Rugl dagsins er: Reykir Jónu:

Rugl dagsins er: Reykir Jónu: Samkvæmt heimildum Ruglukollsinns er Jóna Sigurðardóttir horfin af yfirborði jarðar. Hún sást síðast í Kolaportinu síðasta laugardag. Grunur leikur á að Lalli Johns sem sást síðast með henni hafi hreinlega tekið Jónu og reykt hana upp til agna. Lalli er nú hjá góðkunningjum sínum í gæsluvarðhaldi. 🙂

Djöfull er þetta búin að vera fín vika. Tomminn mætti gallvaskur í bolta á sunnudag þar sem að enginn var Gæinn og vann yfirburða sigur enn einusinni. Fór svo í bolta á mánudag og vann aftur yfirburða sigur. Sat svo á þriðjudag fyrir framan imbakassann og horfði á sína heitt elskuðu Manchester United menn vinna yfirburðasigur á Panathinaikos frá Grikklandi. Svo kom leikur Real Madrid þar sem að David nokkur Beckham fór á kostum. Á miðvikudag kom svo snilldin ein. Inter menn frá Ítalíu sem Tomminn hefur mikið dálæti á tóku lánlausa menn Asnene Wankers í rassgatið á Highbury 3-0 og sýndu Inter menn gríðarlega góðann leik Tommanum til mikillar ánægju. FORZA INTER og Glory glory Man Utd.

Annars hyggur Tomminn á helgarferð til Grundarfjarðar í faðm fjölskyldunnar. Kem reyndar við í Borgarfirðinum til að kíkja á Ömmu gömlu sem er að halda upp á sjötugsafmælið sitt á föstudagskvöldið.

Svo er það bara stórleikur Mansteftir og Asnenal á sunnudaginn og verður fróðlegt að sjá það og vonandi að það fari bara vel.

Þangað til næst…….

Rugl dagsins er: Fjör í

Rugl dagsins er: Fjör í Fljótavík: Lögreglunni í Fljótavík á Ströndum barst undarleg tilkynning laust fyrir klukkan 4 í nótt. Á línunni reyndist vera mjög svo drukkinn hundur sem ýlfraði bara í símann. Lögreglan fór því einn rúnt yfir í hitt húsið í Fljótavík til að athuga með ástandið þar. Þá kom í ljós að hundur varðstjórans hans Björgólfs hafði komist í bruggtunnuna í kjallaranum og náð svo að ýta á skammvals takkann á heimilissímanum. Málið er hið vandræðalegasta fyrir Björgólf sem vildi lítið tjá sig um málið. 🙂

Tomminn er búinn að vera svei mér duglegur um helgina. Verið edrú að sjálfsögðu og farið bæði á laugardags og sunnudags morguninn í ræktina. Ég og Járni fórum saman á laugardagsmorguninn og tókum á því. Svo fór ég bara aleinn í morgun og hljóp svolítið og gerði svo helling af magaæfingum ouch ouch ouch.

Mansteftir Júnæted vann Tjarltonn í gær þó svo að hinn ítalsk ættaði Páll Dí Kannabiss hafi verið í byrjunarliðinu. Hinn kjálkastóri Rútur (Jaws) Nistelroj skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri og Kristján Rónaldó stóð sig með stakri príði. Lifrapollurinn gerði góða og slæma ferð til Svartburn því að 3-1 sigur þeirra var ansi dýrkeyptur þar sem að Lifrapollsmaður fótbraut annan Lifrapollsmann og einn Svartburn maður fótbraut Djeimí Karraker, en Mækel Óven og Harrí Kjúvel skoruðu mörk Lifrapollsmanna í þessum leik. Asnenal gerði aðeins jafntefli við fríska leikmenn Portsmáþ á Hæbörí leikvanginum. Hinn aldni Teddí Sheríngham skoraði með skalla og Tírri Honrí jafnaði úr umdeildri vítaspyrnu.

Svo er það bara boltinn í kvöld og verður spennandi að sjá hvort að Garðar nokkur Hafsteinsson láti sjá sig hehehe

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Háttaður, Ungur

Rugl dagsins er: Háttaður, Ungur maður sem var að versla í Kringlunni í gær fékk heldur betur að finna fyrir múgæsing eins og hann gerist bestur. Hann var í mesta sakleysi sínu í sokkadeildinni í Hagkaup þegar æstur múgur vatt sér að honum og byrjaði að týna af honum spjarirnar þangað til karlanginn stóð eftir aðeins klæddur í einn rauðann sokk, Þegar tókst að sefa æstann múginn þá gáfu þeir þau svör að þeim hafi bara alls ekki líkað við apaskinns gallan sem var merktur Ungmennafélagi Barðastrandar. Maðurinn í rauða sokknum fékk áfallahjálp. 🙂

Tommalingurinn er að fokking drepast úr harðsperrum og er stórlega farinn að efast um að þessi nýi lífsstíll sé þess virði. Andskotans helvítis harðsperrur.

Jamm, það verður róleg helgi hjá Tommanum, að sjálfsögðu verður kallinn edrú ásamt því að vera að vinna alla helgina. Kallinn er búinn að plana ræktarferð í fyrramálið en er ekkert allt of spenntur fyrir því eins og staðan er núna. En ætli maður láti sig ekki hafa það andskotinn hafi það. Svo er spurning um að klæða sig í eiturefnagallann og ráðast á helvítis útmigna klósettið. OOOOJJJJ BJAKK.

Gauinn er stunginn af í Borgarnes og Tomminn situr sveittur og súr í hlandfýlunni, reyndar er ég að ýkja þetta aðeins hrmpf, þetta er ekki alveg svona slæmt þó að það sé kominn tími á ærleg klósettþrif.

Jæja, Tomminn er farinn að spila CM eða eitthvað álíka gáfulegt

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Villt, Já

Rugl dagsins er: Villt, Já það var spaugileg uppákoma sem átti sér stað í Sundhöllinni í Reykjavík nú skömmur fyrir hádegi þegar ung stúlka þrammaði inn í karlaklefann, berstrípaði sig og fór í sturtu. Margur karlpeningurinn sem var þarna inni virtist bara vera skemmt þangað til einn hommalingur fór og kvartaði við baðvörðinn og var stúlkunni vísað í réttan klefa. Hommalingurinn fannst látinn síðar í sána klefanum 🙂

Tomminn skellti sér gallharður í ræktina í dag og fór mikinn. Er allur hel aumur í handleggjunum, brjóstkassanum og magavöðvunum. Ouch ouch ouch, já svona er þetta en Tomminn verður nú samt að harka þetta helvíti af sér.

Svo er Tommalingurinn að gera ensku verkefni og kallinum fannst alveg tilvalið að skrifa um Man Utd og það féll heldur betur í góðann jarðveg hjá kennaranum sem by the way er mikill United aðdáandi hehehe, Tomminn vissi það nú alveg og sú staðreynd hjálpaði Tommanum aðeins með val á viðfangsefni. Það er ekkert að því að vera 26 ára kennarasleikja hrmpf.

Hugleiðing: það verk sem fellur Tommanum lítt vel til verks er að þrífa klósettið. Yfirleitt þegar maður sem pissar standandi nær í fæstum tilfellum að koma öllum vökvanum ofan í skálina og fer þá oftast eitthvað smotterí útfyrir. Hvað er til ráða þegar hlandlyktin er að drepa alla? Jú það er hægt að þrífa kamarinn með fýlusvip á vör og halda áfram að pissa útfyrir. En hvernig má komast hjá því að pissa útfyrir??? Pissa sitjandi er ein leiðin, en hvaða heilvita karlmenni fæst til þess ég bara spyr. Það er svo miklu einfaldara að vippa bara tólinu út og láta vaða í staðinn fyrir að girða niður um sig og setjast á dolluna eins og versta kerling. Hægt væri að vanda sig meira, reyna kannski að miða á einhvern ákveðinn punkt ofan í klósettinu, þá er minni hætta á að eitthvað fari útfyrir. Og þá er alltaf sama vesenið með morgun pissið. Nývaknaðir karlmenn byrja yfirleitt daginn á því að míga. Þá er forhúðin tekin og brett upp og er oftast frekar þurr eftir nóttina og lætur illa að stjórn, þá vill vökvinn oft leita til hliðar og út um allt nema ofan í helvítis dolluna. Þá væri nú ráð að setjast bara og míga til að komast hjá þessu vandamáli. Nú þar sem að undirritaður býr á konulausu heimili og klósett þrif eru ekki ofarlega á vinsældarlista íbúa, hvað er þá til ráða?? Sérstaklega þar sem að meðleigjandinn er mun hærri en undirritaður og er örugglega nógu erfitt fyrir hann að setjast við hægðir hvað þá að gera það í hvert einasta skipti sem migið er. Eina ráðið sem ég sé í þessari stöðu er að fara á http://www.russianwomen.com og kaupa eitt stk kerlingu til að sjá um þrifin. Borga henni c.a. 4 rúblur á viku og allir verða sáttir, hvernig leggst þetta í menn hehehe. Við Gauinn erum búnir að panta eina og er hún út í Hrísey í sóttkví og við megum sækja hana eftir 3 mánuði hehehe

Þangað til næst…….

Rugl dagsins er: Nakinn maður

Rugl dagsins er: Nakinn maður sást hlaupa niður Laugaveginn nú um hádegisbilið. Náðist hann ekki fyrr en á Hofsvallagötunni og kvaðst hann þá vera á leiðinni heim til sí­n, sagðist eiga heima á Hofsvallagötu 19 og heita Sigursteinn. Aðspurur um hátterni sitt kvaðst Sigursteinn vera að fagna endurkomu frelsarans um næstu helgi. 🙂

Tomminn fór annað kvöldið í­ röð í­ bolta og í­ þetta skiptið í­ Fylkishöllina. Átta manns mættu og það er eiginlega of lí­tið fyrir svona stórt hús. Tommagreyið var alveg búið á tí­mabili. Tomminn náði nú samt að standa uppi sem sigurvegari þriðja skiptið í­ röð og er Tomminn farinn að efast um að hann geti hreinlega tapað. (Smá djók til að æsa einn ákveðinn aðila aðeins upp fyrir næsta sunnudagstí­ma). Þetta var samt fí­nn bolti en Tomminn verður nú að viðurkenna að hann var svolí­tið lúinn eftir tí­mann og það er meira en að segja það að spila tvö kvöld í­ röð. En Tomminn ætlar nú samt að harka það af sér í­ vetur.

Svo er Tomminn búinn að kaupa sér kort í­ ræktinni og ætlar alvarlega að fara að taka á því­. Er einmitt að fara núna á eftir með honum Járna g-streng og ætlum við að reyna að gera eitthvað af viti.

Helvítis Chel$ki. Þeir ætla bara að kaupa allt og alla og nýjasti meðlimurinn er Peter Kenyon Fjármálastjóri Man Utd. Svo er einhver leiðinda frétt um að hinn kjálkastóri Nistelrooy fylgi í­ kjölfarið. Mér er hreinlega bara hætt að lí­tast á blikuna. Ekki nóg með að selja Beckham og gera mann pirraðan út af því­, þá þurftu þeir lí­ka að selja Veron, og svo er farið að tala um Nistelrooy lí­ka jesús minn. Það er ekki eins og þessum klúbb vanti seðla neeeeiii. Helví­tis bull, ég hef reyndar litla trú á að Nistelrooy fari enda er hann aðal stjarnan á Old Trafford núna ásamt Giggs, Keane og Scholes. Ég held hreinlega að þessi Róni Abbababbovits ætti bara að fara að róa sig aðeins. Ég er nokkuð viss um að hann eigi eftir að fá leið á Chelsea eftir nokkur ár og skilja þá eftir með einhvern gí­gantí­skan launakostnað sem á eftir að setja þá á hausinn. Kannski er ég bara að vona það, hver veit.

Tomminn svaf yfir sig í­ morgun og missti af Stærðfræði tí­ma, sveiattann Tommi, skamm. Nú verður maður að fara að herða sig í­ að vakna. Mætti svo í­ Íslensku hjá spaugilegasta kennara skólans og komst að því­ að það var próf. En að sjálfsögðu klumbraði Tomminn sér í­ gegnum það eins og sönnum Grundfirðingi sæmir.

Jæja það er best að fara að drí­fa sig í­ Sorphúsið hehe, Jón er ábyggilega farinn að bíða.

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Hávaðamengun í

Rugl dagsins er: Hávaðamengun í Grafarholtinu. Mikið hefur verið kvartað undan hávaða í Grafarholtinu undanfarið. Lögreglan fór á stúfana og kom þá ýmislegt í ljós. Hávaðamengunarvaldurinn reyndist vera gamall sjóari með hamar sem barði statt og stöðugt í allar bárujárnsplötur sem hann fann, aðspurður sagðist hann vera að láta skipstjórann vita af lélegu aflamarki, eins og tíðkaðist á “síðunni” í gamla daga. Lögreglan fjarlægði hamarinn og vistaði manninn á Hvammstanga. 🙂

Tomminn er kominn með sját át, þökk sé Járna sem reddaði þessu fyrir Tommann. Nú geta báðir lesendurnir látið Tommann heyra það þegar hann er að bulla einhverja vitleysu.

Tomminn fór í bolta í gær og hafði sigur úr bítum annað skiptið í röð, ellefu manns voru mættir og skilst mér núna að þrettán manns ætli sér að borga. Það er fínt því nú getum við fjárfest í nýjum vestum sem verða ekki bleik. Þeir sem mættu í gær voru Tomminn, Lauginn, G-strengurinn, Hallinn, Dabbi, Doddi af hinum föstu mönnum. Svo kom Siggi með tíuþúsund kall og auðvitað fékk hann að vera með. Egill vinur hans Ívars kom með tvo menn með sér og ætla þeir báðir að vera með, svo mætti Gaui litli sem gestur, en hann meiddi sig í bibbann og gat ekki verið allan tíman. Tomminn lofar að kaupa ný vesti mjög fljótlega, í þessari eða næstu viku.

Lið Tommans var þannig skipað að Halli, Tommi, Doddi, Atli, Dabbi og Jón Á, svo skipti Dabbi júdas yfir í hitt liðið. Honum hefur líklega langað til að tapa karlanganum. En eins og fram hefur komið þá sigraði lið Tommans með yfirburðum. Nú er bara að vona að Gæi nokkur Hadda geti farið að láta sjá sig því að síðustu tveir tímar sem Tomminn hefur mætt í hafa verið full rólegir og enginn Gæi til að rífast í.

Nú er semsagt fótboltahópurinn orðinn fullur og því miður ekki pláss fyrir fleiri að svo stöddu. Sjáum til hvort einhver slasi sig, sjö níu þrettán (bank á við) Við skulum nú samt vona að allir verði heilir, að minnsta kosti fram að áramótum.

Nú er bara málið að koma skoðunum ykkar beggja á framfæri og commenta á Tommann.

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Gríðarleg spenna.

Rugl dagsins er: Gríðarleg spenna. Í dag áttust við stórmeistararnir Bolli Sigurðsson og Hr Kaplan í einvígi aldarinnar eins og fjölmiðlarnir voru farnir að kalla það. Hr Kaplan byrjaði betur og náði hælkrók á Bolla sem síðan náði góðum snúning og felldi Hr Kaplan. Þannig að þessi skyrglíma sem stóð yfir í 8 sekúndur og vakti heimsathygli er nú búin með sigri Bolla Sigurðssonar sem hlaut MS beltið að launum. 🙂

Var að koma af landsleik Íslands og Þýskalands og þvílík andskotans sniiiiiiilld. Það var alveg mögnuð stemming á Laugardalsvellinum og Íslendingar voru bara ekkert síðri en Þýskararnir. Leikurinn fór 0-0 og það eru í sjálfu sér fínustu úrslit en samt er maður drullu svekktur að hafa ekki unnið því að við fengum sko alveg færin til þess. Eiður Smári slapp einn í gegn en Kahn varði og svo björguðu Þjóðverjarnir tvisvar af línu og Jói Kalli klúðraði DAUÐA færi. ANDSKOTANS, en Íslendingar eru samt ennþá efstir í riðlinum okkar og eigum einn fokking leik eftir. Einum leik frá stóra draumnum og fari svo ólíklega að Ísland komist einhverntímann á stórmót þá andskotinn hafi það mætir Tomminn á svæðið, hvort sem það verður í Portúgal 2004, þýskaland 2006 eða hvar sem er.

Svo horfði Tomminn á leik Makedóníu og Englands og voru Englendingarnir ekkert svo sannfærandi. Lentu undir og voru 1-0 undir í hálfleik. Í seinni hálfleik kom Emil Hesti inn á og lagði upp mark fyrir Vein Rúní, það var svo maður leiksins að mínu mati David Beckham sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu.

Helvítis djöfull, Tomminn var að tippa á lengjunni og var með tvo seðla í gangi. Fyrri seðillinn hafði stuðul upp á 29 komma eitthvað og þar var einn fokking leikur vitlaus, Tomminn hafði lagt 2000 kr undir og hefði þá grætt um 60.000 kr ef helvítis England hefði gert jafntefli. Seinni seðillin var nokkuð minni stuðull og Tomminn lagði 1000 kr undir þar og þar hafði Tomminn tippað á Þýska stálið en hefði nú betur sleppt því, það var eini fokking leikurinn sem var vitlaus og Tomminn grætur horfna seðla.

Þangað til næst…..

Rugl dagsins er: Hjartaknúsari frá

Rugl dagsins er: Hjartaknúsari frá helvíti. Hið mikla Kvennagull, Satann sjálfur er staddur á Reykjalundi þessa dagana. Aðspurður segist hann bara orðinn of þreyttur á að njóta ásta með nornum og seiðkörlum í gríð og erg og hafi þess vegna brugðið á það ráð að kíkja upp á yfirborðið í afslöppun og endurnæringu. Hyggst hann snúa aftur til helvítis eftir þrjár vikur. 🙂

Jæja, þá er enn ein edrú helgin runnin upp og Tomminn gerir lítið annað en að sitja fyrir framan imbakassann eða tölvuna. Kallinn er kominn með legusár á rassakinnarnar. Vel hefur gengið að rukka inn fyrir fótboltann og nú eiga aðeins tveir einstaklingar eftir að borga. Reyndar á eftir að finna þessa tvo einstaklinga líka en það er annað mál.

Tomminn hefur endurheimt rúmið sitt frá Nafla Alheimsins og getur loksins sofið rótt, var búinn að sofa á 7cm þykkri svampdýnu í 2 fokking vikur og orðinn hundleiður á. Queen size rúmið sem var sárt saknað er því komið í leytirnar og nú getur Tomminn loksins deilt sinni sæng án þess að vera hálfur út á gólf.

Landsleikurinn á morgun og leggst þetta frekar illa í Tommann. Jamm, hann er frekar svartsýnn á Íslenskann sigur þar sem að Nasistarnir eru bara miklu betri. Tomminn lætur sig nú samt ekki vanta á völlinn til að hvetja sína menn til dáða. Aldrei að vita hvað gerist og Tomminn vonar hið besta en býst við hinu versta.

Járni er búinn að samþykkja að geyma boltann þannig að prumpdýrið getur bara bitið í það súra epli að vera ekki treyst fyrir einum skitnum bolta.

Jebb, Tomminn er voðalega eirðarlaus þessa dagana og þarf að drepa tímann með því að læra, hversu skerí er það.

Þangað til næst……

Rugl dagsins er: Hinn vinsæli

Rugl dagsins er: Hinn vinsæli grínleikari Ásbjörn Bollason sem gerði garðinn frægann með ódauðlegum hlutverkum eins og Jesper í Kardimommubænum, Mikki Refur, Rauðhetta og Lína Stuttsokkur í Þjóðleikhúsinu datt heldur betur í lukkupottinn í fyrradag. Ásbjörn var á sinni vanalegu kvöldgöngu þegar hann gekk upp á Marbendil sem var að hafa hægðir. Ásbjörn snaraði kvikindið í snarhasti og er Marbendillinn nú til sýnis í Húsdýragarðinum. 🙂

Tommalingurinn náði að eyða um 200.000 kr í dag. Jú það var keypt ný fartölva, nýr bolti þar sem að Sössinn rústaði hinum (sjá að neðan) og fleira. Jebb, svo er Lauginn búinn að ákveða að vera með í boltanum og eru það góðar fréttir. Gaui er líka eitthvað heitur og það er bara aldrei að vita nema hann taki skóna fram að nýju.

Tomminn lenti í allsvakalegri umferðarteppu í morgun, Jú, hann vaknaði aðeins of seint og lagði af stað 5 mín í 8 og fyrsti tíminn átti að byrja kl 8:10. Tomminn mætti í stofu 201 um hálf níu leytið og fékk illt auga frá kennaranum. En að sjálfsögðu var Tomminn kominn langt á undan öllum hinum og fékk að fara eftir 10 mín þegar hann var búinn að sýna fram á að öll dæmin voru reiknuð hehehe. IN YOUR FACE stupid teacher. Þá var bara setið í mötuneytinu og kókið sopið ásamt því að byrjað var að glugga í bókina To Kill a Mockingbird sem Tomminn hafði fjárfest í.
Svo var mætt í EFN203 þar sem að Tommalingurinn sat bara og gapti út í loftið og skildi ekki NEITT. Ömurlegur tími og leðurlesbían fór á kostum við að rakka Tommann niður. Það má svo geta þess að Leðurlesbían er umsjónarkennari Tommans þetta árið og reiknar Tomminn því með falli á þessari önn 😦
Endar dagurinn svo á skemmtilegum ensku tíma þar sem Tomminn fór á kostum við að þýða einhverja leiðinda grein um kerlingarálft sem drap öll átta börnin sín og kenndi vöggudauða um, SKAMM.

Eftir hádegi fór Tomminn á spending spree og eyddi áðurnefndum 200 kalli SKAMM. Svo er bara að vona að fartölvan reynist nýjum eiganda bara vel. Centrino örgjörvinn rúlar feitt.

Svo er það nýi boltinn. Tomminn er einstaklega stoltur af þessu. Tomminn fór í Boltamanninn þar sem að Reynir frændi hans vinnur, jú Tomminn fer að spjalla við Reynir aðallega að reyna að fá kallinn til að vera með í bolta. Svo spyr Tomminn hvort það séu til einhverjir boltar og Reynir hélt það nú og dró svo framm þennan líka fína bolta sem heitir því skemmtilega nafni Molten. Þetta er víst eitthvað merki sem sér Ólympíuleikunum fyrir boltum og þessi sami bolti og Tomminn keypti er notaður í Serie B á Ítalíu og hana nú. Svo spyr Tomminn um verð á blöðrunni og þá kom þessi fræga setning, spesjal præs for jú mæ frend. Blaðran átti að kosta 7.990 kr en af því að Reynir er skyldur Tommanum og Reynir er að flytja Molten inn sjálfur þá fékk Tomminn blöðruna á 5.000 kr og sokka með í kaupbæti hehehe. Takk fyrir það.
Og eitt enn, Prumpdýrið fær ekki að geyma þennan bolta og komumst við Halli að þeirri niðurstöðu að g-strengurinn væri líklega best til þess fallinn að hafa boltann, þar sem að Jón mætir undantekningarlaust ALLTAF og mjög ábyrgur ungur maður sem notar ekki astro-glide á hluti við innsetningar eins og sumir (sjá að neðan).

Latibær er að fara að meika það feitt í Ameríku og staða Íþróttaálfs er laus til umsóknar. Tomminn er búinn að leggja inn sína umsókn enda tilvalinn Íþróttaálfur.

Þangað til næst……