Eitt orð um úrslit kvöldsins…. GUBB
Þangað til næst….
Eitt orð um úrslit kvöldsins…. GUBB
Þangað til næst….
Fór á incubus í gær. Færir fjandar, þetta voru flottir tónleikar… komast í topp 5 hjá mér.
Eftir tónleikana þá átti Gústi bróðir þessa líka snilldar hugmynd um að skella okkur í bæinn. Ég hringdi í Dabba frænda og fékk lánaðar 2 kippur af öli og svo var byrjað að sötra. Þetta var fínt, skröltum smá í bænum og kallinn var kominn uppí rúm rétt fyrir 6.
Afleiðing af því er að dagurinn í dag er búinn að vera HANDÓNÝTUR. Átti stefnumót við postulínið og allt. ÓGEÐ.
Svo vil ég líka minna alla púllara á leikinn skemmtilega síðasta laugardag. 0-1 Úúúúúúúújjjeeeeeeee
Það er aðeins einn John Ó’Shit, það er aðeins eeeeeiiinnn john Ó’Shiiiiiiiitttt
Þangað til næst….
Nú er klukkan alveg að slá í miðnætti á mjög svo undarlegu kvöldi… Kom heim úr vinnunni kl rúmlega sex. Hitaði pylsur fyrir liðið, þeim var sporðrennt á skömmum tíma, skipti á þvílíku kúkableijunni því að Rúna gat það ekki. Horfði svo á Inter enda 17 leikja sigurgöngu sína á móti Udinese á Skjásport. Svo tók snilldin við…
Kristján var farinn uppí rúm þannig að við hjónaleysin sátum í sófanum og vorum eitthvað að spúglera í því hvað skildi gera. Ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu og ég var einhvernveginn ekki í neinum fýling fyrir sjónvarpsgláp. Ég sting uppá því að við komum í keppni í XBOX tölvuleikjum. Ég bjóst engan veginn við að fá einhverjar undirtektir enda uppástungan meira svona óskhyggja af undirrituðum. En Rúna tók vel í þetta og þá var XBOXINN ræstur…
Pacman: Við tókum 2 manna í þessum klassíska leik þar sem að Rúna hafði betur eftir æsispennandi keppni. komst meira að segja í borð nr 2 og hlaut yfir 7000 stig á móti 5000 og eitthvað hjá undirrituðum.
SSX: sem er einhver skíða og snjóbrettaleikur. Við kunnum nú hvorugt á þetta dæmi þannig að þetta var nokkuð jafnt. Skiptumst á að vinna þangað til að ég fattaði hvernig átti að gera ofurtrix og sleppti því alveg að segja henni frá því. Ég var held ég búinn að rústa henni 4 sinnum áður en hún fattaði hvernig var í pottinn búið.
NHL 06: Hocky leikur frá EA Sports. við kunnum hvorugt á þetta en þetta var stuð. Sérstaklega þegar Rúnu brá alltaf jafn mikið þegar víbringurinn í joystickinu hóf að titra með tilheyrandi öskrum. En það þurfti ekki að spyrja að leikslokum að kallinn rústaði kellu í öllum 3 leikjunum sem við spiluðum. Í síðasta leiknum (sem fór 4-0 fyrir mér) var Rúna orðin svo pirruð að hún henti stýripinnanum í mig og fór í fýlu mér til mikillar ánægju. Svo skammaði hún mig fyrir að kenna sér ekki að skora (ég by the way kunni alveg jafn lítið á þennan leik eins og hún) Síðustu mínútur leiksins fóru í það að ég skautaði í hringi á meðan tíminn rann út. Mikil keppnismanneskja hún Rúna.
Ég hafði sérstaklega gaman að þessu þar sem að Rúna var að skemmta sér vel við það að spila tölvuleiki sem hún annars talar frekar illa um og hefur ekki mikið álit á þegar maður er að gaufa í þessu. HEHEHEHEHEHEHE
Mjög svo undarlegt kvöld í alla staði.
En Incubus á laugardaginn og bræður mínir á leið í bæinn. Ég þurfti að úthýsa Ninna og Dagmar vegna plássleysis. Hafði gleymt að taka það í reikninginn að við erum með gest fyrir hérna… Ég bauð þeim samt að deila herbergi með honum sem þau afþökkuðu pent… skil ekki af hverju. En Gústi og Diljá verða í stofunni frá fimmtudagskvöldinu. Þetta verður eitthvað spaugilegt um helgina. Annars er Rúna að fara að vinna á kvöldvakt næstu 4 kvöld þannig að við Kristján verðum bara 2 öll kvöld.
Veit ekki hvað ég á að röfla meira fyrir utan að heimta fleiri komment hérna… hnuss.
Þangað til næst…..
Nú er maður búinn að liggja þokkalega sveittur alla vikuna. Þvílíka veikindaslubbið sem er búið að vera í gangi, fyrst Kristján og Rúna og svo ég. En þetta er allt að koma núna sem betur fer. Maður er búinn að horfa á allt sem er komið af Jericho. Helvíti fínir þættir og frekar pirrandi að þurfa að bíða eftir næsta þætti. Ætli maður taki ekki pásu í því og glápi á það sem er komið af 24 og Lost. Eins get ég kíkt á The Unit, Heroes og My Name is Earl. Það er sko af nógu að taka.
Maður er svona rétt að venjast þessu nýja bloggi. Soffi búinn að skipta úr MT yfir í WordPress. Þetta wordpress dæmi er voðalega líkt Blogspot sem að maður var með í denn. En þetta kemur allt saman með kalda vatninu.
Þangað til næst….
Jæja, þá er hann Soffi minn búinn að græja nýtt lúkk á síðuna. Kominn tími til held ég. Svo er maður bara í rólegheitunum að henda inn linkum o.s.fr.
Annars liggja allir hérna heima með einhverja bölvaða pest. Kristján Freyr búinn að vera sínu verstur með gubbupest. Búinn að fara 3 sinnum í bað og skipta 6 sinnum um föt á síðustu 2 sólarhringum, bagalegt ástand.
Þangað til næst….
Vitiði hvað hún Rúna mín gerði í gær…
Hún eldaði bjúgu eins og ekkert annað væri sjálfsagðara. Snilld segi ég, bjúgu með soðnum kartöflum og uppstúf… Svo þegar maður kom inní íbúðina fylltist ég Hofstaða nostalgíu því að lyktin þar var eins og í sveitinni hjá ömmu á Hofstöðum í æsku minni… mmmm good times

Þangað til næst…..
Þá veit ég hvað ég verð á grímuballinu góða…
You are The Flash
|
Fast, athletic and flirtatious.![]() |
Click here to take the “Which Superhero am I?” quiz…
Þangað til næst….
Ef ske kynni að einhver ykkar þyrfti að umgangast son minn í nánustu framtíð þá hef ég tekið að mér að búa til orðabók fyrir ykkur svo ykkur gangi betur að skilja kauða. Þetta er nú ekkert gríðarlegt verkefni enda ekki um auðugan garð að gresja hvað orðaforða varðar.
en hérna kemur þetta og vonandi verður þetta ykkur nytsamlegt samskiptalega..

Soggana – Þetta þýðir “ég vil fara í sokkana” og þetta er óspart notað þessa dagana.
Oiiijj – Þetta þarfnast nú varla neinnar þýðingar og þýðir bara Oj, Þetta er vinsælasta orðið í dag.
Hæstu – Þetta þýðir “hættu” (af hverju ætli hann hafi lært þetta???)
Bæj eða bess – Bless
Nammi – þýðir sig sjálft
Namm – Morgunmatur
Seiggjó – Sleikjó
Beiju – Skipta um bleiju
Fúbba – Súpa
Lulla – Lúlla
Pabbi og mamma er nú nokkuð skiljanlegt hjá honum
Voffi – Soffi frændi
Efna – Líklega er þetta Hrefna
Baggi – Maggi Jobba
Danný – Dagný
Súggi – Gústi Alex
Dijjá – Diljá
Njinni – Ninni
Dammar – Dagmar
Amma og afi er líka nokkuð skiljanlegt
Lúlli – Júlli
Seini – Steini
Addí – Arndís
Begga – er bara Begga
Hanna – er bara Hanna
Tess – Kex
Katt – Kalt
Ba – Fara í bað
Kannínna – Kanína
Voff – Hundur
Spijja – Spila á hljóðfæri
Flúvva – Flugvél
Sjemma – Skemma eða eyðileggja
Pabbaá – Pabbi á þetta
Bíljin – Fara í bílinn
Eddu – Fara til Eddu dagmömmu
Iss – ís
Gubbanna – Leika sér með kubbana
Botti – Bolti
Memja – Lemja
Þetta er svona það helsta sem ég man eftir. Ef þið lendið í tungumálaörðuleikum við hann Kristján þá veriði óhrædd við að spyrja okkur Rúnu og við munum reyna að hjálpa eftir fremsta megni.

Þangað til næst….
Nú er kominn enn einn föstudagurinn. Rúna er komin á kvöldvakt sem þýðir að við Kristján erum bara einir heima á kvöldin. Maður hittir kelluna ekki neitt nema þegar ég kyssi hana bless á morgnana.
En svona er þetta bara, vinnan göfgar manninn eins og einhver spéfuglinn sagði hérna um árið.
Helgin framundan og ég að vinna á laugardaginn… hnuss.
Bújakaza
Þangað til næst…