Úff

Enn einn mánudagurinn mættur til mín. Maður er nú hálf tussulegur í vinnunni, órakaður úldinn og haugmyglaður.

Skellti mér á Classic Rock bar á laugardagskvöldið. Þar voru styrktartónleikar Vals Höskuldssonar og Gústi Alex litli bró var að spila. Þetta var helvíti fínt hjá þeim og skemmtilega rólega nett og þægileg stemming á staðnum. Ég stoppaði nú samt frekar stutt. Sá Kung Fú vera með flott prógram og svo voru Gústi og félagar með svolítið rokkaðra sett og svo var einhver stórfurðuleg þjóðlagahljómsveit sem hét Gögl, frekar spes allt saman. Svo eftir þetta skutlaði ég bara sjálfum mér heim í rólegheitin.

Ég bara trúi ekki öðru en að ég fái að raka mig á miðvikudaginn þegar Man Utd spilar aftur við utandeildarlið Burton á Heimavelli. Ef að það klikkar eitthvað þá ét ég man utd húfuna mína og hana nú.

Þangað til næst…..

VETUR

Loksins kom eitthvað sem að virðist vera vetur, ég þurfti að dusta 20 cm lag af púðursnjó af bílnum í morgun. Svo meiga ekki falla nokkur snjókorn án þess að umferðin í Reykjavík fari á annan endann. Ég var c.a hálftíma á leiðinni í vinnuna vegna þessa. Yndislegt alveg hreint.

En svona er það nú. Man City – Man Utd á morgun og vonandi get ég skafið hýunginn af eftir vinnu… aaaah það yrði svooo ljúft.

Þangað til næst….

skegg

Ekki fékk skeggið að fjúka í gær sökum enn eins jafntefli sem Man Utd gerði í gær. Reyndar 1-1 í þetta skiptið. Þannig að það er alltaf séns næsta laugardag þegar Man U fer á City of Manchester Stadium og spilar við Man City. Ef ekki næst sigur þar að þá fer nú að verða illt í efni fyrir kallinn. Enda er maður hálfpartinn farinn að skammast sín hérna í vinnunni. Maður er eins og illa reitt hæna í framan, með einhverjar hárlufsur hingað og þangað um andlitið… damn. En ef Man U vinnur ekki á laugardag þá hljóta þeir fjandakornið að taka Burton á Old Trafford næsta miðvikudag, annars skal ég hundur heita.

En hvað haldiði að ég hafi þurft að gera í morgun? Eitthvað sem ég hef ekki gert í einhver 10 ár. Ég þurfti að taka helvítis gulan djöfulsins strætó ógeð… uuuuuuuurrrrrrr.

Byrja á því að vakna kl 07:46, truntast haugmyglaður á lappir og sting hausnum undir kalda sturtuna, fatta svo eftir 7 sekúndur að ég er með hausinn í klósettskálinni að sturta niður. En það skiptir ekki máli því ég vakna alveg jafn vel fyrir vikið. Svo er bara að drattast af stað, rölti þungum skrefun niður í mjódd og er með það á hreinu að ég þarf að taka vagn nr S3. Þvílíka slabbið úti og er orðinn hálf votur í lappirnar af þessu. Svo þegar ég nálgast mjóddina sé ég hvar leið S3 er að keyra af stað. Djöfull, þarf þá að bíða í fokkings tíu mínútur og borga helvítis 250 kr til þess eins að láta henda mér út á miklubrautinni þar sem að þetta bévítans nýja leiðarkerfi keyrir ekki lengur niður Grensásveginn heldur þyrfti maður að taka 2 vagna + meiri biðtíma til að fara út þar. En ég kaus að taka frekar einn vagn sem er nógu flókið fyrir mig en að vera að digga einhverja 2 vagna til að komast í vinnuna. Svo ég labba frá miklubrautinni og í vinnuna og öll þessi blessaða ferð tók mig helvítis 40 mínútur. Þetta þarf ég að gera á hverjum einasta fimmtudegi það sem eftir lifir vetrar þar sem að konan þarf að fara í skólann á bílnum DJÖFULL.

Þangað til næst….

Gott ráð

Ég er með brilliant ráð fyrir þá sem eru að baxa með frosnar læsingar í tíma og ótíma. Málið er nefninlega að ég hef oft lent í þessu á morgnana og þykir mér að miður skemmtilegt. Svo um daginn fór ég og keypti með 4 dúnka af lásaolíu, þegar ég segi dúnka þá er þetta nú ekki það stórt um sig, þetta geng ég með í vasanum dags daglega og viti menn, sama hversu mikið frost er, aldrei frýs læsingin. Hvort sem það er lásaolíunni sem ég sprautaði í læsinguna fyrir mörgum vikum eða bara sú staðreynd að ég geng ennþá með þessa 4 dúnka í vasanum ennþá. Ég held nefninlega að það sé síðari skýringin. Um leið og ég myndi setja þessa 4 dúnka af lásaolíu uppí skáp að þá myndi læsingin frosna með það sama. Þess vegna er ráð dagsins frá mér til þín (sem átt við þetta vandamál að stríða) að kaupa þér lásaolíu og ganga með hana á þér. Takk fyrir.

Nú að öðru. Konan er orðin alveg stjörnuvitlaus yfir hýungnum sem vex á hinu misfagra andliti mínu. Málið er nefninlega að eins og svo oft áður þá neita ég að skerða skegg mitt fyrr en Man Utd drullast til að vinna leik. Eins og staðan er núna hef ég ekki rakað mig síðan í fyrra. Síðan þá eru liðin 2 markalaus jafntefli, á móti Arsenal og Burton (já ég veit ha ha Burton).
Ég er svona að vonast til að Man Utd vinni Blackburn í kvöld því mig er farið að klæja ískyggilega í fésið. Ef allt fer vel get ég skafið hýunginn af í kvöld jeeeeeeeessssssss.

Þangað til næst…..

Rok og rigning

Nú er frost á fróni frýs í æðum blóð og allt það. Þetta var nú sungið hérna til forna þegar ég var uppá mitt besta, en það var nú bara bekk in ðe dei þegar það voru alvöru skaflar út um allt. Rúturnar voru á 42″ dekkjum og keðjaðar 8 mánuði ársins.
En nú er öldin önnur, akkúrat núna er rok og rigning úti á meðan einhverjir bjánar eru að sprengja síðustu flugeldana úti. Mér er skapi næst að fara á hjólinu vestur á morgun. En ég er rétt að bíða af mér mesta rokið hérna í bænum. Það var allt hvítt í morgun en það dugði skammt. Þegar ég stimplaði mig út kl 18:12 þá var allt orðið autt. Autt æ tells jú, og það er sjötti janúar for kræing át lád. Global warming heitir það víst. Eini snjórinn sem maður sér nú orðið er þegar maður opnar frystinn og nær sér í vanilluís. Ekki það að ég sé að kvarta eitthvað mikið en það væri nú samt fínt að fá bara smá vetur… bara smá, þó að það væri ekki nema svona eina til tvær vikur, þannig að það væri hægt að dusta rykið af skíðalyftu Grundarfjarðar og skella sér eina salíbunu niður fjallið. En svona er Ísland í dag.

Annars ætlaði maður nú ekki að vera að væla í fyrsta pistli ársins en svona er þetta. Áramótin voru hreint út sagt notaleg hjá mér. Rúna fór á ball og Soffi kom til mín og við horfðum á video á meðan blindfullir besefar máluðu bæinn rauðan og Kristján Freyr svaf svefni hinna réttlátu. Þetta var alveg eðal, kannski er maður orðinn gamall, ég veit það ekki… Æm getting tú óld for ðiss sjitt eins og skáldið sagði einhverntímann.

Í spilaranum:
Lonely day – System of a down
Boulevard of broken dreams – Green day
Politics – KoRn
Kerfisbundin þrá – Maus
Svefninn laðar – Ný Dönsk

Þangað til næst…..

Áramótaspá Tommans

Jæja fólk, hérna kemur hin árlega áramótaspá Tommans fyrir árið 2006.

Árið 2006 já, Árið sem Tomminn hleypur á þriðja tuginn, Kristján Freyr dettur á 1 árið og Rúna verður hálf þrítug.
Fleira markvert á nú eftir að gerast og kemur það hérna ekki í neinni sérstakri röð….


Hljómsveitin Kvaðratrót gefur út sína fyrstu plötu sem óvænt slær öll met í sölu í Namibíu, því verður fylgt eftir með túr um Antartíku.


Rúna Jobba skrifar undir samning um að vaska upp og fara alltaf með ruslið út á sínu heimili ellegar að sæta harðri refsingu af hálfu sambýlismanni sínum. Refsingin fæli í sér fiður, tjöru og stórt prik.


Tommi Jobba verður ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn útbrunnum celebs, ákæran verður síðar felld niður vegna ófullnægjandi sönnunargagna.


Vatnsberarnir eiga eftir að koma öllum á óvart og vinna utandeildina sumarið 2006. Þeim verður í kjölfarið boðið að spila æfingarleik við Swindon sem þeir vinna sannfærandi 4-0


Ninni Dittu verður kjörinn bæjarstjóri á Akureyri þegar hann kemur með frumvarp um að löggilda sjálftæmandi ruslatunnur sem hann hannaði sjálfur.


Viggi Runna verður svo svekktur með að vera á minnsta mótorhjólinu í mótorhjólagenginu að hann ákveður að söðla um og fjárfesta í stærra 750cc hjóli, en verður svo ennþá svekktari þegar hann fattar að hann er ennþá á minnsta mótorhjólinu. Kemur bara næst Viggi minn.


Arnar Pétursson verður himinlifandi þegar hann fer í læknisskoðun og sér að hann hefur stækkað um 2 cm og kemst yfir mörkin um að vera löggiltur dvergur, hann fer svo í mál við heilsugæslu Reyðarfjarðar þegar upp kemst að mælingarstöngin var ólögleg og búin til úr gúmmíteygju.


Steini Jobba ákveður að söðla um og opna verslun með hjálpartæki ástarlífsins fyrir hesta. Kennir svo staðsetningu búllunnar um þegar hann húrrar með reksturinn á hausinn. En þess má geta að búllan hefði getað verið betur staðsett heldur en við hliðina á Litlu Kaffistofunni.


Soffi súri setur nýtt heimsmet þegar honum tekst að sofa í 126 klst samfleytt án þess að pissa.


Ellen E fjárfestir í fataverksmiðju sem sjálfkrafa sendir henni einn bol á dag. Ellen kemur út í plús eftir þetta ævintýri þar sem hún þarf ekki að kaupa sér boli lengur.

Fleira markvert sem gerist er að Baugur group fer á hausinn þegar að Jón Ásgeir gerist svo djarfur að kaupa stærstu sokkaverksmiðju í Úganda á trilljón gasilljón milljónir.

Grundarfjörður verður gerður að menningarbæ heimsins þar sem að stytta af Gísla göngutúr verður reist fyrir utan esso sjoppuna.

Kaffi 59 hefur tilraunastarfsemi með jarðarberjakaffi sem fer illa í kaffiþyrsta Grundfirðinga og endar með allsherjar uppþoti þannig að víkingasveit snæfellness verður kölluð út til að hafa hemil á mannskapnum. 3 verða handteknir og 5 manns slasast lítillega.

Vonandi hafið þið það gott yfir áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr

Þangað til næst….

Bújaka

Hæ. Nú líður að lokum þessa árs. Ég mun stikla á stóru yfir það sem hefur farið fram á þessu ári hjá okkur. Á morgun kemur svo spáin fyrir 2006 en þið getið smellt —HÉR— og scrollað alveg niður eða farið í “gamalt sjitt” hérna fyrir neðan og flett upp hversu sannspár kallinn var fyrir 2005.

Árið 2005 í hnotskurn:

Janúar:

Tommi stendur í ströngu við að reyna að redda miðum og hótelgistingu fyrir ferð sem hann og spúsan höfðu planað. Lífið gengur sinn vanagang. Spúsan ólétt. Kalt úti og Tomminn prumpast til og frá vinnu á micru hræi sem er oftast með frosnar hurðar á morgnana.

Febrúar:

Man Jú byrjar á að rústa Arsenal á Highbury 4-2, einkar ánægjulegt.
Rúna fær blóðtappa í löppina og kemst ekki með til útlanda. Dabbi frændi hleypur undir bagga og fer með Tomma litla til Englands. Rúna þarf í aðgerð út af þessu. Frekar spúkí. Tommi kaupir íbúð.

Mars:

Þessi mánuður hefst í London þar sem við Dabbi ráfum um með hor í nös í brunagaddi. Við Rúna mín fáum nýja íbúð og tökum til hendinni í henni, Fullt af fólki hjálpast að við að græja kofann.

Apríl:

Flytjum inn í íbúðina. Borga morðfjár fyrir að gera við mótorhjólið en það var þess virði því gripurinn svínvirkar eftir þetta. Mótorgjóla fiðringurinn kominn í mann.

Maí:

Það þarf nú ekkert að taka það fram að stærsti viðburður ársins í mínu lífi gerðist í maí en þá fæddist hann Kristján Freyr eingetinn sonur minn, nei hann var nú ekki alveg eingetinn, mamma hans tók nú stóran þátt í þessu ferli.

Júní:

Tomminn skorar mark í utandeildinni í 13-4 sigri á móti Nato… Lifi Vatnsberarnir, eina mark Tommans allt það sumar. Fór á Iron Maiden tónleika, hjólaði norður með strákunum og fór á Duran Duran hell je.

Júlí:

Var megnið af tímanum í fæðingarorlfi, Fór með Jóni, Ellen og Rúnu gullhringinn þ.e. Gullfoss og Geysir sem ég hafði aldrei séð áður. Rúna þarf aftur í aðgerð að láta laga æðarnar sínar.

Ágúst:

Stórt blað er brotið í sögu Tommans, Kallinn byrjar ágúst mánuð á að fjárfesta í bleikri skyrtu, eitthvað sem hafði ekki farið mikinn í litavali Tommans hingað til. Kristján Freyr var skírður í Grundarfjarðarkirkju. Fórum í bústað í eina viku í Bárðardal, fjarri öllu interneti, símum og þessháttar veseni. Tomminn var tekinn af löggunni við Akureyri á leiðinni heim úr bústaðnum, fyrsta sekt sumarsins.

September:

Lífið gekk nú bara sinn vanagang í September, ekkert þannig markvert sem gerðist. Jú reyndar var óþolandi böggandi sölumaður frá Allíanz að reyna að pranga einhverju uppá mann.

Október:

Kallinn sópar að sér verðlaunum í október. Tek eina PSP tölvu fyrir að selja vírusvarnir og svo eina X-Box vél fyrir að selja office pakka.
Kristján litli fer í ungbarnasund og skemmtir sér vel. Einhver dópistaræfill gerir allt vitlaust í blokkinni hjá okkur.

Nóvember:

Þessi mánuður byrjar yfirleitt á því að kallinn verður árinu eldri og árið í ár var engin undantekning á því.
Rúna sætasta splæsir í bassakvikindi handa kallinum. Svo toppar hún allt með því að skilja mig aleinan eftir í Reykjavík.
Það fer fram alþjóðleg rannsókn á dularfullu hvarfi hr Stjörnutorgs.
Önnur hljómsveitaræfing Kvaðratrótar fer fram í yfirgefinni skemmu.

Desember:

Man Ure dettur út úr Champ líg Tomma til mikillar armæðu. Jólin koma með tilheyrandi stressi og vitleysu.

Svona var árið í hnotskurn. Stay tuned fyrir spá Tommans yfir árið 2006.

Þangað til næst…..

Ó Reykjavík ó Reykjavík þú yndislega borg…..

Kominn aftur í borg óttans. Leiðist, langar aftur heim, leiðinlegt í Rvík. Þreyttur, búinn að borða of mikið, aleinn heima, ekkert konfekt til. Fullt af konfekti í Grundarfirði sniff.

En nóg um það. Jólin eru búin að vera mjög fín. Fékk fullt af glymrandi glæsilegum gjöfum. Þar ber hæst að nefna jakkaföt frá Rúnu, mömmu og Gústa og svo lítinn bassamagnara frá yndislegu systkynum mínum og Dagmar líka 😀

Ég náttlega át yfir mig í hverri einustu máltíð. Sit núna í vinnunni með bumbuna út í loft og er enn á blístrinu, spurning um að taka sig á.

Nennekki meir

Þangað til næst…..