dabbi var ósáttur við peysumissinn en hélt samt ótrauður áfram að selja harðfisk og rassasafa

að hin fræga leikkona Anna Clarins hafi verið við tökur á nýjustu mynd sinni “Shedevil” á Íslandi nú á dögunum.

Frú Clarins gaf sér tíma til að pósa fyrir ljósmyndara

að lífið á sambýlinu að Hálsi gangi sinn vanagang þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu.

Íbúarnir eru furðuhressir miðað við aðstæður

að ungi rithöfundurinn Gulli Robba hafi gefið út sína fimmtu bók í hinni gríðarvinsælu seríu “Handbókin”. Gulli áritaði bók sína fyrir aðdáendann í bóksölu stúdenta nú fyrir helgi.

Gulli var ánægður með móttökurnar

að aðdáandi Gulla nr 1 hafi fengi fyrstu (og reyndar einu) áritunina.

Ásta var rosalega montin af árituninni sinni

að Eva Sleggja sé dugleg að höstla þessa dagana. Þeir eru víst ófáir sem eru með brostið hjarta eftir hana.

Sleggjan með eitt fórnarlambið

að Tommi hafi lent í óþægilegu atviki þegar að meðleigjandinn hans hafi límt uppstoppaðan fugl á hausinn á honum á meðan hann var í fasta svefni. Það tók svo 5 tíma skurðaðgerð að ná fuglinum af.

Tommi var óvenjuhress miðað við aðstæður

að Ninni Dittu hafi á dögunum fengið tilboð um að leika í kornflex auglýsingu.

Ninni stillti sér upp fyrir kelloggs kallana

að pizzurnar á Kaffi 59 séu þær bestu í heimi

Bestar???

að Onkel Benz eigi erfitt með að höndla pressuna sem fylgir því að vera heimavinnandi húsfaðir.

Benni var mæðulegur þegar ljósmyndari náði að smella af einni

að nýr meistari sé fæddur í skítþjöppunaraðgerðum en sú keppni felst í því að losa sem mestann saur án þess að skipta um buxur.

Kári sigurvegari í sigursaurlosununni

að Raggi Heiðar hafi á dögunum orðið nett slétt flétt ruglaður í kringlunni þegar hann sá verðið á nærfatnaði í Hagkaupum.

Raggi trúði ekki sínum eigin augum þegar hann sá verðið

að Raggi hafi að lokum farið í Accessorís og keypt sér rós í hárið.

Raggi var samt nokkuð vonsvikinn með naríurnar

að Bjössi Kolla þurfi að berja af sér ásakanir um samkynhneigð.

Bjössi er hress þrátt fyrir ásakaninar frá Lauga

Jæja, þetta er orðið ágætt í bili. Vil skamma Logna fyrir að klikka á myndunum.

Þangað til næst……

Ný könnun….

Jæja, þá er komin ný könnun og byggist hún á því sem ég hef verið að velta fyrir mér undanfarið. Á ég að byrja að smakka það aftur??? Svarið nú samviskusamlega og munið að það er bara einn svarmöguleiki á mann.
Vil þakka fyrir fínar undirtektir frá síðustu könnun þar sem að flestir voru bara nokkuð sáttir með bloggið.

Þangað til næst…….

Ferð á Bráðamóttökuna

Helvítis djöfull, var að koma af Bráðamóttöku Borgarspítalans og sjæse hvað það er dýrt að slasa sig. Best að sleppa því bara alveg.

Var semsagt að keppa í fótbolta í gær, byrjaði leikinn á vinstri kantinum í gúddí fíling. C.a. 20 mín liðnar af fyrri hálfleik þegar Tomminn fær stungusendingu inn fyrir og var kominn einn á móti markmanni. Sparka í boltann, klobba markmanninn og skora. Fyrsta markið komið fyrir nýja liðið og mikilli pressu af manni létt. En því miður að þegar ég sparkaði í boltann náði ég á einhvern óskiljanlegan hátt að sparka í jörðina í leiðinni og misstíga mig svona hrottalega. Fór útaf eftir markið og treysti mér ekki aftur inná. Verkurinn ágerðist þegar leið á kvöldið en fjanden ég gat þó stigið í löppina. Svo vakna ég í morgun kl 07:05, kófsveittur með stingandi verk í hægri ökklanum. Bólgan hafði þá ágerst eitthvað um nóttina og þegar ég ætlaði að standa upp þá sagði ökklinn bara hingað og ekki lengra kallinn minn. Get semsagt ekki stigið í hægri löppina. Fór niður á slysó eins og fyrr sagði. Borgaði blóðugan pening fyrir að segja mér það sem ég vissi alveg fyrir. Fékk einn skitinn teygjusokk og mér var ráðlagt að kaupa ibúfen. Fokk ðett, ét ekki svoleiðis kerlingasmarties enda of mikill jaxl til þess. Verð samt að reyna að redda mér hækjum í dag einhversstaðar, anyone??? ef það er einhver sem lumar á svoleiðis græjum sem hann er ekki að nota þá plííííís láta mig vita.

En þegar öllu er á botninn hvolft þá var þetta þess virði. Skoraði fyrsta markið mitt og var það meira að segja nokkuð nett hjá kallinum hrmpf. Það versta er að ég efast um að það verði nokkur fótboltaiðkun næstu vikurnar. Góð byrjun á sumrinu fyrir mig hmmm…. NOT.

Eníveis, GlEÐILEGT SUMAR allir saman.

Þannig fór um sjóferð þá.

Þangað til næst…….

Chillin

Hvað er málið með að rúnta um á blæubíl í 4 stiga hita??? Ég tók þessa mynd á sunnudaginn semsagt. Frekar var svalt í veðri og einhver gaur með gráa fiðringinn og sítt að aftan í þykkum frakka með trefil og rautt nef ægilega svalur á blæubíl. Blæubílar eru jú mjög svalir og töff þegar veðrið er gott og að minnsta kosti 10 stiga hiti. Ekki væri ég til í að rúnta með horgrýlukerti lekandi úr nefinu niður Laugarveginn með Britney Spears á geislanum, uuuussss.

Annars er maður bara í eyðu hérna í skólanum í gúddí fíling með kókómjólk í annari og tússpenna í hinni alveg þéttur á kantinum. Hygg á Borgarnes ferð á morgun á kíkja á mótorhjólasýninguna sem verður þar. Reikna með að hann Viggi litli verði þarna og örugglega Dýri ef hann verður í landi. Þetta verður örugglega mikil frægðarför.

Svo fer að verða síðasti séns að kjósa í könnuninni hér að neðan (til hægri) því að með næstu eða þarnæstu færslu kemur ný könnun þannig að ef þú átt eftir að kjósa þá DO IT.

Ekki tóku commentin kipp þegar maður blastar á landann. Járni vinur minn var sá eini enda góður drengur þar á ferð. Þið hin…. tjah reyniði nú að taka við ykkur ellegar eigið þið á hættu á að fá ofsa Múm Ra yfir ykkur.

Sjæse hvað það er alltaf pirrandi að vera í eyðu eftir fyrsta tímann. Ekkert að gera þegar maður hefur ekkert að læra, hnuuuussss, til mikillar lukku gerðist sá fátíði atburður að ein tölvan var laus hérna í tölvustofunni því að einn 16 ára tölvunörðurinn fór á kamarinn eða eitthvað, þannig að Tomminn náði að svúbba inn og hertaka eina vél múhahaha.

Frændi bloggar um góða hamborgara hjá nafna og um að það hlakki í Lifrapollsmönnum þegar OT verðu bombaður til helvítis. Ekki sé ég nú að menn geti glaðst yfir svona nema að vera verulega sýrður í hausnum en á hinn bóginn þarf maður reyndar að vera verulega sýrður í hausnum til að vera stuðningsmaður Lifrapolls þannig að kannski er eitthvað til í þessu hjá frænda, hver veit. Neee ég segi nú bara svona.

Jæja, nenni eiginlega ekki að bulla meira því ég veit ekkert hvað ég á að bulla um. Soffi minn er kominn í land og er væntanlegur í dag. Sem er gott. Lognið er eitthvað að gaufa við að setja inn páskamyndirnar en það er nú kannski ekkert skrítið því drengurinn tók örugglega yfir 200 myndir og það er nú ekkert grín að hlaða þessu öllu inn. En ég auglýsi nú samt eftir þessum myndum hjá Logna. Allavena fyrir næsta föstudagsslúður ok.

Þangað til næst…….

Mikið að gerast

Já góðir hálsar, það er mikið að gerast í Manchesterborg þessa dagana. Einhverfir Talíbanar vilja sprengja Old Trafford á laugardaginn og ég veit ekki hvað og hvað. 10 kvikindi handtekin í gær grunuð um að ætla að sprengja sjálfan sig og aðra á leik Man Jú og Liverpool. Hef sterkan grun um að samtök púllara standi að baki þessu með því skilirði að ein sprengjan myndi granda Húlla gamla. Heyrði þessu fleygt en sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Fór í sund með Ninnsternum áðan, stefnan var tekin á Árbæjarlaugina því hún er nú þekkt fyrir að hýsa mest af tjéllingum. Ekki byrjaði það nú vel og ein ákveðin setning átti einstaklega vel við “harr, not a looker in the bunch” Djöfuls hallæri, í heita pottinum var 1 stk tjélling c.a 150 kg +, 1 stk ching chong tjélling með gríslinginn sinn, eitt stk tjééééééllllinng c.a 87 ára + og svo 2 stelpur c.a. 20-23 báðar yfir meðalkjörþyngd fullvaxta górillu. Hnuuusss, hvaða helvíti. Við fórum bara uppúr en það bjargaði ferðinni að það var ungbarnasund í innilauginni þar sem voru c.a. 2 stk einstæðar mömmur ágætlega lúkking.

Langt þangað til að ég fer í sund aftur nema að hafa einhver augnakonfekt með mér.

Mónakó – Chelskí að byrja og ætli maður dlápi ekki á hann fyrst að Eiðurinn er nú í byrjunarliðinu.

Þangað til næst…..

24

Ef að 24 er ekki besti þáttur í heimi þá heiti ég Tómas…. DOH, ég meina Jósafat. Þvílíkir gríðarþættir að annað eins hefur ekki sést síðan Dallas var og hét. Jack Bauer er einn sá svalasti í bransanum en ég og Big Goj höfum setið stjarfir yfir þessum þáttum í 2 daga. Erum búnir að horfa á 14 fyrstu þættina í einum rikk og erum gríðarlega spenntir yfir að halda áfram, vonandi á morgun. Spennan í hámarki núna.

Annars eru bara rólegheit á kallinum, skólinn að verða búinn og Tomminn með brækurnar niðrumsig í nokkrum fögum. Verð að hafa hraðar hendur til að redda þessu helvíti.

Minni fólk á að kjósa í könnununniinninininini hér fyrir neðan til hægri. Þeir sem eiga það eftir það er að segja því að á næstu dögum mun koma ný könnun um persónulegt málefni sem ég er að velta fyrir mér þessa dagana og þarf ykkar aðstoð við að ákveða mig. En meira um það seinna. Kemur líklega á föstudaginn með slúðrinu.

En ég ætla að hendast í bælið og láta mig dreyma um að ég sé Djakk Báer í leynilegum önderköver opireisjón í Mexíkó. Góða nótt. Yfir og út.

Þangað til næst……..

Slúðurskjóðan

Fallegur föstudagur senn á enda runnin og vikan verið frekar mild við Tommalinginn enda með afbrigðum stutt í þetta skiptið.
Föstudagsslúðrið lætur ekki á sér standa frekar en fyrri daginn skal ég nú segja ykkur, og hér kemur það….

Heyrst hefur…….

að Viggi Runna hafi á dögunum komist að því að hann hafi gleymt að fara í skóla síðustu 8 árin eða svo.

Viggi var steinhissa á þessu öllu saman

að Steini Jobba hafi drukkið yfir sig af Apfelscnaps á dögunum og muni aldrei bíða þess bætur.

Steini er gefinn fyrir sopann

að Steini hafi líka sama kvöld getið af sér gott orð fyrir strípidans en kallinn tók vel á því á dansgólfinu.

Steini sté trylltan dans fyrir fullum sal

að Rúna Jobba sé að reyna fyrir sér sem flöskusöngkona fyrir Ædolið sem hefst í kvöld.

Rúna hefur staðið í ströngu við æfingar

að Rokklingarnir séu að koma saman aftur með comeback ársins.

Tveir af forsprökkum Rokklingana voru eiturhressir við æfingar

að Maggi Jobba hafi borið sigur úr býtum í hinni árlegu sleikjukeppni sem fram fór í síðustu viku.

Sigursleikjan þótti óvenju listræn og falleg

að Dabbi Hlíðkvist hafi farið í fegrunaraðgerð.

Dabbi var sáttur við nýja lúkkið

að Dabbi hafi boðið til teitis til að fagna nýja útlitinu sínu.

Teitið var óvenju fjölmennt og Dabbi lék á alls oddi

að Heiðrún og Þórhildur hafi í samráði við Ásdísi Rán hafið fyrirsætuferil sinn með stæl.

Stelpurnar eru búnar að æfa pósið vel

að Rúna Jobba hafi keypt Micruna hans Ninna og aki nú sátt um borg og bý.

Rúna var skælbrosandi á rúntinum

að Rúna sé búin að finna upp nýja megrunaraðferð sem felst í því að grafa sig í jörð og hafa hægðir í 4 klst.

Rúna hefur náð ótrúlegum árangri með nýja kúrnum

að hljómsveitin Kvaðratrót hyggi á heimsyfirráð eða dauða, hið síðarnefnda verður þó að teljast líklegra.

Strákarnir hafa verið við æfingar síðustu daga

að Júlli Jobba geti gleypt heila kókdós og sannaði hann það á dögunum.

Júlli sýnir tóman munnin eftir að hafa sporðrennt einni dósinni

að Rósa og Tryggvi Hadda séu meira en bara vinir.

Hjúin láta oft vel hvort að öðru

að Simmi hafi verið óvenju hress á bingókvöldi aldraðra í Borgarnesi á dögunum.

Simmi brosti sínu blíðasta

að Björgunarsveitin Flakkur hafi fjárfest í ofur fjallabíl.

Fjallabíllinn er glæsilegur á að líta

að Soffi hafi sett Roastbeef inn í ofninn en tekið Roadkill út úr honum 6 tímum síðar.

Steikin var frekar ófrýnileg

að Soffi hafi sofið rótt á meðan steikin var í ofninum.

Soffi svaf svefni hinna réttlátu

að Soffi hafi ekki verið sáttur við innskot höfundar og ætli sér að gera eitthvað í því…..gúlp.

Þungur hnífur

að Gæi Hadda hafi á dögunum eignast nýjan vin og eru þeir félagarnir alveg óaðskiljanlegir.

Þeir félagarnir eru orðnir ansi nánir

að Steini Jobba æfi nú stíft fyrir uppsetningu Einars Bárðar á sönleiknum Fame en Steini ku vera ansi líklegur í hlutverk Donnu Sömmer.

Steini sýndi ljósmyndara mikil tilþrif

Þetta var nú slúðrið enda af nógu að taka og enn og aftur vil ég benda á að þeir sem ætla að höfða málsókn er bent á að hafa samband við Þengil Högnason hæstaréttarlögmann.

Þangað til næst……..

Jójójójójóóóóó


Smellið á myndirnar

Svöðuár eru frekar pirrandi sár, ekki það að ég vilji eitthvað vera að væla yfir þessu því að alvöru karlmenni harka þetta bara af sér, að sjálfsögðu og að sjálfsögðu er ég engin undantekning þar á. Ég lenti semsagt í smá tæklingu í gær og fékk þetta litla svöðusár að launum. Að sjálfsögðu harkaði ég þetta af mér enda er þetta ekkert til að væla út af. Ég hélt áfram að spila minn leik sem við enduðum á að vinna 3-2. Svo þegar heim er komið þá versnar í því. Eins og vera vill þá fara flestir í sturtu eftir svona kappleiki og er ég engin undantekning þar á. Þá kemur inní hið leiðinlega svöðusár. Þegar heitt vatnið byrjar að seytla yfir svöðusárið þá myndast hinn gríðarmikli stingur sem getur látið hvaða karlmann sem er fá tár í augun. Helvítis svöðusár. Sem betur fer var maður nú einn inni á baðherberginu og gat þar af leiðandi kveinkað mér eins og ég vildi án þess að nokkur gæti gert athugasemd við það. Og gerði ég það hrmpf. Hörkutólið ég.
Svo vessar úr þessu helvíti alla nóttina og gerir bletti í rúmföt og lök þannig að hver sá sem á þar leið um gæti haldið að eitthvað ósiðsamlegt ætti sér stað alla daga í rúmfötunum mínum. Andskotinn.
Ég vil láta framleiða bláan strumpaplástur í hæfilegri stærð fyrir mig og mín svöðusár takk.

Svo er lítil samkeppni í gangi þessa dagana. Þeir bloggarar sem gera sem minnst og er samkeppnin gríðarlega hörð þessa dagana. Þeir sem eru í hvað mestri baráttu um fyrsta sætið eru:

Doddi pimp
BigGoj
Jói Svans
Negrinemi
Pallaleigan
Grundargata 6
Ingveldur
og síðast en ekki síst hún Fanney Dóra

Samkeppnin er gríðarlega hörð og mikil barátta. Það kemur svo í ljós á næstu dögum hver ber sigur úr býtum.

Þangað til næst……

Bongiorno senor Tommi


Smellið á myndina

Þetta er nebblilega alveg ofursvalt skal ég segja ykkur. Þessu er maður búinn að vera að bíða eftir síðan ég uppgvötvaði Star Wars hérna í denn. c.a fyrir svona 20 árum eða svo.

Annars er skólinn byrjaður aftur og ekkert nema gott um það að segja, nema kannski að við vorum látin horfa á einhverja hundleiðinlega heimildamynd um líf 2 tælenskra kellinga á íslandi bla bla bla. Og það í íslenskutíma, hneisa, mikil hneisa.

Svo er ég að fara að spila einhvern æfingaleik í kvöld með FC Fist, spurning hvernig maður kemur undan þessu blessaða páskafríi. Mér líður allavena eins og ég sé búinn að þyngjast um 10 kg en vonandi er það nú bara vitleysa hjá mér.

Júnæted vann Leisteftir í gær í grautfúlum leik þar sem að Garý Nefill sá um að skora markið. Rónaldo var sprækur og mér líst alltaf betur og betur á kappann. Mikill snillingur þar á ferð. Deddlí Díegó kom fáum á óvart þegar hann náði að galdra fram einstaklega tilþrifalítinn leik hjá sér. Maðurinn er sorglegur og ætti að fara á samning hjá Hetti á Egilsstöðum, Jesús minn hvað hann er sorglega lélegur. En nóg um það.

Þangað til næst……